Börn undir í átökum við tæknirisa

Evr­ópsk stjórn­völd standa í bar­átt­u við stærstu tæknifyr­ir­tæki heims. Á síð­ustu vik­um hafa ver­ið grip­ið til að­gerða, rann­sókna og nýrra laga­lega við­miða sem ætl­að er að vernda börn á net­inu. Nú var ver­ið að kynna ald­urs­stað­fest­ing­arapp sem á að koma í veg fyr­ir að börn kom­ist í efni sem er ætl­að full­orðn­um.

Evrópsk stjórn­völd standa á tímamótum í barátt­unni við stærstu tækni­fyrirtæki heims. Á síðustu vikum hafa verið kynntar nýjar aðgerðir, hafnar rann­sóknir og sett fram lagaleg viðmið sem öll miða að einu: að vernda börn á netinu.

Í brennidepli eru bæði samfélags­miðlar, klámvefir og ný tækni á borð við gervi­greind — og nú fyrst virðist stefna Evrópu­sambandsins vera að mótast sem heildstæð atlaga að stafrænu vistkerfi sem hingað til hefur að miklu leyti stýrt sér sjálft.

Nýtt aldursstaðfestingarapp

Kjarni nýrrar stefnu ESB er aldurs­staðfestingarapp sem kynnt var af forseta framkvæmda­stjórnarinnar, Ursula von der Leyen. Appið á að verða lykiltæki í því að koma í veg fyrir að börn komist í efni sem er ætlað full­orðnum.

Hugmyndin er einföld í grunninn en flókin í framkvæmd: notendur sanna aldur sinn einu sinni, með því að tengja appið við vegabréf eða önnur skilríki, og geta síðan notað stafrænt vottorð til …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár