Stóðu ekki við yfirlýsingar sínar um fjármálaáætlun

Valgerður Gunnars­dóttir, þingkona Sjálfstæðis­flokksins, samþykkti fjármála­áætlun sem felur í sér áform sem hún telur að muni „rústa“ fyrir­tækjum í hinum dreifðu byggðum. Þau Njáll Trausti Friðbertsson sögðust ekki ætla að samþykkja áætlunina óbreytta en stóðu ekki við yfir­lýsingarnar þegar á reyndi.

Njáll Trausti Friðbertsson og Valgerður Gunnars­dóttir, þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, stóðu ekki við yfir­lýsingar sínar um að þau myndu ekki samþykkja fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar óbreytta. Bæði greiddu atkvæði með áætluninni í nótt þrátt fyrir að áætlunin feli í sér áform sem Valgerður telur að muni „rústa“ fyrir­tækjum og „gjör­breyta atvinnu­stigi í þorpum og bæjum úti um land“.

RÚV greindi frá því þann 20. apríl síðastliðinn að þing­mennirnir tveir ætluðu ekki að samþykkja áætlunina nema hún tæki breytingum enda væru þau óánægð með áform um skatta­hækkanir á ferða­þjónustu. Báðir þing­mennirnir tengjast fyrir­tækjum í greininni; Njáll Trausti er sjálfur hluthafi í fyrirtæki sem leigir út orlofshús til ferða­manna á Akureyri og synir Valgerðar Gunnars­dóttur reka gistiþjónustu á Norður­landi. 

Sagði Valgerður í viðtali við RÚV að hækkun virðis­aukaskatts á ferða­þjónustu, sem gert er ráð fyrir í fjármála­áætluninni, ætti eftir að rústa fyrir­tækjum og gjör­breyta atvinnu­stiginu á lands­byggðinni. „Ég tel þetta óheilla­vænlegt skref og muni hafa mest áhrif á minni og meðalstór fyrirtæki úti á lands­byggðinni sem hafa verið að fjárfesta mikið og gjör­breyta atvinnu­stigi í þorpum og bæjum úti um land. Og þetta mun rústa þeim fyrir­tækjum,” sagði hún.

Þann 18. maí skilaði meirihluti fjár­laganefndar áliti um fjármála­áætlun þar sem fram kom að breyting á virðis­aukaskatti á miðju ári væri ekki æskileg og við undir­búning næsta fjár­laga­frumvarps þyrfti að leita leiða til að endur­skoða þær áætlanir. Engu að síður lagði meirihluti nefndarinnar til að áætlunin yrði samþykkt óbreytt í nefndar­áliti sem meðal annars var undir­ritað af Njáli Trausta sjálfum. Þannig er nú gert ráð fyrir stór­auknum skatt­tekjum frá ferða­þjónustunni í tekju­rammanum sem liggur til grund­vallar stefnu ríkis­stjórnarinnar. Áformin um hækkun virðis­aukaskatts á ferða­þjónustu eru líka á meðal helstu aðgerða sem stefnt er að til að draga úr þenslu í hagkerfinu og auka aðhalds­stig ríkis­fjármála.

Njáll og Valgerður greiddu bæði atkvæði með fjármála­áætluninni á Alþingi í nótt án þess að gera grein fyrir atkvæði sínu eða setja fyrirvara við málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár