Ný ríkisstjórn: Stefnuyfirlýsingin í heild sinni

Stjórnar­sáttmáli nýrrar ríkis­stjórnar sýnir að Viðreisn og Björt framtíð sættu sig við að hvorki yrði haldin þjóðar­atkvæða­greiðsla um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið né komið á uppboðs­leið í kvóta­kerfinu, eins og báðir flokkar vildu fyrir kosningar.

Nýr forsætisráðherra
Nýr for­sæt­is­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son kynnti nýja rík­is­stjórn til leiks og und­ir­rit­aðu stjórn­ar­sátt­mála. Mynd: Pressphotos

Nýr stjórnar­sáttmáli gerir hvorki ráð fyrir uppboðs­leið í sjávar­útvegi né þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið. Þá er lýst yfir vilja til að lækka skuldir ríkisins niður í ekkert eftir tíu ár og hvorki er ákveðið með skatta­lækkanir né -hækkanir.

Ný ríkis­stjórn setur í hendur Alþingis að afgreiða mögulegt þingmál, sem gæti komið fram, um þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið. Kveðið er á um að það verði hins vegar ekki fyrr en undir lok kjör­tímabilsins. Því er hluti nýs stjórnar­sáttmála að koma í veg fyrir að Alþingi samþykki þjóðar­atkvæða­greiðslu fyrr en undir lok kjör­tímabilsins.

Ekki er útilokað að taka upp markaðs­tengt afgjald af fiskveiði­auðlindinni, eins og Viðreisn og Björt framtíð boðuðu fyrir kosningar. Stjórnar­sáttmálinn kveður þvert á móti á um að ekki verði „gengið á eignar- og nýtingarrétt einstaklinga nema brýnir almannahags­munir krefjist þess“. Hins vegar verði „kannaðir kostir“ þess að gera langtíma­samninga um úthlutun kvóta og „samhliða verði unnið að mati á þeim kostum sem tækir eru, svo sem markaðs­tengingu, sérstöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leiðum, til að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind verði í eðlilegu hlutfalli við afrakstur veiðanna.“

Stefnt er að því að minnka greiðslu­þátttöku sjúklinga, hækka lífeyris­aldur, hækka frítekju­mark atvinnu­tekna elli­lífeyrisþega og stytta biðtíma í heilbrigðis­kerfinu.

Þá verði leitað leiða til að auka aðgengi nýsköpunar­fyrirtækja að fjármagni og erlendum mörkuðum.

Ekki verði komið á ívilnandi fjár­festingar­samningum vegna nýrrar mengandi stóriðju, eins og gert hefur verið fram að þessu.

Ekki verður tekin upp ný stjórnar­skrá, líkt og kosið var um í þjóðar­atkvæða­greiðslu 2012, en sú gamla verður endur­skoðuð „á grund­velli þess viðamikla starfs sem átt hefur sér stað undan­farin ár“ og breytingar­tillögur lagðar fram ekki síðar en árið 2019. 

Benedikt Jóhannesson, nýr fjármála­ráðherra, hefur greint frá því að gætt verði aðhalds í ríkis­fjármálum.

Leið­togar nýrrar rík­is­stjórnarÓttarr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra und­ir­rita stjórn­ar­sátt­mál­ann á blaða­manna­fundi.

Hér birtist stefnu­yfirlýsing ríkis­stjórnarinnar í heild sinni.

Stjórnarsáttmáli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar 2017

Jafnvægi og framsýni eru leiðar­stef ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.

Ísland á að vera eftirsóknar­vert fyrir alla þá sem vilja taka þátt í að byggja upp íslenskt samfélag til framtíðar. Mann­réttindi, jöfn tækifæri, fjöl­breytni, frelsi og ábyrgð ásamt virðingu fyrir ólíkum lífs­skoðunum mynda þar sterkan grunn.

Treysta þarf samkeppnis­hæfni Íslands. Ríkis­stjórnin mun stuðla að uppbyggingu á innviðum samfélagsins, samgöngum, heil­brigðis- og mennta­kerfi og kraft­miklu og samkeppnis­hæfu atvinnu­lífi fyrir íbúa um land allt. Forsenda þess að sótt verði fram í átt að bættum lífs­kjörum er að stöðug­leiki ríki í efnahags­málum þannig að landsins gæði og núverandi efnahags­bati komi næstu kynslóðum einnig til góða.

Ríkis­stjórnin mun setja heilbrigðismál í forgang. Áhersla verður lögð á að landsmenn hafi aðgengi að góðri heilbrigðis­þjónustu óháð efnahag og búsetu.

Fjöl­breytni í atvinnu­lífinu verður aukin með fjár­festingu eða annars konar hvatningu í skapandi greinum, grænum iðnaði, svo sem umhverfis­vænni tækni­þróun og fram­leiðslu, hugverka- og þekkingar­iðnaði og aukinni rann­sóknar- og þróunar­starfsemi.

Hagsæld lands­manna og þróun þekkingar­samfélags byggist á öflugu mennta­kerfi sem býður fjöl­breyttar náms­leiðir og styður við atvinnu­lífið.

Ríkis­stjórnin styður við víðtæka sátt á vinnu­markaði, ábyrgð í ríkis­fjármálum og stöðug­leika í gengis- og peninga­málum. Nauðsynlegt er að sýna ráðdeild í opinberum fjármálum og temja sér öguð og gagnsæ vinnu­brögð í opinberri stefnu­mótun og stjórn­sýslu.

Unnið verður að því að byggja upp traust á grunn­stoðum samfélagsins, meðal annars Alþingi og dómstólum. Við laga­setningu þarf að gæta þess að fulltrúar ólíkra sjónar­miða hafi rúman tíma til þess að koma sjónar­miðum sínum á framfæri. Viðmót og aðgengi að stjórn­sýslu verður bætt, markviss skref stigin til þess að opna bókhald ríkisins og upplýsinga­skylda opinberra aðila gagnvart almenningi efld. Ríkis­stjórnin mun í öllum störfum sínum hafa í heiðri góða stjórnar­hætti og gagnsæja stjórn­sýslu.

***

Heilbrigðismál

Örugg og góð heilbrigðis­þjónusta, óháð efnahag og þjóð­félagsstöðu, verður forgangsmál ríkis­stjórnarinnar. Mótuð verður heilbrigðis­stefna sem samhæfir og treystir heilbrigðis­þjónustuna, bætir lýðheilsu og stuðlar að heil­brigði lands­manna. 

Stefnt skal að því að minnka greiðslu­þátttöku einstaklinga í heilbrigðis­þjónustu. Uppbyggingu Land­spítalans við Hringbraut verður hraðað eins og kostur er og byggingu meðferðar­kjarna lokið árið 2023. Aðgengi að sérfræði­þjónustu skal bætt í hinum dreifðu byggðum, meðal annars með því að efla fjar­heilbrigðis­þjónustu.

Staða heilsu­gæslunnar sem fyrsta viðkomu­staðar sjúklinga verður styrkt. Aðgengi að geðheil­brigðis­þjónustu verður aukið, meðal annars með sálfræði­þjónustu á heilsu­gæslu og í framhalds­skólum. Stuðningur verður aukinn við börn foreldra með geðvanda og sálfræði­þjónusta felld undir trygginga­kerfi í áföngum.

Sérstakt átak verður gert til að stytta biðtíma eftir þjónustu í heilbrigðis­kerfinu.

Við stefnu­mótun og áætlana­gerð stjórn­valda verði gætt að áhrifum á heilsu og líðan íbúa. Dregið skal til framtíðar úr beinum og óbeinum kostnaði fyrir samfélagið allt með því að efla starf á sviði forvarna og lýðheilsu.

Aukinn þungi verður settur í uppbyggingu í öldrunar­þjónustu, sérstak­lega heima­hjúkrun og hjúkrunar­heimili. Unnið verður að fjölgun rýma í dagþjálfun aldraðra og biðtími styttur.

Almannatryggingar

Tryggt verði að allir sem verða fyrir skerðingu á starfs­getu vegna sjúkdóma eða slysa fái tækifæri til starfs­endur­hæfingar þegar læknis­fræðilegri meðferð og endur­hæfingu er lokið með það að markmiði að auka lífsgæði og samfélags­lega virkni. Tekið verði upp starfsgetumat og örorku­lífeyris­kerfið þannig gert sveigjanlegra til að ýta undir þátttöku á vinnu­markaði. Unnið verði að því að efla sjálf­stæði fólks með fötlun, bæði hvað varðar atvinnu­þátttöku og samgöngur. Ríkis­stjórnin mun styðja dyggilega við innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Notenda­stýrð persónuleg aðstoð (NPA) verði lögfest sem eitt af þjónustu­formum fólks með fötlun í samráði við sveitar­félög. Ávallt skal leitast við að fólk með fötlun hafi val um að stýra þjónustu sinni sjálft.

Lífeyris­aldur hækki í áföngum. Aldraðir geti nýtt starfs­getu sína og reynslu með því að sveigjanleg starfslok verði megin­regla. Frítekju­mark vegna atvinnu­tekna elli­lífeyrisþega verði hækkað.

Jafnrétti og fjölskyldumál

Jafnrétti í víðtækri merkingu er órjúfanlegur þáttur í réttlátu og sann­gjörnu samfélagi. Þar vegur jafnrétti á vinnu­markaði þungt. Í því skyni að sporna við launa­misrétti af völdum kynferðis verði áskilið að fyrirtæki með 25 starfs­menn eða fleiri taki upp árlega jafn­launavottun.

Kapp­kostað verði að þjónusta við börn og unglinga og fjöl­skyldur þeirra sé ætíð sem best og að íslenskt samfélag sé barnvænt. Samfélagið styðji ólíkar fjölskyldu­gerðir og hvetji til þess að foreldrar sem ekki búa saman ali upp börn sín í sátt. Réttur barna sé tryggður til að vera skráð í skiptri búsetu á tveimur lögheimilum og aðstaða umgengnis­foreldra og lögheimilis­foreldra jöfnuð.

Hámarks­fjárhæðir fæðingar­orlofs verða hækkaðar í öruggum skrefum á kjör­tímabilinu.

Menntamál

Traust menntun, óháð efnahag, er mikilvæg forsenda þess að hver og einn einstaklingur fái að blómstra. Mennta­kerfið gegnir lykil­hlutverki við að búa landsmenn undir þátttöku í lýðræðis­legu samfélagi og þekking, menning, listir, nýsköpun og vísindi skipta sköpum við uppbyggingu atvinnu­lífs og eflingu lífsgæða. Ríkis­stjórnin mun beita sér fyrir því að öll skólastig verði efld.

Styðja skal háskólana í að halda uppi gæðum og standast alþjóð­lega samkeppni um leið og samvinna og samhæfing íslenskra háskóla- og vísinda­stofnana verður aukin. Endur­skoða þarf reikni­líkön skóla­kerfisins með tilliti til mismun­andi kostnaðar og fjöl­breytts nemenda­hóps.

Huga þarf að þörfum grunn- og framhalds­skóla svo leggja megi frekari áherslu á kennslu í skapandi greinum, forritun, hönnun og verknámi, samhliða átaki í hefð­bundnum greinum. Fjarnáms­kennsla verði þróuð enn frekar til að mæta ólíkum þörfum og aðstæðum námsmanna. Efla þarf stuðning við móðurmáls­kennslu tvítyngdra nemenda, samhliða kennslu íslensku sem annars máls.

Tryggja þarf jafnræði nemenda og valfrelsi með því meðal annars að styrkja fjöl­breytt rekstrar­form og gera þarf skólum kleift að nýta tækni­nýjungar. Efla skal möguleika eldri nemenda sem ekki hafa lokið framhalds­skóla á hefð­bundnum tíma til að ljúka námi. Í því felst sameiginlegur ávinningur fyrir einstaklinginn og samfélagið allt sem felur í sér tækifæri til vald­eflingar og velferðar.

Tekið verði upp náms­styrkja­kerfi að norrænni fyrirmynd og lánveitingar LÍN miðaðar við fulla fram­færslu og hvatningu til náms­framvindu. Hugað verði að félags­legu hlutverki sjóðsins.

Nauðsynlegt er að efla kennara­menntun til að bregðast við fækkun kennara og minnkandi aðsókn í kennaranám fyrir leikskóla og grunn- og framhalds­skóla.

Vinna þarf markvisst að því að tryggja börnum leikskóla- eða dagvist þegar fæðingar­orlofi sleppir með sameiginlegu átaki ríkis og sveitar­félaga.

Menningarmál

Menning og skapandi greinar verða sífellt mikil­vægari hluti atvinnu­lífs og verðmæta­sköpunar í íslensku samfélagi. Ríkis­stjórnin mun leggja sig fram um að búa skapandi greinum vandaða umgjörð og gott starfs­umhverfi. Myndar­lega verður stutt við rann­sóknir og þróun og hlutverk samkeppnis­sjóða víkkað út til rannsókna á sviði skapandi greina. Endur­skoða þarf löggjöf í samræmi við þróun í tækni og tækja­búnaði til afritunar og dreifingar höfunda­réttar­varins efnis.

Hlúa þarf vel að menningar­arfleifð Íslendinga og mögu­leikum fólks til þátttöku í skapandi umhverfi auk þess sem lögð verður áhersla á að sem flestir fái notið menningar óháð efnahag eða búsetu.

Íslenska málsvæðið er lítið og stuðningur því nauðsyn­legur. Máltækni­verkefni verði haldið áfram í samstarfi við fræða­samfélagið og atvinnu­lífið. Ríkið færi útgáfu námsefnis í auknum mæli til sjálf­stæðra útgefenda sem gegna mikilvægu menningar­hlutverki með fjöl­breyttri útgáfu­starfsemi.

Íþrótta- og æskulýðs­starfi þarf að sinna af alúð, enda er framlag þess til lýðheilsu, forvarna og almennrar velsældar lands­manna dýrmætt. Mikilvægt er að styðja vel við bakið á íslensku afreks­íþrótta­fólki.

Lög og regla

Unnið skal að uppbyggingu löggæslu og sérstak­lega skal horft til aukins álags á landsvísu vegna fjölgunar ferða­manna og landamæra­eftirlit styrkt. Efla ber getu lögreglu og ákæru­valds til að bregðast við kynferðis­brota- og heimilis­ofbeldis­málum. Lögð verður áhersla á framkvæmd aðgerða­áætlunar um bætta verkferla vegna kynferðis­brota og lagt til við Alþingi að stafrænt kynferðis­ofbeldi verði skilgreint í hegningar­lögum. Þolendum mansals verði veitt fullnægjandi réttar­vernd og stuðningur. Til að draga úr endurkomu­tíðni í fangelsi skal horft til betrunar við stefnu­mótun í mála­flokknum.

Innflytjendur og útlendingamál

Í fjöl­menningar­samfélagi felst mannauður og fjöl­breytt reynsla sem er til þess fallin að auðga samskipti einstaklinga. Innflytjendum verði auðveldað að verða full­gildir og virkir þátt­takendur í íslensku samfélagi.

Vandað verði til reglu­bundinnar móttöku kvóta­flóttafólks og stefnt að því að taka á móti fleiri flótta­mönnum. Eftir sem áður verði fjármagn tryggt til neyðar­aðstoðar á vegum alþjóðlegra stofnana.

Styðja verður við innleiðingu nýrra útlendinga­laga til þess að tryggja virkni þeirra gagnvart viðeigandi stofnunum og þjónustu. Hafa skal mannúðar­sjónarmið að leiðar­ljósi við afgreiðslu umsókna um alþjóð­lega vernd, samanber skyldur í samræmi við flóttamanna­samning Sameinuðu þjóðanna, og afgreiðslu­tími styttur án þess að það bitni á vandaðri máls­meðferð.

Einfalda skal veitingu atvinnu­leyfa fyrir fólk utan Evrópska efnahags­svæðisins. Meta ber menntun þeirra sem flytjast til Íslands að verð­leikum og tryggja að aðbúnaður geri landið eftirsóknar­vert til framtíðar.

Efnahagsmál og stöðugleiki

Með aðhaldi í ríkis­rekstri, sölu eigna sem komust í eigu ríkis­sjóðs í kjölfar banka­hrunsins og niður­greiðslu ríkis­skulda verður áfram stutt við sterka stöðu í ríkis­fjármálum. Áhersla skal lögð á opið og gagnsætt söluferli eigna.

Ríkið nýti betur sameiginleg innkaup til að draga úr útgjöldum. Sett skulu tímasett markmið um betri rekstur og aukna fram­leiðni hjá hinu opinbera. Stefnt er að því að allar varanlegar útgjalda­ákvarðanir rúmist innan hagsveiflunnar. Langtíma­markmið er að hreinar skuldir ríkis­sjóðs verði engar innan tíu ára.

Stofna skal stöðugleika­sjóð sem haldi utan um arð af orku­auðlindum í eigu ríkis­sjóðs, tryggi komandi kynslóðum hlutdeild í ávinningi af sameiginlegum auðlindum og geti verið sveiflu­jafnandi fyrir efnahags­lífið.

Stöðug­leiki á vinnu­markaði er mikilvæg forsenda jafnvægis og vaxtar í efnahags­lífi. Einn vinnu­markaður með jöfnun lífeyris­réttinda og annarra almennra réttinda er lykil­atriði sem leiða mun til meira gagnsæis í kjara­málum. Ríkis­stjórnin mun styðja aðila vinnu­markaðarins í frekari umbótum á íslenska vinnu­markaðs­líkaninu að norrænni fyrirmynd sem drög hafa verið lögð að í svonefndu SALEK-samkomu­lagi.

Skattamál

Hlutverk skatt­kerfisins sem tekju­öflunar­tækis fyrir sameiginleg útgjöld verður styrkt og skatt­eftirlit eflt. Markvisst verður unnið gegn skatt­undanskotum, þar með talið í skatta­skjólum. Sann­gjarnt skatta­umhverfi dregur úr þörf fyrir ívilnanir og afslátt af opinberum gjöldum til að auka alþjóð­lega samkeppnis­hæfni fyrir­tækja.

Hyggja þarf sérstak­lega að skatta­umhverfi einyrkja og lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja með einföldun og lækkun trygginga­gjalds í huga.

Koma þarf á samræmdu kerfi grænna skatta sem fela í sér eðlilegar álögur á mengandi starfsemi og skapa jafnframt hvata til samdráttar í losun og til annarra mótvægis­aðgerða. Í því skyni verður áfram unnið að útfærslu skatta á ökutæki og eldsneyti.

Framtíð bankakerfisins

Til langs tíma litið er ekki ákjósanlegt að ríkið fari með meirihluta­eign í viðskipta­bönkum. Því er mikilvægt að minnka hlut ríkisins í varfærnum skrefum og víðtækri sátt. Áhersla verði lögð á opið og gagnsætt ferli þar sem gætt verður að sem mestri dreifingu eignar­halds. Í því augnamiði verði stefnt að því að almenningur geti fengið tiltekinn eignar­hlut afhentan endurgjalds­laust.

Sjávarútvegur

Núgildandi fiskveiði­stjórnar­kerfi hefur skilað miklum þjóð­hagslegum ávinningi. Mikil hagræðing hefur átt sér stað í sjávar­útvegi um leið og tekist hefur að tryggja sjálfbærni fiskveiða á Íslands­miðum. Þá hefur öryggi sjómanna aukist til muna.

Ríkis­stjórnin telur kosti aflamarks­kerfisins mikilvæga fyrir áfram­haldandi verðmæta­sköpun í sjávar­útvegi. Kannaðir verða kostir þess að í stað ótíma­bundinnar úthlutunar verði byggt á langtíma­samningum og samhliða verði unnið að mati á þeim kostum sem tækir eru, svo sem markaðs­tengingu, sérstöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leiðum, til að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind verði í eðlilegu hlutfalli við afrakstur veiðanna. Gæta þarf að langtíma­rekstrar­öryggi í greininni og stöðug­leika í byggðum.

Landbúnaður

Áfram skal lögð áhersla á fram­leiðslu heilnæmra, innlendra afurða í umhverfis­vænum og samkeppnis­hæfum land­búnaði. Velferð dýra verði í hávegum höfð. Skilvirkt eftirlit með dýrum og matvæla­framleiðslu verði tryggt, sem og gætt að neytenda­vernd. 

Breytingar á búvöru­samningi og búvöru­lögum skulu miða að því að leggja áherslu á aukna fram­leiðni, hagsmuni og valfrelsi neytenda og bænda og fjöl­breytt vöruúrval. Jafnframt verði horft til samkeppnis­stöðu land­búnaðar á Íslandi vegna legu landsins, veðurfars og takmarkaðra landgæða.

Hreinn land­búnaður, þegar litið er til afurða og umhverfis, og minni kolefnis­losun verður ásamt framan­greindum þáttum leiðar­ljósið í land­búnaðar­stefnu stjórn­valda. Leggja ber áherslu á að draga ekki úr hagkvæmni og styðja áfram við jafna stöðu bænda eins og kostur er.

Endur­skoðun búvöru­samnings verður grunnur að nýju samkomu­lagi við bændur sem miðað er við að ljúki eigi síðar en árið 2019. Verður af hálfu stjórn­valda hvatt til að vægi almennari stuðnings verði aukið, svo sem til jarð­ræktar, fjár­festingar, nýsköpunar, umhverfis­verndar og nýliðunar, en dregið úr sértækum búgreina­styrkjum. Endur­skoða þarf ráðstöfun innflutnings­kvóta og greina forsendur fyrir frávikum frá samkeppnis­lögum fyrir mjólkur­iðnaðinn og gera viðeigandi breytingar.

Ferðaþjónusta

Vægi ferða­þjónustunnar sem atvinnu­greinar endur­speglist í verkefnum stjórn­sýslunnar og langtíma­stefnumótun. Á næstu árum verður lögð áhersla á verkefni sem stuðla að samhæfðri stýringu ferðamála, áreiðanlegri gagna­öflun og rann­sóknum, náttúru­vernd, aukinni arðsemi greinarinnar, dreifingu ferða­manna um land allt og skynsamlegri gjaldtöku, t.d. með bílastæða­gjöldum.

Nýsköpun og þróun

Myndar­lega verður stutt við rann­sóknir og þróun og hlutverk samkeppnis­sjóða víkkað út til rannsókna á sviði skapandi greina. Leitað verður leiða til að auka aðgengi að vaxtar­fjármagni fyrir nýsköpunar- og hugvits­fyrirtæki, að erlendum mörkuðum og nauðsynlegri erlendri sérfræði­þekkingu.

Þannig verður byggt undir öflugt rannsókna- og þróunar­starf og samkeppnis­hæfni Íslands bætt.

Umhverfis- og auðlindamál

Nýting auðlinda til lands og sjávar verði ætíð í jafnvægi þannig að komandi kynslóðir megi njóta sömu gæða og þær sem nú byggja landið. Ríkis­stjórnin leggur áherslu á að fyrirtæki á Íslandi búi við aðstæður sem gefi þeim færi á að stunda fjöl­breyttan atvinnu­rekstur í sátt við umhverfið.

Ráðstöfun nýtingar­réttinda á auðlindum í opinberri eigu skal vera gagnsæ.

Ekki skal gengið á eignar- og nýtingar­rétt einstaklinga nema brýnir almannahags­munir krefjist þess. Ramma­áætlun um vernd og nýtingu náttúru­svæða verður lögð fyrir Alþingi til samþykktar sem framsýn og fagleg sáttar­gjörð milli ólíkra sjónar­miða um virkjun og vernd. Unnin verður sérstök áætlun um vernd miðhálendisins.

Ekki verður efnt til nýrra ívilnandi fjár­festingar­samninga vegna uppbyggingar mengandi stóriðju.

Eigenda­stefna verður gerð fyrir Lands­virkjun þar sem meðal annars verði markmið um að hámarka virði orkunnar og að fyrir­tækið starfi í góðri sátt við íslenska náttúru og landsmenn.

Gerð verður aðgerða­áætlun í loftslags­málum í samræmi við Parísar­samkomu­lagið. Áætlunin feli meðal annars í sér græna hvata, skógrækt, land­græðslu og orku­skipti í samgöngum. Unnið verður að eflingu græna hagkerfisins.

Samgöngumál

Álag á samgöngu­kerfið hefur vaxið mikið undan­farin ár, einkum vegna fjölgunar ferða­manna. Í því ljósi verður aukinn kraftur lagður í uppbyggingu í samgöngu­málum á öllum sviðum. Góðar samgöngur eru lykil­þáttur í að bæta búsetu­skilyrði og fjölga atvinnu­tækifærum um land allt.

Áhersla verður lögð á að bæta öryggi á vegum og stuðla að hagkvæmum og greiðum samgöngum um landið með því að nýta fjöl­breytni og möguleika samgöngu­kerfisins í heild.

Með því getur samgöngu­kerfið þjónað betur lands­mönnum öllum auk þess sem unnt er að ná betur markmiðum um að dreifa ferða­mönnum um landið og efla og styðja við atvinnu­sköpun sem víðast. Leitað verður fjöl­breyttari leiða til að fjármagna samgöngu­kerfið, meðal annars með samstarfs­fjármögnun þar sem það er hagkvæmt. Lögð verði áhersla á gott samstarf við sveitar­félög um allt land við uppbyggingu samgöngu­mannvirkja í samræmi við þarfir íbúa. Skoðaður verði möguleiki á samstarfi við sveitar­félögin á höfuð­borgar­svæðinu um „Borgar­línu“.

Ríkis­stjórnin mun beita sér fyrir lausn á áratuga­deilu um framtíð Reykja­víkur­flugvallar með því að stofna til formlegra viðræðna samgöngu­yfirvalda, heilbrigðis­yfirvalda, Reykja­víkurborgar, annarra sveitar­félaga og hagsmuna­aðila. Tekin verði ákvörðun um fyrir­liggjandi kosti að undan­gengnu mati og innviðir innanlands- og sjúkra­flugs þannig tryggðir til framtíðar.

Byggðamál

Ríkis­stjórnin leggur áherslu á mark­vissar aðgerðir til að treysta byggð í landinu. Húshitunar­kostnaður er íþyngjandi á köldum svæðum. Jöfnun búsetu­skilyrða með tilliti til almanna­gæða eins og raforku og fjar­skipta eru mikil­vægur þáttur í byggða­stefnu í stöðugri þróun. Í samvinnu við sveitar­félögin verði reglulega gerð úttekt á aðgengi lands­manna að þjónustu, meðal annars með það fyrir augum að jafna kostnað íbúa við að njóta lögbundinnar grunn­þjónustu. Sérstök höfuðborgar­stefna verði mótuð í samvinnu við Reykja­víkurborg og önnur sveitar­félög.

Lýðræðisleg aðkoma íbúa verði styrkt meðal annars í gegnum sóknar­áætlanir lands­hluta. Ljúka skal verk­efninu „Ísland ljóstengt“ á kjör­tímabilinu og leitast við að styrkja atvinnu­möguleika á veikari svæðum með betri fjarskipta­tengingum.

Gengis- og peningamál

Unnið verður að því að draga úr þeim miklu sveiflum sem verið hafa á gengi krónunnar. Slíkar sveiflur stuðla að óstöðug­leika og skýra að nokkru hvers vegna vextir eru að jafnaði hærri hér á landi en erlendis.

Forsendur peninga- og gjaldmiðils­stefnu Íslands verða endur­metnar, meðal annars í ljósi breytinga sem orðið hafa á efnahags­málum þjóðarinnar með stórsókn ferða­þjónustunnar og ört vaxandi gjaldeyris­forða. Ráðherra­nefnd mun hafa samráð við þing­flokka og starfa náið með Seðla­banka Íslands, aðilum vinnu­markaðarins og utan­aðkomandi sérfræðingum, eftir atvikum á vettvangi Þjóð­hagsráðs. Byggt verður á niður­stöðum skýrslu Seðla­banka Íslands frá árinu 2012 um valkosti Íslands í gjald­miðils- og gengis­málum. Þar var meðal annars lagt mat á framkvæmd verðbólgu­markmiðs, myntráð, fastgengis­stefnu og ýmsa aðra kosti. Niður­stöður vinnunnar liggi fyrir á fyrsta starfsári.

Losun hafta á fjármagns­flutninga helst í hendur við sterkari og heilbrigðari efnahags­stöðu landsins.

Eitt af forgangs­málum ríkis­stjórnarinnar er að vinna markvisst áfram að framgangi áætlunar um afnám fjármagns­hafta.

Utanríkismál

Grunn­stoðir utan­ríkisstefnu Íslands eru samstarf vestrænna ríkja, evrópskt og norrænt samstarf, aðild að Sameinuðu þjóðunum og NATO, varnar­samningurinn og friðar- og öryggis­samstarf, samanber nýsamþykkta þjóðar­öryggis­stefnu. Huga ber vandlega að samstarfi á norðurslóðum, ekki síst í Norður­skauts­ráðinu. Áfram verður lögð áhersla á viðskipta­frelsi og alþjóð­lega samvinnu á sviði öryggis- og þróunar­mála.

Ríkis­stjórnin mun byggja samstarf við Evrópu­sambandið á samningnum um Evrópska efnahags­svæðið. Fylgjast þarf vel með þróun Evrópu­sambandsins á næstu árum og gæta í hvívetna hagsmuna Íslands í samræmi við aðstæður hverju sinni. Sérstakan gaum þarf að gefa mögulegri úrsögn Bretlands úr sambandinu. Alþingi fylgist grannt með þróun mála í Evrópu og efli tengsl við systur­stofnanir í öðrum Evrópu­ríkjum.

Komi fram þingmál um þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið eru stjórnar­flokkarnir sammála um að greiða skuli atkvæði um málið og leiða það til lykta á Alþingi undir lok kjör­tímabilsins. Stjórnar­flokkarnir kunna að hafa ólíka afstöðu til málsins og virða það hver við annan.

Stjórnarskrá

Unnið verður að endur­skoðun stjórnar­skrár lýðveldisins Íslands á grund­velli þess viðamikla starfs sem átt hefur sér stað undan­farin ár. Ríkis­stjórnin mun bjóða öllum þing­flokkum á Alþingi að skipa fulltrúa í þingmanna­nefnd sem mun starfa með færustu sérfræðingum á sviði stjórn­skipunar að sem bestri sátt um tillögur að breytingum sem verði lagðar fram eigi síðar en árið 2019.

Sérstakt markmið er að breytinga­tillögur fái góða kynningu og umræðu fyrir fram­lagningu á Alþingi og vandaða þinglega meðferð sem eftir atvikum verði með opnum fundum. Hugað verði að breytingum á kjördæma­skipan með hliðsjón af þeirri reynslu sem fengist hefur af síðustu breytingum í þeim efnum. Kosninga­löggjöf verði yfirfarin samhliða því starfi með það fyrir augum að hún verði einfaldari og miði að meira jafnræði í atkvæða­vægi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ný ríkisstjórn

FréttirNý ríkisstjórn

Áralangar deilur innan fjöl­skyldu Ásmundar Einars hafa ratað til lögreglunnar

Margra ára deilur hafa geisað í fjöl­skyldu félagsmála­ráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, um jörðina Lambeyrar í Dölum. Ásmundur Einar bjó á jörðinni áður en hann settist á þing. Faðir hans, Daði Einarsson, rak bú á jörðinni sem varð gjald­þrota og missti hann í kjölfarið eignar­hlut sinn í jörðinni yfir til systkina sinna sjö. Bróðir Daða vænir feðgana um innbrot í íbúðarhús á Lambeyrum sem deilt er um.
PistillNý ríkisstjórn

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Hvaða „pólitísku sýn um örlög“ Íslands hafa Vinstri græn?

Stjórn­málaflokkar verða að hafa skýra sýn og stefnu um það hvernig land þeir vilja búa til og hvernig samfélag þeir vilja ekki að verði að veruleika. Með ákvörðun sinni um stjórnar­myndunar­viðræður við Sjálfstæðis­flokkinn er orðið alveg óljóst hvert Vinstri græn vilja stefna við mótun íslensks samfélags, segir Ingi Vilhjálmsson í pistli.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár