Skatturinn fær 140 milljónir til að láta slíta félögum sem skrá ekki raunverulega eigendur

Alls hafa tæplega 1.300 félög ekki uppfyllt skráningar­skyldu á raun­verulegum eigendum sínum. Hluti þeirra þarf að fara í skipta­meðferð, en kostnaður við hana er 350 þúsund krónur á hvern aðila. Sá kostnaður verður greiddur úr ríkis­sjóði.

Raunverulegir eigendur félaga sem starfa hérlendis áttu árum saman auðvelt með að felast. Það á ekki lengur við.
Raun­veru­legir eig­endur félaga sem starfa hér­lendis áttu árum saman auð­velt með að fel­ast. Það á ekki lengur við. Mynd: Pexels

Á milli umræðna um fjár­laga­frumvarp síðasta árs gerði meirihluti fjár­laganefndar tillögu um 139,5 milljón króna tíma­bundið framlag til Skattsins í eitt ár til að standa straum af kostnaði við hefð­bundna skipta­meðferð þeirra aðila sem sinna ekki skyldu sinni til skráningar á raun­verulegum eigendum.

Samkvæmt lögum um skráningu raun­verulegra eigenda getur ríkis­skattstjóri krafist skipta á skráningar­skyldum aðilum sinni þeir ekki skráningar­skyldu sinni.

Í áliti meirihlutans segir að alls hafi 1.287 skráningar­skyldir aðilar ekki uppfyllt skráningar­skyldu sína samkvæmt lögunum. „Gert er ráð fyrir að af þeim þurfi 378 aðilar að fara í hefð­bundna skipta­meðferð, og að kostnaðurinn við hana verði 350.000 kr. skipta­trygging á hvern aðila, sem samtals svarar til 132,2 m.kr. Auk þess þarf að greiða 19.000 kr. gjald [...] fyrir hvern aðila, sem gera samtals 7,2 m.kr. Heildar­kostnaður við að senda 378 aðila í hefð­bundna skipta­meðferð er því 139,5 m.kr.“

Látið ótalið árum saman að raunverulegu eignarhaldi var leynt

Árum saman var hægt að kom­­­ast upp með það að fela eign­­­ar­hald félaga, með ýmsum leið­­­um. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eign­­­ar­halds­­­­­fé­lög eða rekstr­­­ar­­­fé­lög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­­­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­­­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögn­­­um. Þannig var hægt að fela hver raun­veru­­­legur eig­andi félaga er.

Financial Action Task Force (FATF) gerði úttekt á Íslandi og skil­aði þeirri nið­­ur­­stöðu vorið 2018 að eft­ir­lit Íslands með pen­inga­þvætti fengi fall­ein­kunn. Í kjölfarið var Ísland sett á hinn svokallaða gráa lista samtak­anna fyrir að bregðast ekki nægilega vel við fjölmörgum athuga­semdum um brota­lamir í vörnum gegn peninga­þvætti.

Ein af athuga­­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­­legum eig­endum félaga á Ísland­i. Hér á landi var slíkt eftirlit aðallega á hendi banka, en í niður­stöðum úttektar Fjármála­eftirlitsins á getu þeirra til að verjast peninga­þvætti, sem var birt helgina fyrir jól 2019, kom fram að bankarnir hefði ekki metið upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur með sjálf­stæðum hætti.

Ísland var í eitt ár á gráa listanum

Lög sem festu í sessi kvaðir um að upp­­lýsa um raun­veru­­lega eig­endur þegar nýtt félag er stofn­að hafa verið í gildi frá því í lok ágúst 2019 og hægt hefur verið að senda þær upplýsingar með rafrænum hætti til Skattsins frá 1. desember það ár.

Upphaf­lega stóð til að gefa öðrum félögum, þeim sem voru þegar í rekstri, lengri frest en ákveðið var að flýta þeim mörkum þannig að öll félög ættu að skila inn upplýsingum um raun­verulega eigendur sína fyrir 1. mars 2020.

Ísland var tekið af gráa listanum í október 2020, ári eftir að landinu var bætt á hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár