Metfjórðungur hjá Amazon

Tekjur Amazon á síð­ustu þremur mán­uðum voru rúm­lega fjórum sinnum meiri en lands­fram­leiðsla Íslands í fyrra.

Jeff Bezos forstjóri Amazon
Jeff Bezos for­stjóri Amazon Mynd: EPA.

Net­versl­un­ar­fyr­ir­tækið Amazon jók tekjur sínar tölu­vert og skil­aði met­hagn­aði á síð­asta árs­fjórð­ungi, þrátt fyrir að hafa ráðið til sín 248 þús­und nýja starfs­menn til að bregð­ast við stór­auk­inni eft­ir­spurn. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu 13 þús­und millj­örðum króna og hagn­aður þess um 891 millj­arð króna.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­fjórð­ungs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt umfjöllun mið­ils­ins GeekWire um málið juk­ust útgjöld Amazon þó tölu­vert vegna heims­far­ald­urs­ins og snúa þau aðal­lega að auknum var­úð­ar­ráð­stöf­unum, hærri launa­greiðslum og aðgerðum til að auka flutn­ings­getu.

Fyr­ir­tækið hefur einnig ráðið til sín mikið af nýju starfs­fólki, en frá ára­mótum hefur stöðu­gildum innan fyr­ir­tæk­is­ins auk­ist um rúm­lega 400 þús­und. Þar af voru 248 þús­und nýir starfs­menn ráðnir á síð­asta árs­fjórð­ungi.

Samhliða mik­illi aukn­ingu í starf­semi Amazon hefur eft­ir­spurn eftir net­verslun auk­ist til muna í COVID-19 heims­far­aldr­inum. Þessi eft­ir­spurn­ar­aukn­ing hefur leitt til þess að starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins er nú helm­ingi meiri en hún var á sama tíma­bili í fyrra, auk þess sem tekjur fyr­ir­tæk­is­ins juk­ust um 37 pró­sent. Á nýliðnum árs­fjórð­ungi námu tekj­urnar rúmum 69 millj­örðum Banda­ríkja­dala og sam­svarar það rúmum 13 þús­und millj­örðum íslenskra króna, sem jafn­gildir fjór­faldri lands­fram­leiðslu Íslands í fyrra.

Þrátt fyrir góða rekstr­ar­nið­ur­stöðu lækk­aði hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins lít­il­lega eftir birt­ingu upp­gjörs­ins. Aftur á móti hefur trú fjár­festa á fyr­ir­tækið auk­ist mikið á und­an­förnum mán­uðum, en verð á hluta­bréfum þess hefur hækkað um 90 pró­sent frá byrjun heims­far­ald­urs­ins í mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár