Stoðir hagnast um 12,6 milljarða á hálfu ári

Hraðar verð­hækkanir á hluta­bréfum skráðra félaga hérlendis hafa reynst Stoðum vel síðustu mánuðina. Tekjur félagsins af fjár­festingum sínum námu tæpum 13 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins.

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða
Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Stoða Mynd: Síminn

Heildar­hagnaður Stoða á fyrri hluta ársins nam 12,6 milljörðum króna og er hann aðallega tilkominn vegna hækkunar á hlutabréfa­verði skráðra félaga í Kaup­höllinni. Þetta kemur fram í nýbirtu árshluta­uppgjöri félagsins.

Samkvæmt reikningnum keypti félagið eigin bréf fyrir 1,4 milljarða króna á tíma­bilinu. Heildar­virði eigin fjár þess hefur því hækkað um rúma 11 milljarða á tíma­bilinu og nemur nú tæpum 43 milljörðum króna.

Hlutabréf hækkað um helming í virði

Lang­stærsti hluti fjár­festinga Stoða, eða um 35 milljarðar króna af 39 milljörðum, eru í skráðum félögum hérlendis. Þær voru nær allar í þremur félögum - Arion banka, Kviku og Símanum, í lok júní. Stoðir er stærsti einstaki hluthafi Símans og Kviku banka, auk þess sem félagið er stærsti einka­fjár­festirinn í Arion banka.

Samkvæmt upplýsingum frá Keldunni hefur virði eignar­hlutar Stoða í þessum félögum hækkað um 12,7 milljarða það sem af er ári. Þar vega þyngst bréfin í Arion banka, sem hafa hækkað um tæp 83% frá ársbyrjun, en hlutabréf í Símanum og Kviku hafa einnig hækkað um 40 prósent á tíma­bilinu. Samanlagt hefur virði eignar­hluta Stoða í þessum félögum aukist um rúman helming frá ársbyrjun.

Hagnaður Stoða á síðasta árshelmingi er tæplega tvöfalt meiri en hagnaður félagsins á öllu síðasta ári. Leita þarf aftur til ársins 2014 til að finna sambærilegan hagnað á einu ári og á síðasta árshelmingi. Alls hefur eigið fé félagsins rúmlega þrefaldast á fjórum og hálfu ári, úr 12 milljörðum í 42 milljarða króna.

Keyptu í Bláa lóninu

Líkt og Kjarninn greindi frá í síðustu viku keyptu Stoðir hlut Helga Magnússonar, eiganda Frétta­blaðsins, í Bláa lóninu. Kaup­verðið var trúnaðarmál, en miðað við verðmöt hluthafa fyrir­tækisins má ætla að Helgi hafi selt hlutinn sinn á 2,3 til 2,5 milljarða króna.

Eignarhalds­félagið S121 ehf., sem er í eigu Jóns Sigurðs­sonar, forstjóra Stoða, ásamt Björgu Fenger eiginkonu hans og fjöl­skyldu hennar og öðrum fjár­festum með tengsl við gamla FL Group, á meirihluta í Stoðum. Á meðal annarra hluthafa eru hlutabréfa­sjóðir á vegum Stefnis, Íslands­banki, og Mótás hf., sem er í eigu Bergþórs Jónssonar og Fritz Hendrik Berndsen. Lárus Welding, fyrr­verandi banka­stjóri Glitnis, á einnig hlut í félaginu ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Margréti Ólafs­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár