Úttekt Sjúkratrygginga á starfsemi Heilsustofnunar í Hveragerði ekki lokið

Úttekt Sjúkra­trygg­inga Íslands á Heilsu­stofn­un­inni í Hvera­gerði hefur staðið yfir í ár, og er ekki lokið. Hún hefur taf­ist vegna COVID-19 og skipu­lags­breyt­inga. Stofn­unin fékk 875,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði árið 2019.

Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafa ekki lokið úttekt á rekstri og starf­semi Heilsu­stofn­unar Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands í Hvera­gerði, sem veitir marg­þætta end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu í starf­semi sinn­i.

Sjúkra­trygg­ingar Íslands köll­uðu eftir ýmsum gögnum frá Heilsu­stofn­un­inni í fyrra­haust, í kjöl­far þess að Stundin fjall­aði um háar greiðslur til Gunn­laugs K. Jóns­son­ar, for­manns rekstr­ar­stjórnar henn­ar. Kjarninn greindi frá því í jan­úar 2020 að við skoðun þeirra upp­lýs­inga hafi verið talið til­efni til að ráð­ast í heild­stæð­ari úttekt á starf­sem­inni, sem er að uppi­stöðu fjár­mögnum úr opin­berum sjóð­um.

Aðspurð um hvar sú úttekt stæði segir María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga, að það verk­efni hafi taf­ist vega COVID-19 og breyt­inga innan stofn­un­ar­innar. „Því er ekki lokið.“

Heil­stofnun end­ur­nýj­aði þjón­ustu­samn­ing sinn við Sjúkra­trygg­ingar Íslands fyrir ekki löngu. Hann tryggði 875,5 millj­óna króna fjár­veit­ingu til starf­sem­innar á árinu 2019. Sá samn­ing­ur, sem skrifað var undir eftir þriggja ára við­ræður og níu fram­leng­ingar fyrri þjón­ustu­samn­ings, felur í sér ákvæði um hvernig sé heim­ilt að ráð­stafa fé sem greitt er vegna samn­ings­ins. Ríkið greiðir alls um 67 pró­sent að heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði stofn­un­ar­innar en hitt sem upp á vantar er greitt með inn­heimtu sér­tekna, þar á meðal sala stofn­un­ar­innar á vörum og þjón­ustu til ann­arra.

Samkvæmt rekstr­ar­reikn­ingi Heilsu­stofn­unar Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands, sem er að finna í árs­reikn­ingi hennar, jókst kostn­aður við rekstur stjórnar félaga­sam­tak­anna um 43,3 pró­sent á árinu 2018, fór úr 12,8 millj­ónum króna í 18,4 millj­ónir króna. Í frétt Stund­ar­innar frá því í júlí 2019 kom fram að Gunn­laugur K. Jónsson, stjórn­ar­for­maður Heilsu­stofn­un­ar­innar, hefði fengið 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í greiðslur á því ári. 

Vildu ekki upplýsa um greiðslur

Kjarninn sendi síðla árs í fyrra fyr­ir­spurn til Brynjars Þórs­sonar, fram­kvæmda­stjóra rekstrar hjá Heilsu­stofnun, og spurði meðal ann­ars um auk­inn kostnað við rekstur stjórnar á árinu 2018.

Í svörum hans sagði meðal ann­ars að launa stjórnar stofn­un­ar­innar væru ákveðin af stjórn Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands, eig­anda Heilsu­stofn­un­ar­innar. Forseti þess félags er einnig stjórn­ar­for­maður Heilsu­stofn­un­ar­innar, Gunn­laugur K. Jónsson. Hann starfar einnig sem aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stofn­andi heilsu­stofn­un­ar­innar, Jónas Krist­jáns­son, var langafi hans.

Gunn­laugur tekur því sjálfur þátt í að ákveða laun sín. Auk þess er vara­for­seti Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags­ins, Geir Jón Þórisson, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi yfir­lög­reglu­þjónn, vara­maður í stjórn Heilsu­stofn­unar. Aðrir í stjórn eru Inga Dóra Sig­fús­dóttir pró­fessor og Þórir Har­alds­son lög­fræð­ingur. Þá situr Baldvin Jónsson verk­efna­stjóri með Geir Jóni í vara­stjórn.

Erfið samskipti

Í svörum fram­kvæmda­stjór­ans kom einnig fram að greiðslur fyrir stjórn­ar­setu í Heilsu­stofnun Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands á árinu 2018 hafi verið á á bil­inu 17 – 170 þús­und krónur á mán­uði. Í rekstr­ar­stjórn­inni sitja þrír aðal­menn auk þess þess sem tveir sitja í vara­stjórn. Jafnvel þótt allir fimm hefðu fengið hæstu mögu­leg mán­að­ar­laun allt árið 2018 þá hefði heild­ar­kostn­aður samt sem áður ekki verið nema 10,2 millj­ónir króna. Þær greiðslur útskýra því ekki þann kostn­að­ar­auka sem varð við rekstur stjórnar á árinu 2018.

Í svörum Brynjars við fyr­ir­spurn Kjarnans vegna þessa sagði að upp hefði komið „verk­efni sem stjórn þurfti að grípa inn í, umfram það sem áður hefur verið. Þar var meðal ann­ars um að ræða samn­inga­mál við Sjúkra­trygg­ingar Íslands og erfið sam­skipta­vanda­mál innan stofn­un­ar­innar þar sem meðal ann­arra aðgerða þurfti að kalla til aðstoð vinnu­staða­sál­fræð­ings. Þungi þeirrar vinnu var unnin af stjórn­ar­for­manni.“ Þá sagði Brynjar að vegna mis­taka hefðu 2,5 millj­ónir króna verið færðar á þennan lið í árs­reikn­ingi, en það hafi ekki komið í ljós fyrr en eftir gerð hans.

Trúnaður um stjórnarlaun

Kjarninn spurði stofn­un­ina einnig hvernig greiðslur skipt­ust niður á ein­stak­linga en fram­kvæmda­stjóri rekstrar neit­aði að svara þeirri fyr­ir­spurn og sagði greiðslur til ein­stak­linga trún­að­ar­mál.

Þegar spurn­ingin var ítrekuð, með vísun í að starf­semi Heilsu­stofn­unar væri að uppi­stöðu fjár­mögnuð með opin­beru fé, og óskað skýr­inga á því hvaða hags­munir krefð­ust þess að um stjórn­ar­laun ríkti trún­aður, þá barst ekk­ert svar.

Í árs­reikn­ingi Heil­stofn­un­ar­innar fyrir árið 2018 kom fram að kostn­aður vegna umsjónar og rekst­urs fast­eigna/lausa­fjár­muna hafi auk­ist um 64,2 pró­sent á árinu 2018 , úr 119,1 millj­ónum króna í 195,6 millj­ónir króna.

Brynjar svar­aði því til að á árinu 2018 hafi verið ráð­ist í „við­halds­fram­kvæmdir sem höfðu setið á hak­anum und­an­farin ár, m.a. skipti á þakjárni, end­ur­nýjun gól­f­efna og lag­fær­ing á her­bergja­álmum sem skýrir hækkun á liðnum milli ára.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár