Meira framboð nauðsynlegt til að aðgerðir Seðlabankans virki

Hagfræðingur hjá Íslands­banka segir aðgerðir Seðla­bankans til að bregðast við verð­hækkunum á íbúða­markaði og aukinni skuld­setningu heimila ekki enn hafa haft tilætluð áhrif. Til þess þurfi aukið framboð íbúða.

Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka.
Bergþóra Bald­urs­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Íslands­banka. Mynd: Aðsend/Íslandsbanki

Miklar verð­hækkanir umfram langtíma­þætti og aukin skuld­setning fyrstu kaupenda á íbúða­markaði er töluvert áhyggju­efni, að mati Bergþóru Baldurs­dóttur, hagfræðings hjá Íslands­banka. Samkvæmt henni er líklegt að aðgerðir Seðla­bankans til að bregðast við þessari þróun muni ekki hafa tilætluð áhrif fyrr en framboð íbúða verði aukið hérlendis.

Í grein sem Bergþóra skrifaði í síðasta tölublaði Vísbendingar fer Bergþóra yfir áhrif faraldursins á íbúða­markaðinn. Þar segir hún það vera mjög óvenjulegt að íbúðaverð hækki svo hratt á sama tíma og hagkerfi dregst saman, líkt og raunin var eftir að faraldurinn skall á. Sú þróun hafi hins vegar ekki verið einsdæmi fyrir Ísland, en íbúðaverð hækkaði einnig mjög hratt í öðrum OECD-ríkjum.

Þar, líkt og hérlendis, áttu aðgerðir stjórn­valda í byrjun faraldursins örvandi áhrif á íbúða­markaðinn, en Bergþóra segir hegðunar­breytingar vegna útbreiðslu veirunnar og aukna heima­vinnu einnig hafa stuðlað að verð­hækkunum. Vísbendingar séu þó uppi um að þessar breytingar, sem Bergþóra nefnir kórónu­áhrifin, séu að mestu að fjara út núna.

Verð­hækkanirnar hafa valdið því að íbúðaverð er nú vikið verulega frá þeim þáttum sem til lengri tíma eru taldir ráða þróun þess. Sömuleiðis nefnir Bergþóra að skuldir heimil­anna hafi aukist, þar sem nú þarf að taka lán fyrir stærri upphæðir til að eignast húsnæði. Sérstak­lega hafi skuldirnar, sem og greiðslu­byrði lána, aukist á meðal fyrstu kaupenda á húsnæðis­markaði.

Fleiri íbúðir og meiri fyrirsjáanleiki nauðsynlegur

„Þetta er töluvert áhyggju­efni,“ segir Bergþóra og bætir hún við að Seðla­bankinn hafi gripið til aðgerða til að bregðast við þessari þróun, líkt og hækkun stýri­vaxta, reglur um hámark veðsetningar­hlutfalls og reglur um hámarks­greiðslu­byrði á nýjum íbúða­lánum. Hins vegar hafi þessar aðgerðir ekki haft tilætluð áhrif á íbúða­markaðinn, en telja megi líklegt að auka þurfa framboð íbúða til þess að þær geri það.

Samkvæmt Bergþóru er erfitt fyrir íbúða­markaðinn að bregðast við sveiflum í eftir­spurn, þar sem að jafnaði tekur um tvö ár að byggja hverja íbúð. Þó sé bæði mögulegt og afar æskilegt að hafa meiri fyrirsjáanleika um stöðu og uppbyggingu nýrra íbúða á framboðs­hliðinni en sé núna, ásamt því að vera með skýra sýn á íbúða­þörfina næstu árin. „Það myndi í það minnsta draga úr líkum á jafn öfga­kenndum sveiflum og við höfum séð upp á síðkastið,“ bætir hún við.

Hægt er að lesa grein Bergþóru í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár