Helmingi færri viðvaranir vegna veðurs

Veður­stofan gaf út um helmingi færri viðvaranir vegna veðurs frá fyrsta degi vetrar og til sumar­dagsins fyrsta í ár en á sama tímabili í fyrra. Á nýliðnum vetri voru viðvar­an­irnar 189 talsins en óveðurs­veturinn 2019-2020 voru þær 354.

Gervitunglamynd tekin í apríl á síðasta ári. Falskir litir, eins og það er kallað, eru notaðir til að gera greinarmun á ís og snjó annars vegar og skýjum hins vegar.
Gervi­tungla­mynd tekin í apríl á síð­asta ári. Falskir litir, eins og það er kallað, eru not­aðir til að gera grein­ar­mun á ís og snjó ann­ars vegar og skýjum hins vegar. Mynd: MODIS/NASA

Á nýliðnum vetri gaf Veður­stofa Íslands út 189 viðvaranir vegna veðurs. Er þá miðað við tímabilið frá og með fyrsta vetrar­degi og til hins fyrsta sumardags samkvæmt gamla norræna tíma­talinu. Á sama tíma í fyrra voru viðvaranirnar mun fleiri eða 354. Þá voru því gefnar út tæplega 50 prósent fleiri viðvaranir en á þeim vetri sem nú er nýliðinn. Ef horft er til vetrarins 2018-2019 voru viðvaranirnar 211 talsins.

Í gögnum sem Veður­stofan tók saman fyrir Kjarnann kemur fram að flestar viðvaranir í vetur voru gefnar út á spásvæðinu Aust­fjörðum eða 23. Þar urðu gríðarlegar rigningar í desember sem ollu miklum skriðu­föllum á Seyðis­firði. Í fyrra voru þær 25, lítið eitt fleiri en þegar horft er til annarra landsvæða kemur meiri stað­bundinn munur í ljós. Þannig voru átján viðvaranir vegna veðurs gefna út á höfuð­borgar­svæðinu veturinn 2019-2020 en aðeins sex í ár.

Enn meiri munur sést á t.d. Suður­landi þar sem 38 viðvaranir voru gefnar út í fyrra en fimmtán í ár og á Norður­landi vestra voru þær 38 í fyrra en 22 í ár. Vestfirðirnir skera sig einnig úr en þar var gefin út 41 viðvörun í fyrra en 22 í ár. Undan­gengna þrjá vetur hafa flestar veður­viðvaranir einmitt verið gefnar út þar eða samtals 83. Suðaustur­land fylgir þar fast á eftir með 81 viðvörun.

Færir fjallvegir

[Veturinn sem við höfum nýverið kvatt var að mörgu leyti nokkuð sérstæður. Fyrst ber að nefna hina sögulegu úrkomu á Seyðis­firði sem kom á „raka­færibandi“ með austan­áttinni – eins og Einar Sveinbjörnsson veður­fræðingur og ritstjóri Bliku.is lýsti því í samtali við Kjarnann nýverið.

Þá voru fyrstu mánuðir ársins nær snjó­lausir í Reykjavík og víðar á suðvestanverðu landinu var snjólétt. Hellis­heiði var til dæmis aldrei ófær í fyrra­vetur en henni var lokað tólf sinnum í sex klukku­tíma eða lengur í senn í fyrra­vetur. Sömu sögu er að segja af Mosfells­heiðinni. Vega­gerðin þurfti aldrei að loka henni en hins vegar sextán sinnum í fyrra – illviðra­veturinn 2019-2020. Holta­vörðu­heiðinni var lokað sjö sinnum á nýliðnum vetri en sautján sinnum í fyrra og Steingríms­fjarðar­heiði var lokað fimmtán sinnum en í fyrra­vetur 35 sinnum.

En þegar austar dregur kemur upp önnur mynd. Vega­gerðin lokaði til að mynda Fjarðar­heiði tuttugu sinnum í vetur eða lítið eitt sjaldnar en í fyrra­vetur þegar hún var ófær 26 sinnum.

Svalt vor eftir mildan vetur

Kyrrlátir vordagar hafa einkennt veðrið suðvestanlands síðustu daga en engu að síður hefur verið kalt í veðri. Kalt loft liggur enda yfir landinu sem valdið hefur nætur­frosti, jafnvel um allt land. Horfurnar eru í svipuðum dúr: á miðvikudag, fimmtudag og föstudag spáir Veður­stofan áfram bjartviðri á Suður- og Vestur­landi en stöku éljum við suður­ströndina. Hiti verður frá frost­marki og upp í átta stig þegar litið er til alls landsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár