Bandaríkin nota fé og hótanir til að flytja fólk til Afríku

Roberto Mosquera er ættaður frá Kúbu en hefur búið í Flórída frá barnæsku og var stuðnings­maður Trump, þar til hann var hand­tekinn af ICE og sendur til Afríku. Í Afríku­ríkjum situr nú fjöldi manna í lagalegu svartholi eftir að Banda­ríkin sömdu við ríki um að taka við þeim gegn vegabréfs­áritunum og peningum.

Þetta byrjaði með hótunum Banda­ríkjanna um að banna vegabréfs­áritanir fyrir fjölda Afríku­ríkja. Síðan fóru stjórn­völd í Washington að dreifa innflytjendum frá öllum heims­hornum til álfunnar, oft með peninga­greiðslum til stjórn­valda.

Hinn 43 ára gamli Pheap Rom frá Kambódíu endaði í alræmdu öryggis­fangelsi í hinu smáa Esvatíní, sem er stjórnað með harðri hendi af Mswati III konungi. „Ég skildi ekki hvers vegna mér var vísað til Afríku þar sem ég er frá Kambódíu,“ sagði hann við AFP.

Aðrir voru sendir til Lýðstjórnar­lýðveldisins Kongó og Úganda. Enn aðrir hurfu af sjónar­sviðinu eftir að hafa verið sendir til Suður-Súdan þar sem stríð geisar.

Banda­ríkin nota bann við vegabréfs­áritunum og takmarkanir á Afríku­ríki til að þvinga þau til að taka við fólki frá öðrum löndum sem hluta af aðgerðum Donalds Trump gegn innflytjendum, sögðu tveir fyrr­verandi embættis­menn utan­ríkis­ráðuneytisins við AFP.

Lögfræðingar segja að brott­vísuðu fólki hafi verið kastað í …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár