Smávægilegar bætur eftir kynferðisbrot

Skóla­stúlka, sem maður á Norður­landi braut gegn kynferðis­lega, fær aðeins 75 þúsund krónur í bætur. Forstjóri Barna­verndar­stofu þurfti að greiða fimmfalt meira í miska­bætur vegna orða sem hann lét falla.

Héraðs­dómur Norður­lands eystra hefur dæmt mann sekan um kynferðis­brot gegn tveimur börnum en gerir manninum þó ekki refsingu. Maðurinn var annars vegar ákærður fyrir kynferðis­brot gegn barni, með því að hafa 18. desember 2013 skammt frá skóla einum á Norður­landi, tekið í hönd stúlku sem þá var 14 ára og látið hana fróa sér uns hann hafði sáðlát og hins vegar fyrir að hafa ári síðar sýnt annarri 14 ára stúlku kynferðis­lega áreitni í gegnum facebook, þar sem hann talaði fyrir því að þau tvö myndu hittast, honum til eigin fróunar og munnmaka.

Samkvæmt rann­sóknar­gögnum komu stúlkurnar tvær á lögreglustöð ásamt foreldrum sínum, þann 22. janúar 2014, og báru fram kæru á hendur ákærða fyrir kynferðis­brot. Í erindinu var til þess vísað að ákærði, sem væri skóla­bróðir þeirra, en árinu eldri, hefði um nokkurra vikna skeið stöðugt haft samskipti við þær og þá jafnan viðhaft kynferðis­lega orðræðu og tilburði.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár