Wall Street bónusarnir hækka - Jamie Dimon fær 3,2 milljarða

Banka­bónusar hjá stærstu bönkunum á Wall Street eru teknir að hækka nokkuð milli. Jamie Dimon, sem orðaður var við starf fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna, fær hærri bónus­greiðslu vegna 2016 en 2015.

Jamie Dimon, forstjóri JP Morgan, fékk samtals 28 milljónir Bandaríkja­dala í bónus­greiðslu vegna ársins 2016, eða sem nemur um 3,2 milljörðum króna. Þetta er hækkun á upp á ríflega tvær milljónir Bandaríkja­dala miðað við árið 2015. 

Stærstu hluti greiðslunnar er í formi hluta­bréfa, eða sem nemur um 22 milljónum Bandaríkja­dala. Um 6 milljónir Bandaríkja­dala eru síðan í reiðufé, eða sem nemur ríflega 700 milljónum króna, að því er segir í Wall Street Journal.

Dimon var orðaður við stöðu fjármála­ráðherra í starfs­liði Donalds Trumps, en gaf út yfir­lýsingu um að hann hefði ekki áhuga á slíkri stöðu. Hann sagðist tilbúinn til þess að aðstoða eins og kostur væri en hann væri ekki tilbúinn að hætta störfum fyrir JP Morgan.

Markaðs­virði JP Morgan nemur nú tæplega 300 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 34 þúsund milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár