Facebook sendir notendum skilaboð um gagnanotkun

Öll spjót beinast nú að Facebook.

Alls munu 87 milljónir notenda Facebook fá skilaboð frá fyrir­tækinu í dag, þar sem þeir verða upplýstir um að upplýsingum um þá hafi verið deilt með Cambridge Analytica, með hætti sem ekki samrýmdist skilmálum Facebook.

Þá mun Facebook senda öllum notendum, sem nú eru rúmlega tveir milljarðar um allan heim, skilaboð þar sem notendur verða upplýstir um hvernig upplýsingar um þá eru notaðar og hvaða forrit hafa aðgang að þeim, auk þess sem fjallað verður um skilamála Facebook.

Óhætt er að segja að Facebook standi í ströngu þessi misserin, en Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook kemur fyrir þingnefnd í Banda­ríkjunum 11. apríl, og mun þá svara spurningum sem snúa að persónu­vernd og hvernig fyrir­tækið hefur farið með gögn notenda.

Fyrir­tækið hefur mátt þola mikla gagnrýni, ekki síst eftir að það komst fram í dags­ljósið að Cambridge Analytica hafði komist með óeðli­legum hætti yfir upplýsingar um notendur, en fyrir­tækið starfið meðal annars náið með forseta­framboði Donalds Trumps árið 2016 og Brexit-hreyfingunni í Bretlandi sama ár.

Verð­miðinn á fyrir­tækinu hefur fallið um nærri 100 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem jafn­gildir um 10 þúsun milljörðum króna, frá því að aðferðir Cambridge Analytica voru opinberaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár