Segir hjálpsemi gagnvart flóttamönnum stefna Íslandi „á kaf í afleiðingar upplausnarinnar“

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins segir lítið rætt um „ástæður flótta­manna­sprengj­unnar“ á Íslandi. Davíð Oddsson, annar af rit­stjórum blaðs­ins, gerði Ísland að stuðn­ings­að­ila Íraks­stríðs­ins sem hrakti millj­ónir manna á flótta.

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins kvartar undan því að ekki sé rætt um „ástæður flótta­manna­sprengj­unnar“ á Íslandi. „Eingöngu kjána­leg yfir­boð og sam­keppni um það hver sé snjallastur við að finna greið­ustu leið­ina til að sökkva Íslend­ingum á kaf í afleið­ingar upp­lausn­ar­innar,“ segir í leið­ara blaðs­ins í dag. Þetta er í sam­ræmi við fyrri skrif blaðs­ins um mál­efni flótta­manna, en þann 19. ágúst síð­ast­lið­inn hvatti leið­ara­höf­undur stjórn­völd til að grípa til ráð­staf­ana í því skyni að tak­marka „straum flótta­manna og hæl­is­leit­enda“ til Íslands. Und­an­farna daga hafa hund­ruð flótta­manna drukknað á leið sinni yfir Mið­jarð­ar­haf.

Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins eru þeir Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til margra ára, og Haraldur Johann­es­sen, sem einnig er fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, útgáfu­fé­lags blaðs­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár