Eftirlit afhjúpað

Á annan tug fjölmiðla hófu í gær umfjöllun um gagnaleka sem virðist varpa ljósi á eftirlit ríkis­stjórna víða um heim með blaða­mönnum, aðgerða­sinnum og pólitískum andstæðingum með háþróuðum ísraelskum njósna­hugbúnaði sem engin leið er að verjast.

Eftirlitsmyndavélar mega sín lítils gegn þeim háþróaða tölvubúnaði sem fyrirtæki á borð við NSO Group selja til ríkisstjórna víða um heim til þess að hafa eftirlit með einstaklingum.
Eft­ir­lits­mynda­vélar mega sín lít­ils gegn þeim háþró­aða tölvu­bún­aði sem fyr­ir­tæki á borð við NSO Group selja til rík­is­stjórna víða um heim til þess að hafa eft­ir­lit með ein­stak­lingum. Mynd: Pexels

Hátt á annan tug fjölmiðla víða um heim hófu í gærmorgun að birta fréttir af því að háþróuðum njósna­búnaði frá ísraelska fyrir­tækinu NSO Group hafi verið beitt af hálfu ríkis­stjórna í allnokkrum löndum á undan­förnum árum til þess að njósna um ýmsa aðila, til dæmis blaðamenn, stjórn­málamenn og aðgerða­sinna.

Blaða­mennsku­samtökin Forbidden Stories, sem hafa starfsemi í Frakk­landi, komust ásamt mann­réttinda­samtökunum Amnesty International yfir mikið magn gagna, nánar tiltekið lista 50 þúsund síma­númera sem virðast hafa verið valin til eftirlits með Pegasus-njósnatólinu. Yfir 80 blaðamenn frá sextán fjöl­miðlum í ellefu löndum unnu að greiningu gagnanna og birta nú umfjallanir um það sem þau hafa komist að.

Vegna þessa leka fær almenningur nú innlit í varhuga­verða notkun stjórn­valda í ríkjum á borð við Aserbaídsjan, Bahrein, Kasakstan, Marokkó, Mexíkó, Rúanda, Sádi-Arabíu, Sameinuðu arabísku fursta­dæmunum, Indlandi og Ungverja­land á þessu njósnatóli, sem talið er eitt hið öflugasta sem til er í heiminum.

Pegasus-tólið sýkir síma þeirra sem er ráðist er gegn og færir þeim sem notar Pegasus um leið aðgang að öllum gögnum í símanum, auk mögu­leikans á því að kveikja á míkrafóni og myndavél símans og hlusta þannig á þann sem fyrir njósnunum verður, án þess að fórnar­lambið verði þess vart.

Sérfræðingar á vegum Amnesty International skoðuðu 67 síma sem voru tengdir síma­númerum á listanum og fundu merki um Pegasus-sýkingu eða merki um tilraun til þess að sýkja símana í alls 37 tilfellum. Ekkert fannst í þeim 30 símum sem eftir stóðu, en í fjölda tilfella var sá sem átti símanúmer á listanum búinn að skipta um síma.

Af þessari rannsókn er sú ályktun dregin að þeir sem eiga símanúmer á listanum hafi verið valdir sem skotmörk Pegasus-árása.

Fram hefur komið í umfjöllunum fjölmiðla að á listanum séu hátt í 200 blaðamenn víða um heim og einnig að minnsta kosti 50 manns sem eru náin núverandi forseta Mexíkó, Andrés Obrador, á þeim tíma er hann var í stjórnar­andstöðu í landinu. Þá hefur Rahul Gandhi, helsti keppinautur indverska forsætis­ráðherrans Narendra Modi komið fyrir á Pegasus-listanum. Í Ungverja­landi er ríkis­stjórn Viktors Orbán sökuð um að nota tæknina til þess að fylgjast með blaða­mönnum.

Einnig hefur Carine Kanimba, dóttir Paul Rusesabagina, mannsins sem varð innblástur kvik­myndarinnar Hótel Rúanda, orðið fyrir árásum með hugbúnaði frá NSO Group. Faðir hennar situr í fangelsi í Rúanda fyrir að hafa sett fram gagnrýni á ríkis­stjórn Paul Kagame.

Segja vöru sína selda í góðri trú

NSO Group, ísraelska fyrir­tækið sem þróar og selur njósna­hugbúnaðinn, hefur stað­fastlega neitað því að kannast nokkuð við þennan lista 50 þúsund síma­númera sem varð kveikjan að umfjöllun fjölmiðla. Fyrir­tækið segir vöru sína einungis selda í þeim tilgangi að hafa uppi á glæpa­mönnum og hryðju­verkamönnum.

Shalev Hulio, framkvæmda­stjóri NSO Group, sagði við bandaríska blaðið Washington Post, eftir að fjöl­miðlar hófu að birta fréttir í gær, að ásakanir um ólögmæta notkun njósnatólsins yrðu skoðaðar, en uppljóstranir fjölmiðla hafa orðið kveikja að umræðu um það hvort það þurfi að koma frekari böndum á starfsemi fyrir­tækja í eftirlits­iðnaðinum. Fyrir­tækið segist hafa hætt viðskiptum við tvo viðskipta­vini á undan­förnu ári vegna mann­réttinda­brota, en segir ekki frá því hvaða ríkið það eru.

Samkvæmt frétt Washington Post er NSO Group með 60 viðskipta­vini í 40 ríkjum, leyni­þjónustur, heri og löggæslu­stofnanir. Fyrir­tækið vill ekki segja frá því hverjir viðskipta­vinir þess eru.

Snowden kallar eftir hömlum á útbreiðslu njósnahugbúnaðar

Uppljóstranir fjölmiðla hafa nú þegar komið af stað umræðu um alþjóð­lega eftirlits­iðnaðinn og hættur sem honum fylgja.

Edward Snowden, sem árið 2013 ljóstraði upp um leynilegt fjölda­eftirlit bandarísku leyni­þjónustu­stofnunarinnar NSA, segir við breska blaðið Guardian að ríkis­stjórnir heims verði að setja á viðskipta­bann með njósna­búnað eða horfast í augu við heim þar sem ekki einn einasti snjall­sími er öruggur frá innbrotum hakkara á vegum ríkja.

Snowden segir að rafrænt eftirlit með einstaklingum sé orðið of einfalt með tilkomu háþróaðs njósna­búnaðar eins og Pegasus. Er hann var spurður af blaða­manni Guardian hvað fólk gæti gert til að verja sig gagnvart slíkum árásum líkti hann ógninni við kjarnorku­vopn. Það væri lítil von til varnar.

„Það eru ákveðnir geirar sem engin vörn finnst við og það er þess vegna sem við reynum að hefta útbreiðslu þessarar tækni. Við leyfum ekki frjálsa verslun með kjarnorku­vopn,“ segir Snowden.

Á vef Forbidden Stories er hægt að nálgast tengla á allar umfjallanir sem hafa birst til þessa um Pegasus-verkefnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár