10 milljarða kaup Frjálsa á eignum Stefnis vegna lagabreytingar

Nýjar laga­heim­ildir var ástæða kaupa Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins á hlutum Stefnis fyrr í vik­unni, að sögn fram­kvæmda­stjóra Frjálsa.

Nýleg lög gefa lífeyrissjóðnum auknar fjárfestingaheimildir.
Nýleg lög gefa líf­eyr­is­sjóðnum auknar fjár­fest­inga­heim­ildir. Mynd: Pexels.com

Arnaldur Loftsson, fram­kvæmda­stjóri Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins segir í sam­tali við Kjarnann að kaup sjóðs­ins á hlutum í eigu Stefnis hafi verið vegna breyt­inga á fjár­fest­ing­ar­heim­ildum líf­eyr­is­sjóða.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að Frjálsi hafi tekið tíu millj­arða úr stýr­ingu frá líf­eyr­is­sjóðnum Stefni fyrr í vik­unni. Við það hafi stærsti hluta­bréfa­sjóður lands­ins, Stefnir ÍS 15, lækkað um fjórð­ung. Alls náðu kaupin til eigna­hluta í 10 skráðum félögum í Kaup­höll­inni.

Þann 1. Júlí síð­ast­lið­inn tóku í gildi ný lög um fjár­fest­ing­ar­heim­ildir líf­eyr­is­sjóða. Með þeim er líf­eyr­is­sjóðum gefið aukið svig­rúm til fjár­fest­inga í skráðum og óskráðum bréfum auk skulda­bréfa. Einnig gerir laga­setn­ingin þeim kleift að taka þátt í við­skiptum á lána­mark­aði með verð­bréf.

Arnaldur segir að Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi leyst um 10 millj­arða króna úr hluta­bréfa­sjóðnum Stefnis vegna umræddra laga­breyt­inga. Á móti inn­lausn afhentu báðir hluta­bréfa­sjóðir Stefnis Frjálsa reiðufé og und­ir­liggj­andi verð­bréf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár