Starmer boðar 300 milljarða punda fjárfestingu í varnarmálum

Fjár­festingar­áætlun bresku ríkis­stjórnarinnar í varnar­málum felur meðal annars í sér meira en 5 milljarða punda fjár­festingu í drónum og sjálf­stýrðum kerfa á næstu fjórum árum. Þjóðar­öryggi er efnahagslegt öryggi,“ segir Keir Starmer, fráfar­andi forsætis­ráðherra Bretlands.

Á förum
Á förum Fjár­fest­inga­á­ætl­unin er eitt af síð­ustu verkum Keir Starmer í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Hann til­kynnti afsögn sína í síð­ustu viku. Verka­manna­flokk­ur­inn heldur þó völdum og verður nýr for­sæt­is­ráð­herra val­inn af þing­mönnum flokks­ins á næst­unni. Mynd: Carl Court / POOL / AFP

Keir Starmer, fráfar­andi forsætis­ráðherra Bretlands, tilkynnti í dag að Bretland myndi verja tæplega 300 milljörðum punda, jafnvirði 51 þúsund milljarða króna, á næstu fjórum árum til að nútíma­væða herafla sinn í ljósi vaxandi ógna.

Starmer, sem búist er við að láti af embætti í næsta mánuði eftir að hafa misst stuðning þingmanna Verkamanna­flokksins, tilkynnti að heildar­fjár­veitingar til varnar­mála myndu aukast um 15 milljarða punda á næstu fjórum árum. Hækkunin nemur jafnvirði 2.574 milljarða íslenskra króna.

Þetta kom fram þegar hann kynnti langþráða 10 ára fjár­festingar­áætlun sína í varnar­málum.

Sótt annars staðar í kerfið

„Á síðasta ári tók ég þá ákvörðun í þágu þjóðar­hagsmuna að endur­forgangs­raða útgjöldum til þróunar­aðstoðar í þágu varnar­mála og náði fram mestu aukningu í útgjöldum til varnar­mála frá lokum kalda stríðsins,“ sagði Starmer í ræðu.

„Það var rétt ákvörðun því heimurinn hefur breyst. Þjóðar­öryggi er efnahagslegt öryggi.“

„Í dag aukum …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár