Colin Powell kallar Trump „þjóðarskömm“ og „úrhrak“

Tölvu­póstur Colin Powells var hakkaður og hafa fjölmargir póstar hans verið birtir á DCLeaks.com.

Colin Powell, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna og herforingi, lýsir fram­bjóðanda flokksins, Donald J. Trump, sem „þjóðar­skömm“ í tölvu­póstum sem hafa lekið út. Powell hefur staðfest við NBC frétta­veituna að tölvu­póstarnir séu hans, og þetta sé lítið brot af því sem tölvu­hakkararnir komust yfir.

Pósturinn þar sem fyrrnefnd lýsing kemur fyrir var sendur 17. júní á þessu ári til blaða­mannsins Emily Miller, sem áður var aðstoðar­maður hans.

Powell segir í póstinum, sem hafa verið birtir á vefnum DCLeaks: „Hann höfðar til verstu engl­anna í Re­públi­kana­flokkn­um og fá­tæks hvíts fólks,“ skrifaði Powell. Hann lýsir Trump jafnframt sem „úrhraki“ á alþjóð­legum vettvangi sem grafi undan tiltrú fólks á Banda­ríkin.

DCLeaks vefurinn hefur að undan­förnu birtar mikið af gögnum sem tölvu­hakkarar hafa komist yfir, meðal annars gögn um viðskipta­veldi fjár­festisins George Soros.

Í tölvu­árásinni komust hakkarar yfir um 30 þúsund tölvu­pósta Powells, og hafa þeir ekki allir verið birtir opinber­lega ennþá. Búast má við því að póstarnir muni valda titringi á næstunni, en fram hefur komið í fjöl­miðlum hér vestan hafs að Powell, sem var utan­ríkis­ráðherra á árunum 2001 til 2005, hafi ráðlagt Hillary Clinton um það hvernig best væri að halda samskiptum í tölvu­póstum persónu­legum.

Kosið verður í Banda­ríkjunum 8. nóvember og er kosninga­baráttan milli Hillary og Trump farin að harðna verulega. Hillary er nú að jafna sig af lungna­bólgu, en segist ætla að koma tvíefld til leiks í loka­sprettinn.

Hillary mælist nú í flestum könnunum með meira fylgi en Trump, en hann segist ætla að eyða miklum fjárhæðum í auglýsingar á síðustu vikunum til að efla sína baráttu sem mest. Hann hefur hvergi slegið af í órökstuddum yfir­lýsingum sínum, og kallaði meðal annars Janet Yellen, seðla­bankastjóra, „vitleysing“ á dögunum, án þess að skýra það frekar með öðru en því, að hann væri ósammála vaxta­stefnu seðla­bankans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár