Björg ráðin nýr framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins

Björg Bjarna­dóttir tekur við af Flosa Eiríks­syni sem framkvæmda­stjóri Starfs­greina­sambandsins 1. október. Alls þrettán manns sóttust eftir stöðunni.

Björg Bjarnadóttir tekur við starfi framkvæmdastjóra SGS 1. október.
Björg Bjarna­dóttir tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra SGS 1. októ­ber. Mynd: Af vef SGS

Björg Bjarna­dóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmda­stjóri Starfs­greina­sambands Íslands og mun hún hefja störf 1. október næst­komandi. Hún tekur við starfinu af Flosa Eiríks­syni, sem lætur brátt af störfum. Alls bárust 13 umsóknir um starfið.

Í tilkynningu á vef SGS segir að Björg hafi starfað sem skrif­stofustjóri hjá einu af aðildar­félögum SGS í um 13 ár og þekki því innviði í starfsemi stéttar­félaga mjög vel.

Frá 2018 hefur hún starfað við kennslu í Fjölbrauta­skóla Vestur­lands ásamt því að gegna stöðu forstöðu­manns bókasafns og sjá um skjala­vörslu fyrir skólann. Hún hefur einnig starfað sem VIRK-ráðgjafi fyrir öll stéttar­félögin á Akranesi og var einn af fyrstu ráðgjöfum sjóðsins og tók þátt í þróun og uppbyggingu þjónustunnar frá upphafi.

Að auki hefur hún setið sem aðal- og varamaður í stjórn Festu lífeyris­sjóðs og átt einnig sæti í verðlags­nefnd búvara á árunum 2015-2017. Þá hefur Björg sinnt hinum ýmsu félags- og sjálfboða­liðastörfum, m.a. umsjón með vikulegu barna­starfi hjá Rauða krossinum.

Samkvæmt tilkynningunni frá SGS hefur Björg lokið meistara­námi í upplýsinga­fræði (MIS-gráða), ásamt því að vera með viðbótar­diplóma í opinberri stjórn­sýslu, kennslu­réttindi á meistara­stigi og starfs­réttindi sem grunn- og framhalds­skóla­kennari. Hún er auk þess með BA-próf í íslensku og stúdents­próf af félagsfræði­braut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár