Dýragarðurinn opnar á ný eftir áralöng átök og ofbeldi

Þegar dýra­garðinum í Trípólí var lokað vegna endurbóta sá enginn fyrir 17 ára bið eftir opnun. Við tóku hins vegar blóðug átök í borginni, sem áttu sér meðal annars stað á svæðinu í kringum dýra­garðinn. Starfs­menn þurftu að flýja og dýr voru illa farin eftir átökin. Dæmi voru um að dýr væru skotin eða þeim stolið. Gleði ríkti því á meðal almennings þegar hægt var að opna dýra­garðinn á ný.

Þegar dýra­garðinum í Trípólí var lokað tíma­bundið vegna endurbóta sá enginn fyrir að við tæki 17 ára bið eftir opnun, vegna þess að dýra­garðurinn, líkt og borgin sjálf, flæktist inn í ofbeldi grimmra átaka í Líbíu.

Það var ekki fyrr en nú, á tímum brothætts friðar, sem garðurinn gat skilið við blóðuga fortíð og opnað dyr sínar fyrir almenningi á ný. Opnunin veitir íbúum sjaldgæfa tilbreytingu í borg sem ber djúp ör margra ára stríðs­átaka. Á fyrsta degi Eid al-Fitr-hátíðarinnar í mars biðu hundruð fjöl­skyldna í röðum til að komast inn þrátt fyrir úrhellis­rigningu. Spari­klædd börn horfðu opinmynnt á birni, ljón, bengaltígrisdýr og hvítar oryx-antílópur með löng horn.

Einnig voru til sýnis stað­bundnar tegundir, þar á meðal eyðimerkur­refir, rhim-gasellur og waddan, eða barbar­ísauðfé — geitalík dýr með bogin horn, upprunnin í Waddan-héraði í Líbíu. Allar þessar innlendu tegundir eru í hættu vegna veiði­þjófnaðar.

Við þetta tækifæri sagðist Mohammed Erbeh, 44 ára, vera „afar ánægður“ með að dýra­garðurinn hefði opnað á ný, þar sem hann heimsótti hann ásamt þremur börnum sínum. „Loksins er til staður þar sem hægt er að fara með börnin í útivist, en þau hafa verið svipt slíkum tækifærum í nærri 20 ár,“ sagði hann.

Ljón drepin

Dýra­garðurinn í Trípólí var byggður árið 1985 og nær yfir 45 hektara svæði í höfuðborg Líbíu.

Honum var lokað árið 2009 vegna endurbóta á valdatíma fyrr­verandi leiðtoga Líbíu, Muammar Gaddafi, innan við tveimur árum áður en uppreisn, sem studd var af hernaðar­bandalaginu NATO, steypti honum af stóli og leiddi til dauða hans. Upp frá því hefur Norður-Afríku­ríkið verið fast í greipum ofbeldis og endur­tekinna átaka, með stuttum og óstöðugum hléum. Landið er enn klofið á milli ríkis­stjórnarinnar í Trípólí, sem nýtur viðurkenningar Sameinuðu þjóðanna, og andstæðrar stjórnar í austur­hlutanum, sem er studd af herforingjanum Khalifa Haftar.

Dýra­garðurinn er stað­settur nálægt Bab al-Aziziya, víggirtu svæði Gaddafis, og árið 2011 neyddust starfs­menn dýra­garðsins til að flýja bardaga. Dýrin sluppu ekki heldur undan ofbeldinu. Mörg þeirra urðu fyrir áfalli vegna hávaða frá skothríð og sprengingum. Kúlur þutu um garðinn og lágu víða á jörðinni það ár. Hjálpar­samtök sendu mat og lyf fyrir yfirgefin dýr, en dýra­garðurinn var lokaður í mörg ár og undir stjórn vopnaðra sveita. Á tímabili var jafnvel móttöku­miðstöð fyrir farand­fólk í nágrenni hans.

Á síðasta ári blossuðu átök aftur upp milli hersveita sem studdu ríkis­stjórnina og vopnaðrar sveitar sem hafði yfirráð á svæðinu. Vopnaðir menn skutu á dýrin og drápu tugi þeirra, þar á meðal ljón, að sögn starfs­manns dýra­garðsins sem vildi ekki láta nafns síns getið. Tugum annarra dýra, þar á meðal sjaldgæfra tegunda, var stolið, bætti hann við. Af um 1.100 dýrum sem áður voru í garðinum voru aðeins um 700 eftir þegar hann var opnaður á ný. Stjórn­endur vinna nú að því að byggja stofninn upp aftur.

Myndir og myndbönd sem dreift var á netinu á sínum tíma sýndu ljón sem höfðu verið skotin og vopnaða menn flytja gasellur burt á vörubílum.

Undankomuleið

Um árabil forðuðust yfirvöld svæðið sem dýra­garðurinn stendur á, vegna þess að það var frá árinu 2011 undir stjórn vopnaðrar sveitar Abdelghani „Gheniwa“ al-Kikli, sem hefur verið sakaður um mansal, pyntingar og aftökur fanga. Eftir dauða Kikli á síðasta ári fannst fjölda­gröf í nágrenni dýra­garðsins.

Það var ekki fyrr en síðasta sumar að ríkis­stjórnin í Trípólí náði aftur yfirráðum á svæðinu, sem gerði yfir­völdum kleift að hefja vinnu við að uppfæra garðinn samkvæmt alþjóð­legum stöðlum og endurnýja aðstöðuna fyrir dýrin.

Einn af gestum dýra­garðsins sem AFP ræddi við var Abdullah Aoun, 62 ára flugmaður. Hann sagðist vera stoltur af þeim árangri sem náðst hefur og lýsti nýopnuðum dýra­garðinum sem kjörnum stað til að flýja „áhyggjur af kreppum og fjárhags­vanda“.

„Þetta er önnur hlið á landinu okkar, langt frá svartsýni og ágreiningi,“ sagði hann.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár