Karlar hjóla oftar en konur og upplifa meira öryggi

70 prósent hjólreiða­manna hafa aðgengi að hjóli og samgöngu­samningur er marktækur hvati fyrir hjól­reiðum.

Karlar hjóla oftar en konur og upplifa meira öryggi þegar þeir hjóla en konur, að því er kemur fram í frétta­tilkynningu Reykja­víkurborgar um nýja rannsókn á öryggis­upplifun hjólreiða­fólks í borginni. Sigrún Birna Sigurðar­dóttir, Cand. Psych & PhD í samgöngu- og umhverfis­sálfræði, vann rann­sóknina.

Í rann­sókninni segir að 70 prósent þátt­takenda hafi aðgengi að hjóli, samgöngu­samningur sé marktækur hvati fyrir hjól­reiðum og að 15,7 prósent þátt­takenda telji að veður hafi frekar eða mjög lítil áhrif á ákvörðun um að hjóla.

Samkvæmt niður­stöðum rann­sóknarinnar hjóla karlar oftar en konur. 33 prósent karla hjóla vikulega eða oftar en einungis 24 prósent kvenna. Samgöngu­samningur er marktækur hvati fyrir hjól­reiðum samkvæmt niður­stöðunum, þar sem 48 prósent sem hjóla vikulega eða oftar eru með samgöngu­samning.

Hjólið er aðal­ferðamáti einungis átta prósent þátt­takenda þó 70 prósent hafi aðgengi að hjóli. 48 prósent hjólreiða­manna segja veður hafa frekar eða mjög mikil áhrif á hjól­reiðar en 15,7 prósent sögðu það hafa frekar eða mjög lítil áhrif. 91 prósent hjólreiða­manna nota hjálm og 47 prósent nota sýndar­leikafatnað.

Á myndinni fyrir ofan sést hlutfall aldurs þeirra sem hjóla í sumarfærð. Af þeim sem hjóla aldrei voru allir á aldurs­bilinu 18 til 29 ára. Af þeim sem hjóla einu sinni til þrisvar sinnum í mánuði var helmingur á aldrinum 50 til 59 ára og hinn helmingurinn 60 til 69 ára. Af þeim sem hjóla þrisvar til fjórum sinnum í viku og þeim sem hjóla fimm til sjö sinnum í viku eru flestir á aldrinum 40 til 59 ára.

54 prósent hjólreiða­manna telja sig frekar eða mjög örugga en 12 prósent frekar eða mjög óörugga. Óöryggi var ástæða 18 prósent þeirra svarenda að hafa valið sér anna ferðamáta. Óöryggi hefur enn fremur oftar áhrif á val á ferðamáta kvenna.

Í ljós kemur að mun fleiri karlar hjóla fimm til sjö skipti í viku, það er um 51 prósent karla á móti 28,6 prósentum kvenna. Konur hjóla hins vegar oftar ef það er eitt til þrjú skipti í mánuði, eitt til tvö skipti í viku eða þrjú til fjögur skipti í viku. 10,7 prósent kvenna hjóla hins vegar sjaldan eða aldrei á móti 5,7 prósentum karla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár