Hjólað inn í nýja tíma

Fólk hefur í auknum mæli nýtt sér aðra sam­göngu­máta en hinn hefð­bundna og valið að hjóla þangað sem för­inni er heitið. Hugarfar gagn­vart hjól­reiðum hefur breyst mikið á und­an­förnum árum og enn kepp­ist fólk við að kynna þennan nýstár­lega lífsmáta.

Ákveðin menning hefur skapast í kringum hjólreiðar á Íslandi. Þessi mynd er tekin á svokölluðu Tweed Ride Reykjavík í fyrra.
Ákveðin menn­ing hefur skap­ast í kringum hjól­reiðar á Íslandi. Þessi mynd er tekin á svoköll­uðu Tweed Ride Reykja­vík í fyrra. Mynd: hjolreidar.is

Hjól­reiða­menn­ing á Íslandi hefur breyst mikið und­an­farin ár og margir lands­menn hafa tekið upp á því að fara að hjóla. Smám saman hefur fólk upp­götvað að hægt sé, þrátt fyrir breyti­legt veður, að nýta þennan ferða­máta enda sé hann ódýr­ari, heilsu­sam­legri og umhverf­is­vænni en margur annar.

Umræður um hjól­reiða­menn­ingu skjóta iðu­lega upp koll­inum þar sem kostir og gallar hjól­reiða eru reif­aðir. Og vegna þess að þetta er til­tölu­lega nýr lífstílsmáti hér á landi þá er skilj­an­legt að ákveðnir vaxta­verkir láti á sér kræla. Hjól­reiða­menn hafa stundum verið ásak­aðir um að hjóla of hratt eða óvar­lega á göngu­stígum Reykja­vík­ur­borgar. Þeir hjól­reiða­menn sem Kjarninn tal­aði við voru sam­mála um að það væri mik­il­vægt fyrir hjól­reiða­menn að bera virð­ingu fyrir gang­andi veg­far­endum og að auð­vitað yrði sú virð­ing að vera gagn­kvæm.

Gaman að kynnast borginni með öðrum hætti

Sesselja Trausta­dóttir, fram­kvæmda­stýra Hjóla­færni á Íslandi, byrj­aði að hjóla af ein­hverri alvöru fyrir 10 árum þegar hún tók fyrst þátt í Hjólað í vinn­una. Hún vann sem grunn­skóla­kenn­ari og segir hún að það hafi hentað ein­stak­lega vel að hjóla í vinn­una þetta vorið. Hún hjólaði einnig út um alla Reykja­vík­ur­borg og kynnt­ist hún henni alveg upp á nýtt. Eftir þessa reynslu seg­ist hún hafa kom­ist á bragðið og í dag séu hjól­reiðar og allt sem þeim teng­ist ástríða hennar og vinna.

Við þessa fyrstu hjól­reiða­á­skorun þá útbjó hún hjóla­leik fyrir vinnu­fé­laga sína. Hann virk­aði þannig að þegar fólk sem hjólaði í vinn­una kom við á ákveðnum stöðum þá fékk það lím­miða að launum. Sesselja segir að þetta hafi gef­ist vel og verið skemmti­legt. Hún segir að á þessum tíma hafi hún stöðugt verið að koma sjálfri sér á óvart og að hún hafi séð miklar fram­farir. Hún hafi til dæmis allt í einu getað farið upp brekkur sem hún hafi ekki ráðið við áður og þegar hún hjólaði í fyrsta skiptið 60 kíló­metra þá hringdi hún stolt í eig­in­mann sinn til að segja honum frá því. „Þetta var líka skemmti­leg kynn­ing á borg­inni en það er gaman að þekkja hana með þessum hætti,“ segir hún og hlær. Hún segir að Reykja­vík­ur­svæðið sé algjör­lega frá­bært til hjól­reiða.

Vinnur nú við að opna augu fólks fyrir hjólreiðum

Upp úr þessu byrj­aði Sesselja að vinna að mál­efnum tengdum hjól­reiðum. Hún segir að hjartað sé sam­ofið ýmis konar gras­rót­ar­starfi og að það sé ein­stak­lega gaman að opna augu fólks fyrir hjól­reiðum.

Sesselja vinnur nú að ýmis konar verk­efnum sem stuðla að bættri hjól­reiða­menn­ingu. Meðal þess­ara verk­efna er Hjólað óháð aldri sem byggir á því að rjúfa ein­angrun og efla lífs­gleði íbúa á hjúkr­un­ar­heim­ilum með því að gefa þeim kost á að fara út að hjóla. Hún segir að það sé einkar gef­andi verk­efni og að það sé hreint stór­kost­legt að finna hvað almenn­ingur sýni því mik­inn áhuga.

Hún telur að þrátt fyrir miklar breyt­ingar á hugs­un­ar­hætti og við­horfum til hjól­reiða síð­ustu ár mætti gera enn betur. Hún telur enn fremur að þessar miklu breyt­ingar á hjól­reiða­menn­ingu á Íslandi megi að hluta til rekja til hruns­ins. Eftir efna­hag­skrísu hafi margir lands­menn selt bíl­inn og leitað ann­arra leiða til að koma sér á milli staða. Hún segir að mik­ill umsnún­ingur hafi orðið á hjóla­venjum lands­manna frá árinu 2008.

Rafmagnshjólið kemur sterkt inn

Sjálf seg­ist Sesselja byrjuð að nota raf­magns­hjól en hún ákvað fyrir um ári síðan að prófa það. Hún segir að það sé góður kostur fyrir Reykja­vík­inga en nú getur hún hjólað allar brekkur eins og ekk­ert sé. „Þú veist ekki fyrr en þú hefur prófað hvað raf­magns­hjólið gerir fyrir þig. Það frá­bæra við raf­magns­hjólið er að það er hægt að fara hratt en það er líka svo auð­velt að stjórna hrað­anum,“ segir hún. Hún hvetur Íslend­inga til að prófa raf­magns­hjólið og hún segir að það sé gott tæki til að nota til jákvæðrar stefnu­mót­unar. Það sé hægt að deila rými með gang­andi veg­far­endur en það sé einmitt svaka­lega mik­il­vægt að sýna til­lit­semi á gang­stétt­unum þannig að sam­vinna milli hópanna gangi vel. „Við verðum að vera með­vit­að­ari um umhverfið í kringum okkur,“ segir hún og bætir við að hjól­reiða­menn verði að taka þetta alvar­lega. Fólk læri líka betur á umferð­ina með því að nota mis­mun­andi ferða­máta.

Sesselju er mikið í mun að lands­menn allir horfi til fjöl­breyttra sam­göngu­venja. Hún segir að það sé allra hagur að virkja sam­göngur og ráða­menn heims­ins horfi til hjól­reiða sem hluta af lausn sam­gangna í þétt­býli.

„Við eigum að horfa til fram­tíðar og taka ábyrgð á vistsporum okkar. Við skuldum fram­tíð okkar og barn­anna okkar slíka breytni,“ segir hún. Hún telur að bíla­um­ferð­inni sé sýnt allt of mikið umburð­ar­lyndi. Hún vill að stjórn­völd taki til sinna ráða og geri opin­bera hjól­reiða­á­ætlun fyrir íslenskt sam­fé­lag. Út frá henni væri auð­veld­ara fyrir sveita­fé­lög að gera slíkt hið sama og svo myndu fyr­ir­tæki fylgja í kjöl­farið.

Vill breyta ímynd hjólreiða

Páll Guð­jóns­son er rit­stjóri síð­unnar Hjól­reiðar.is en á síð­unni segir að til­gangur hennar sé að efla hjól­reiðar á Íslandi með því að auka öryggi með fræðslu, hvetja til hjól­reiða með því að kynna kost­ina, eyða mýtum og síðan en ekki síst að breyta ímynd hjól­reiða.

Páll er búinn að vera við­rið­inn hjól­reiða­hreyf­ing­una í tvo ára­tugi en hann segir að við­horf til hjól­reiða hafi breyst mikið á þessum árum. Hann segir að þau sem vinni að mál­efn­unum séu hægt og síg­andi að sá fræjum með öllu því ötula starfi sem unnið er og að hægt sé að sjá upp­sker­una nú þegar. „Fólk hélt að við værum skrítin til að byrja með en núna er allt annað við­horf,“ bætir hann við.

Það þarf ekki að selja bílinn

Páll segir að á vef­síð­unni séu allar þær upp­lýs­ingar sem byrj­endur þurfi á að halda. Það sé ekki verið að leggja áherslu á þjálf­un­arplön eða svo­leiðis upp­lýs­ingum. Mark­miðið sé að upp­lýs­ing­arnar séu aðgengi­legar og sé þetta til­raun til að ná til nýliða sem finn­ast hjól­reiðar spenn­andi. „Þetta er ekki flókið. Þú sest upp á hjólið og hjólar af stað. Það þarf engan sér­stakan búnað eða und­ir­bún­ing,“ segir Páll. Hann bendir einnig á að það þurfi ekki að fara með hjól­reiðar „alla leið“, það þurfi ekki að selja bíl­inn eða eyða miklum pen­ingum í búnað. Þau sem standa fyrir síð­unni vilji normalísera hjól­reiðar sem venju­legan ferða­máta. Þau vilji benda fólki á val­kost­inn og hvetja til að prufa.

Páll segir að þau byggi hug­mynda­fræði sína á jákvæðni. Þau vilji ekki gera lítið úr öðrum sam­göngu­máta. Þau séu líka með lausnir fyrir fatl­aða og aldr­aða og lumi á alls kyns skemmti­legum ferða­sögum. Hann tekur í sama streng og Sesselja í sam­bandi við raf­magns­hjólin. Hann segir að mikið hafi breyst með auk­inni notkun þeirra, með þeim sé hægt að hjóla lengri vega­lengdir og að brekk­urnar hætti að vera vanda­mál. Mögu­leik­arnir séu því margir og allir geti fundið eitt­hvað fyrir sinn snúð.

Lands­sam­tök hjól­reiða­manna hafa starfað í yfir 20 ár. Meg­in­mark­mið sam­tak­anna er að efla hjól­reiðar, kom­ast yfir mýtu um þær og ná til nýs fólks. Einnig ber að nefna Íslenska fjalla­hjóla­klúbb­inn sem sam­anstendur af breiðum hópi fólks sem hefur hjól­reiða­menn­ingu að áhuga­máli, vill auka veg reið­hjóls­ins sem sam­göngu­tækis og vinnur að bættri aðstöðu hjól­reiða­fólks til sam­gangna. Mark­miðið, eins og fram kemur á heima­síðu þeirra, er að fá sem flesta til að fara ferða sinna á hjóli og kom­ast í náið sam­band við móður nátt­úru, takast á við hana, skilja hana og virða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár