10 staðreyndir um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu

Umferð gang­andi og hjólandi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur lík­ast til aldrei verið meiri og ljóst að umhverf­is­vænn ferða­máti heillar æ fleiri. Kjarninn tók saman nokkrar stað­reyndir um sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Sumarið hefur nú náð hápunkti sínum að aflok­inni versl­un­ar­manna­helg­inni auk þess sem Hinsegin dagar fara nú fram um helg­ina og þá stytt­ist í Menn­ing­arnótt í Reykja­vík. Umferð gang­andi og hjólandi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur lík­ast til aldrei verið meiri og ljóst að umhverf­is­vænn ferða­máti heillar æ fleiri. Kjarninn tók saman nokkrar stað­reyndir um sam­göngur.

1.

Heild­ar­fjöldi skráðra öku­tækja á Íslandi í árs­lok 2017 var 366.888 en þar af voru 294.482 öku­tæki í umferð á þeim tíma. Að með­al­tali voru því fleiri en eitt öku­tæki skráð á hvern Íslend­ing 2017. Alls eru sam­tals rúm­lega 170 þús­und bif­reiðar hvers kyns skráðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fólks­bílar eru ríf­lega 150 þús­und tals­ins á sama svæði.

2.

Þrátt fyrir mikla aukn­ingu í hjól­reiðum var síð­asta ár metár í bíla­um­ferð. Umferð hefur auk­ist sam­fara efna­hags­upp­sveifl­unni en bif­reiða­eign og akstur hefur vaxið með fólks­fjölgun og auknum kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna heim­il­anna. Þá fara ferða­menn stóran hluta sinna ferða á bif­reiðum og hefur hlutur þeirra í umferð­inni farið vax­andi á síð­ustu árum. Mikil umferð­ar­aukn­ing var á öllum helstu stofnæðum höf­uð­borg­ar­innar á síð­ast­liðnu ári. Var aukn­ingin svo dæmi sé tekið 8 pró­sent á milli áranna 2016 og 2017 á Reykja­nes­braut, Hafn­ar­fjarð­ar­vegi og Vest­ur­lands­vegi sam­kvæmt grein­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins. Alls fóru að með­al­tali 162 þús­und öku­tæki á sól­ar­hring um þessar leiðir. Jókst dags­um­ferðin um ríf­lega 12 þús­und öku­tæki á milli ára. Kemur aukn­ingin í kjöl­far met­vaxtar á árinu 2016 þegar aukn­ingin mæld­ist 7 pró­sent.

3.

Reykja­vík og Nikósía, höf­uð­borg Kýpurs, eru einu höf­uð­borg­irnar í Evrópu þar sem hlut­fall þeirra sem ferð­ast með einka­bíl til vinnu er yfir 75 pró­sent. Þá er hlut­fall þeirra sem nota almenn­ings­sam­göngur lang­minnst í þessum tveimur borgum, auk Vallettu, höf­uð­borg Möltu sam­kvæmt skýrslu Hagstofu Evr­ópu­sam­bands­ins frá síð­asta ári. Þar voru sam­göngu­mátar í Evr­ópu­borgum meðal ann­ars bornir saman. Reykja­vík skar sig nokkuð úr, en alls fara 83 pró­sent borg­ar­búa akandi í vinn­una.

4.

Borg­ar­lína er eitt af því sem sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hyggj­ast nýta til að snúa þess­ari þróun við og fjölga þeim sem not­ast við aðra ferða­máta en einka­bíl­inn. Borg­ar­línan, sem flestir þekkja núorðið, er sam­kvæmt heima­síðu Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nýtt og afkasta­mikið kerfi almenn­ings­sam­gangna sem sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­búa nú í sam­ein­ingu. Þar er því haldið fram að hún sé for­senda þess að sveit­ar­fé­lögin geti þétt byggð í mið­kjörnum og við lín­una og vaxið án þess að brjóta nýtt land undir byggð utan skil­greindra vaxt­ar­marka. Með borg­ar­línu verði hægt að byggja hag­kvæm­ari rekstr­ar­ein­ingar með að byggja þétt­ari byggð til dæmis með því að hafa færri bíla­stæði.

5.

Minnst er á borg­ar­línu stutt­lega í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórn­ar. Þar seg­ir: „Áfram þarf að byggja upp almenn­ings­sam­göngur um land allt og stutt verður við borg­ar­línu í sam­starfi við Sam­tök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u.“ Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur hins vegar lýst yfir ákveðnum efa­semdum um verk­efnið, aðal­lega í ljósi fyr­ir­sjá­an­legs kostn­aðar við það. Hann sagði til dæmis á Alþingi í vor að hvorki ríkið né Reykja­vík­ur­borg og önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefðu sýnt fram á að þau hefðu úr þeim fjár­munum að spila sem þyrfti til þess að hrinda borg­ar­línu í fram­kvæmd.

6.

Meiri­hluti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur, sem sam­anstendur af Sam­fylk­ingu, Pírötum, Viðreisn og Vinstri grænum, ætlar að vinna áfram að borg­ar­línu, ljúka skipu­lags­vinnu vegna fyrsta áfanga hennar og hefja fram­kvæmdir form­lega á kjör­tíma­bil­inu. Í meiri­hluta­sátt­mála flokk­anna segir einnig að samn­ingum verði náð við ríkið um lín­una og aðrar nauð­syn­legar fjár­fest­ingar til að létta á umferð­inni og breyta ferða­venjum. Þá ætlar flokk­arnir einnig að bæta strætó og gefa 12 ára og yngri frítt í vagn­ana og auka tíðni á helstu stofn­leiðum í 7,5 mín á háanna­tímum. Einnig verður sett ný bíla­stæða­stefna og gjald­skyld svæði stækkuð og gjald­skyldu­tími lengdur. Upp­bygg­ingu hjóla­stíga verður hraðað og skoðað að leggja sér­stakar hjóla­hrað­brautir. Að end­ingu ætlar meiri­hlut­inn að liðka fyrir notkun raf­magns­reið­hjóla, meðal ann­ars með upp­setn­ingu hleðslu­stöðva.

7.

Í hjól­reiða­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar til árs­ins 2020, sem er ætlað að auka hlut­deild hjól­reiða í öllum ferðum í borg­inni, kemur fram að mark­miðið sé að hlut­fall hjólandi í öllum ferðum verði að minnsta kosti 6,5 pró­sent árið 2020 og hlut­deild hjólandi og gang­andi verði að minnsta kosti 26 pró­sent á sama tíma. Í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur 2010-2030 eru sett fram þau mark­mið að árið 2030 verði hlut­deild hjólandi minnst 8 pró­sent og að hlut­deild hjólandi og gang­andi verði 30 pró­sent árið 2030. Hjóla­ferðum í Reykja­vík hefur fjölgað svo mikið und­an­farin ár, að það nálg­ast mark­mið sem sett var í aðal­skipu­lag­inu fyrir árið 2030, og er nú komið upp í 7 pró­sent.

8.

Karlar hjóla meira en konur, en í mæl­ingum Reykja­vík­ur­borgar sem birtar voru í mars voru 9 pró­sent ferða karl­manna farnar á hjóli en 5 pró­sent kvenna. Hafði þá hjólandi ferðum kvenna fjölgað frá því í mæl­ingum fyrir þremur árum. Hins vegar höfðu ferðir karla staðið í stað. Stærsti hjóla­hóp­ur­inn er síðan 6 til 12 ára börn.

9.

Tíma­bil göngugatna í Reykja­vík stend­ur yfir frá 1. maí til 1. októ­ber. Mark­mið þess­ara tak­mark­ana er að efla mann­líf og versl­un í mið­borg­inni. Öll um­ferð bif­reiða er óheim­il á svæð­inu nema á ákveðnum tímum fyrir vöru­losun. Þessi til­högun hefur ekki verið óum­deild. Nokkrir kaup­menn á svæð­inu hafa til að mynda kvartað yfir minnk­andi sölu sem þeir rekja til lokan­anna.

10.

Í könnun Maskínu frá því í fyrra kom fram að hátt í 52 pró­sent Íslend­inga eru ánægð með sum­ar­götur í Reykja­vík en slétt 22 pró­sent eru óánægð með þær. Þó nokkur munur var á svörum eftir aldri en eftir því sem fólk er yngra er það ánægð­ara með sum­ar­göt­urnar. Ekki var munur á við­horfi eftir búsetu eða tekjum ein­stak­linga en hins vegar tölu­verður munur eftir því hvaða stjórn­mála­flokk fólk sagð­ist myndi kjósa. Þannig voru mun færri kjós­endur Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks­ins ánægðir með sum­ar­götur á meðan ánægjan var tölu­vert meiri meðal kjós­enda Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata og Við­reisnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár