Kaþólskur prestur sem misnotaði börn handtekinn í Kosovo

Breska rík­is­út­varpið segir að alræmdur barn­a­níð­ingur, kaþ­ólski prest­ur­inn Lawrance Soper, hafi verið hand­tek­inn og sé í haldi lög­reglu.

Lawrance Soper, sem prestur um ára­bil í kaþ­ólskum söfn­uði í Abbey í Englandi, var hand­tek­inn í Kosovo í vik­unni. Soper er grun­aður um að hafa mis­notað börn í söfn­uði sínum, og bíða hans ákærur í sex aðskildum málum.

Frá þessu var greint á vef BBC, breska rík­is­út­varps­ins, í dag.

Soper hefur verið á flótta frá lög­regla hóf rann­sókn á málum hans. Kaþólska kirkjan í Bret­landi hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að hylma yfir glæpi hans og grípa ekki til aðgerða á meðan hann var starf­andi prestur, þrátt fyrir fjöl­margar kvart­anir og að lokum lög­reglu­rann­sókn.

Brotin voru fram á árunum 1991 til 2000 meðal ann­ars í St. Benedict einka­skól­anum í London, sam­kvæmt umfjöllun BBC, en þar kenndi Soper.

Hann var hand­tek­inn árið 2010 en var sleppt eftir að trygg­ing­ar­gjald var greitt. Hann var boð­aður aftur í yfir­heyrslu hjá lög­reglu í mars 2011, en lét ekki sjá sig, og hefur verið eft­ir­lýstur í allri Evrópu frá árinu 2012.

Lög­reglan í Kosovo, nánar til­tekið í borg­inni Pristina, segir að Lawrance hafi verið þekktur undir nafn­inu Andrew, og haldið mest til á Ítalíu. Hans bíða núna rétt­ar­höld, en jafn­vel er talið að fleiri mál en þau sex sem eru fullrann­sökuð bíði þess að verða tekin fyrir.

Kaþólska kirkjan hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að hylma yfir kyn­ferð­is­brot presta innan kaþ­ólskra safn­aða gegn börnum um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár