Hanna Björg býður sig fram til formennsku í KÍ

Hanna Björg Vilhjálms­dóttir, kennari og forkona jafnréttis­nefndar Kennara­sambands Íslands, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í sambandinu.

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir.
Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir. Mynd: hannarakelphotography

„Ef kennarar veita mér traust og þá er ég fús, viljug og áhugasöm um að leiða kennara­stéttina næstu fjögur árin,“ skrifar Hanna Björg Vilhjálms­dóttir, kennari í Borgar­holtsskóla og forkona jafnréttis­nefndar Kennara­sambandsins, á Facebook-síðu sína í dag þar sem hún tilkynnir um þá ákvörðun sína að bjóða sig fram til formanns sambandsins.

Ragnar Þór Pétursson, formaður til fjögurra ára, ætlar ekki að gefa kost á sér til áfram­haldandi formennsku. Það tilkynnti hann á föstudag og sagðist ætla að snúa aftur til kennslu.

Hanna Björg hefur vakið athygli í samfélaginu síðustu vikur eftir pistil sem hún skrifaði á Vísi í ágúst undir fyrir­sögninni: Um KSÍ og kven­fyrirlitningu. Í kjölfar hans hófst mikil umræða í samfélaginu um ásakanir um kynferðis­ofbeldi og áreitni liðsmanna karla­lands­liðsins í fótbolta og viðbrögð KSÍ við þeim.

„Ég hef starfað með forystu framhalds­skóla­kennara lengur en ég man – farið í gegnum samninga, ósætti, sigra og ósigra,“ skrifar Hanna Björg í framboðs­tilkynningu sinni. „Sú reynsla og þekking á Kennara­sambandinu er dýrmæt og ég tel að hún muni nýtast mér í frekara starf innan sambandsins og í þágu kennara. Allir kennarar á öllum skóla­stigum eru mikil­vægir og ég mun sannarlega gera mér far um að vera málsvari allra.

Frá því ég hóf störf sem kennari hef ég haft áhuga og metnað fyrir bæði menntun í landinu og kjara­málum stéttarinnar. Það verður leiðar­stef mitt ef kennarar treysta mér til forystu. Grund­völlur kraft­mikillar kjara­baráttu er sterk sjálfs­mynd stéttarinnar og rík fagvitund. Kennara­starfið er mikil­vægasta starfið.“

Frestur til að bjóða sig fram til formanns Kennara­sambandsins rennur út 4. október.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár