Ellilífeyrir er enn tekjutengdur

Staðreynda­vaktin rýnir í orð Bjarna Benedikts­sonar um að „fyllilega“ hafi verið staðið að afnámi allrar skerðingar elli­lífeyris.

Hér á eftir birt­ist svar í Stað­reynda­vakt­inni. Svarið kemur frá stað­reynda­vakt Vís­inda­vefs­ins, og má einnig finna á vef Vís­inda­vefs­ins.

Uppruna­lega spurningin hljóðaði svona, frá Félagi eldri borgara: FEB vill spyrja fyrir hönd félags­manna sinna hvort sú full­yrðing fjármála- og efnahags­ráðherra um að „fyllilega“ hafi verið staðið við afnám allra skerðinga hjá eldri borgurum líkt og lofað var og kom fram í bréfi Bjarna til eldri borgara við lok kosninga­baráttunnar árið 2013?

Spurningin vísaði því til nokkurra liða í bréfi Bjarna Benedikts­sonar frá 22. apríl 2013. Hér er að finna svar við einum lið í bréfinu; um tekju­tengingu elli­lífeyris.

Samkvæmt heimasíðu Tryggingar­stofnunar hefur tekju­tenging elli­lífeyris­greiðslna breyst með eftir­farandi hætti:

Með lögum nr. 86/2013 var frítekju­mark atvinnu­tekna gagnvart tekju­tryggingu og heimilis­uppbót hækkað úr 40.000 krónum á mánuði í 109.600 krónur á mánuði.

Þann 1. janúar 2014 voru frítekjumörk vegna lífeyris­sjóðs­tekna elli­lífeyrisþega gagnvart tekju­tryggingu og heimilis­uppbót hækkuð úr 15.800 krónur í 21.600 krónur á mánuði. Þá var skerðingar­hlutfall tekna lækkað úr 45% í 38,35%. Samtímis var skerðingarhutfall heimilis­uppbótar lækkað úr 13,26% í 11,30%.

Þann 1. janúar 2015 var frítekju­mark lífeyris­tekna gagnvart tekju­tryggingu og heimilis­uppbót hækkað í 27.400 krónur á mánuði.

Þegar aðrar tekjur en atvinnu­tekjur og fjármagns­tekjur að viðbættum atvinnu­tekjum og fjármagns­tekjum, að frádregnum 8.220 krónum ná samtals 214.604 krónum á mánuði skerðist grunn­lífeyrir frá Trygginga­stofnun um 25% af tekju­upphæðinni. Sé ofan­greint tekju­viðmið umfram 374.050 krónur á mánuði falla grunn­lífeyris­greiðslur niður.

Trygginga­stofnun dregur breytingar sem hafa orðið á skerðingar­hlutföllum og frítekjumörkum gagnvart elli­lífeyri, tekju­tryggingu og heimilis­uppbót saman með eftir­farandi hætti í tölvupóst­samskiptum við ritstjóra Staðreynda­vaktarinnar:

Elli­líf­eyrirJúní 2013Júlí 2013Janúar 2014Janúar 2015
Skerð­ing­ar­hlut­fall25,00%25,00%25,00%25,00%
Almennt frí­tekju­mark214.602214.602214.602214.602
Sértækt frí­tekju­mark fjár­magnstekna8.2208.2208.2208.220
Tekju­skerð­ing vegna líf­eyr­is­sjóðs­teknaJáNeiNeiNei
Tekju­trygg­ingJúní 2013Júlí 2013Janúar 2014Janúar 2015
Skerð­ing­ar­hlut­fall45,00%45,00%38,35%38,35%
Sértækt frí­tekju­mark líf­eyr­is­sjóðs­tekna15.80015.80021.60027.400
Sértækt frí­tekju­mark atvinnu­tekna40.000109.600109.600109.600
Sértækt frí­tekju­mark fjár­magnstekna8.2208.2208.2208.220
Heim­il­is­upp­bótJúní 2013Júlí 2013Janúar 2014Janúar 2015
Skerð­ing­ar­hlut­fall13,26%13,26%11,30%11,30%
Sértækt frí­tekju­mark líf­eyr­is­sjóðs­tekna15.80015.80021.60027.400
Sértækt frí­tekju­mark atvinnu­tekna40.000109.600109.600109.600
Sértækt frí­tekju­mark fjár­magnstekna8.2208.2208.2208.220

Samkvæmt ofan­greindu skerðist grunn­lífeyrir lífeyris­trygginga ef atvinnu­tekjur og/eða fjármagns­tekjur fara umfram ákveðið frítekju­mark. Tekju­trygging og heimilis­uppbót skerðist ef lífeyris­sjóðs­tekjur, atvinnu­tekjur og/eða fjármagns­tekjur fara yfir ákveðin mörk. Tekju­tenging elli­lífeyris er því hluti af lífeyris­kerfi Tryggingar­stofnunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár