„Málefnið er svo stórt að það er stærra en tungumálið og öll okkar fyrri reynsla“

Rithöf­und­urinn Andri Snær Magnason gefur út nýja bók fyrir jól en hún fjallar um stóru breyt­ing­arnar sem vísinda­menn sjá fyrir sér á næstu 100 árum hvað varðar eðli alls vatns á jörðinni.

Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason Mynd: Birgir Þór Harðarson

Von er á nýrri bók frá Andra Snæ Magnasyni sem mun koma út í byrjun október næst­komandi. Nýja bókin heitir Um tímann og vatnið en Andri Snær hefur verið ötull umhverfis­verndar­sinni til fjölda ára. Bók hans Drauma­landið – sjálfs­hjálparbók handa hræddri þjóð sem kom út snemma árs 2006 vakti mikla athygli og umræður í þjóð­félaginu öllu.

Um tímann og vatnið fjallar um stóru breytingarnar sem vísinda­menn sjá fyrir sér á næstu 100 árum hvað varðar eðli alls vatns á jörðinni. Þegar jöklar bráðna, hafs­borðið rís, höfin súrna og veðra­kerfin fara úr jafnvægi.

Andri Snær segir í stöðu­uppfærslu á Facebook-síðu sinni að málefnið sé svo stórt að það sé „stærra en tungu­málið og öll okkar fyrri reynsla.“ Til að skilja málefnið þurfi að skrifa í kringum það, til að fjalla um fram­tíðina þurfi að skrifa um fortíðina og til að skilja vísindi þurfi að vísa í goðafræði.

Hann segir að verkið hafi fylgt sér mörg síðustu ár og þróast í fyrir­lestrum og samtölum við vísinda­menn í háskólum víða um heim. „Þetta er ferðasaga, heimssaga og fjölskyldu­saga, hér eru jöklar, kóralrif og krókódílar og tvö stór viðtöl sem ég tók við Dalai Lama. Nafn hans þýðir „hið víðáttu­mikla haf“ á mongólsku,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár