Vann bókina í gegnum ósjálfráð skrif

Brynja Hjálms­dóttir notaði hugar­flæði við skrif á bókinni Kona lítur við, sem leiðir lesandann í gegnum ákveðið ferðalag.

Bók

Kona lítur við

Höfundur Brynja Hjálmsdóttir
Una útgáfuhús
80 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Bókin mín Kona lítur við er ljóðabók í þremur hlutum. Hún er ákveðið ferðalag en hlutarnir standa samt sér,“  segir Brynja Hjálms­dóttir rithöfundur. „Fyrsti hluti heitir Óramaðurinn, annar hluti heitir Kona lítur við og þriðji hluti heitir Í borg skækjunnar. Ferða­lagið er þannig að í fyrsta hluta förum við á myrkan stað og öðrum hluta nokkurs konar limbó, myndi ég vilja kalla það, og í loka­hlutanum förum við inn í útópíu eða einhvern stórkost­legan stað. Og við förum út þaðan.“

Fyrstu setningarnar urðu til nokkrum mánuðum eftir að Brynja gaf út fyrstu bókina, Okfrumuna. „Eftir að ég skrifaði hana og gaf hana út skrifaði ég ekki neitt í dálítinn tíma en svo allt í einu byrjaði þetta að koma til mín. Ég vann hana í gegnum hugar­flæði, stream of consciousness, ósjálfráð skrif. Þaðan í raun og veru kom síðan efni sem ég vann áfram sem varð að þessari loka­útkomu.“

Hún vinnur ekki endilega á einum stað og einum tíma í algjörri rútínu. „ Það er líka öðruvísi að skrifa ljóð og prósa. Mér finnst gott að vinna með penna og blað. Ég skrifa óheflað og endur­skrifa, ég vinn mikið þannig. Ég er með skrif­stofu, svo skrifa ég heima, uppi í rúmi og á kaffihúsi. Það kemur ekki endilega rosalega gott stöff á kaffi­húsum en þá líður manni kannski eins og maður sé alvöru rithöfundur,“ útskýrir hún.  

„Mér finnst alltaf lítið áfall að gefa út bók. Alltaf segi ég, þetta er í annað skiptið. Bæði skiptin hafa verið þannig að þegar ég fæ bókina í hendurnar þá heldur maður að það sé sigur­móment en það er líka áfalla móment því … hvað hef ég gert? Og nú er ekki hægt að hætta við. En svo þarf maður kannski tvo daga, nokkra daga og þá verður það bara venjulegt og skemmtilegt. 

Maður er að gera þetta til að fá bók í hendurnar og vonandi að einhver lesi. Og ég er bara mjög glöð og þetta er bara flott bók.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu

Í bókinni Allir fuglar fljúga í ljósið riðlast tilvera ráfarans Bjartar og lífssaga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rithöfundur og skapari sögunnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hugleiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draumurinn kominn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár