Óveður geisar um landið en verst lætur undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur, segir storminn ekki stórmál á höfuðborgarsvæðinu þar sem gróður og byggingar skýli gegn vindi. „Verst er á þessum frægu svæðum, Hafnarfjalli og Kjalarnesi,” segir hann. Aðallega beri að varast þar sem keyrðar eru langar vegalengdir en ferðaveður er afleitt um allt suður- og vesturland. Þar er skafrenningur og 15 til 18 metrar á sekúndu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir