Ásmundur Einar er eini ráðherrann sem meirihluti þjóðarinnar treystir

Bjarni Benediktsson hefur á undan­förnum mánuðum farið frá því að vera sá ráðherra Sjálfstæðis­flokks sem flestir treysta í það að skrapa botninn í trausti ásamt Jóni Gunnars­syni. Traust til leiðtoga allra stjórnar­flokkanna fellur skarpt milli mælinga.

Flestir aðspurðra treysta Ásmundi, en fæstir Bjarna.
Flestir aðspurðra treysta Ásmundi, en fæstir Bjarna. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamála­ráðherra er eini ráðherrann í ríkis­stjórn Framsóknar­flokks, Sjálfstæðis­flokks og Vinstri grænna sem meirihluti þjóðarinnar ber mikið traust til, samkvæmt nýrri könnun frá Maskínu um traust til ráðherra. Traust til Ásmundar Einars hefur þó dregist saman um 11 prósentu­stig undan­farið misseri og mælist nú 52 prósent.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra er á móti sá ráðherra sem flestir bera lítið traust til, en 70,7 prósent lands­manna vantreysta Bjarna, samkvæmt niður­stöðum Maskínu. Rúm 18 prósent aðspurðra sögðust bera mikið traust til Bjarna, ögn fleiri en sögðust treysta Jóni Gunnars­syni dómsmála­ráðherra, sem er sá ráðherra sem fæstir bera traust til.

Er Maskína spurði þessarar sömu spurningar skömmu eftir að ný ríkis­stjórn tók við keflinu undir lok síðasta árs voru þeir ráðherrar sem nutu mikils trausts yfir helmings svarenda þrír talsins, en bæði Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra hafa fallið úr þeim flokki.

Traust til Katrínar hefur rýrnað um 17 prósentu­stig og segjast nú 45 prósent bera mikið traust til hennar en traust til Sigurðar Inga hefur dregist saman um heil 22 prósentu­stig og 33 prósent segjast nú treysta Sigurði Inga.

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra nýtur 41 prósent trausts, Lilja Alfreðs­dóttir viðskipta- og menningar­ráðherra nýtur 33 prósent trausts, þau Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson orku- og umhverfis­mála­ráðherra njóta um 31 prósent trausts og prósentu­stigi færri segjast treysta Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur utan­ríkis­ráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnu­markaðs­ráðherra nýtur mikils traust um 26 prósent aðspurðra, Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra nýtur 22 prósenta trausts og svo reka þeir Bjarni og Jón lestina, sem áður segir.

Tæp 24 prósent þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í haust vantreysta Bjarna

Í skýrslu frá Maskínu með niður­broti um traust mismun­andi þjóð­félagshópa til hvers og eins ráðherra má sjá hvernig traust til ráðherra skiptist eftir stjórnmála­skoðunum svarenda.

Bæði er hægt að glöggva sig á afstöðu svarenda eftir því hvernig þeir segjast ætla sér að kjósa til Alþingis ef kosið væri dag og einnig eftir því hvernig þeir segjast hafa kosið til Alþingis síðasta haust.

Í hópi þeirra sem kusu Sjálfstæðis­flokkinn síðasta haust segjast tæp 27 prósent bera mjög mikið traust til Bjarna Benedikts­sonar og 34 prósent til viðbótar segjast bera frekar mikið traust til flokks­formannsins.

Rúm 15 prósent svara því til að þau beri hvorki mikið né lítið traust til Bjarna, en 23,8 prósent þeirra sem segjast hafa kosið Sjálfstæðis­flokkinn síðasta haust segjast nú bera frekar lítið eða mjög lítið traust til Bjarna.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) á netinu, dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá. Alls voru svarendur 929, en þeir eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð samkvæmt Þjóðskrá og endur­spegla því þjóðina prýðilega. Könnunin fór fram dagana 20. til 25. apríl 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár