Meðallaun lögreglumanna voru 339 þúsund krónur á mánuði

Með­al­laun lög­reglu­manna á Íslandi voru 339.121 krónur á mán­uði árið 2014. Þau voru lægri það árið en árin 2012 og 2013 í krónum talið. Laun lög­reglu­manna á árinu 2014 voru rúm­lega 30 þús­und krónum lægri en þau voru níu árum áður, árið 2005. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­manns Vinstri grænna, um laun lög­reglu­manna. Svarið var birt á vef Alþingis í dag. Um er að ræða heild­ar­laun, þ.e. fyrir greiðslu skatta og gjalda.

Í svar­inu eru með­al­laun lög­reglu­manna borin saman við með­al­laun þeirra rík­is­starfs­manna sem eru í SFR, stétt­ar­fé­lagi í almanna­þjón­ustu. Í þeim sam­an­burði kemur fram að laun lög­reglu­manna hafa að með­al­tali hækkað meira en laun þeirra sem eru í SFR frá árinu 1986. Frá síð­ustu ald­ar­mótum og fram að hruni hækk­uðu laun lög­reglu­manna sér­stak­lega umtals­vert fram yfir laun þeirra opin­beru starfs­manna sem greiða í SFR. Mjög hefur hins vegar dregið saman með hóp­unum eftir hrun.

Með svari Bjarna fylgir tafla sem sýnir árleg með­al­laun með verð­lagi upp­færðu til nóv­em­ber 2014. Þar kemur fram að með­al­laun lög­reglu­manna voru hæst árið 2005, þegar þau voru 369.443 krónur. Launin lækk­uðu síðan skarpt eftir hrun en tóku við sér á ný árið 2011. Árið 2012 voru með­al­laun lög­reglu­manna 342.481 þús­und krónur á mán­uði og 339.379 krónur árið eftir.

Árleg með­al­laun félags­manna í SFR á árinu 2014 eru um sjö pró­sent lægri, eða 315.280 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár