Tala látinna í Manchester komin upp í 22

Sprengingin í Manchester Arena er nú rannsökuð sem hryðju­verk.

Lög­regl­an í Manchester hef­ur greint frá því að sá sem stóð að sprengingunni í Manchester Arena í gærkvöldi, í lok tónleika bandarísku söng­konunnar Ariönu Grande, hafi lát­ist þegar hann virkjaði sprengj­una sem hann var með á sér á tón­leik­un­um.

Lög­regla hef­ur hækkað tölu lát­inna úr 19 í 22. Meðal þeirra eru börn. Samtals eru nú 59 sagðir hafa særst í árás­inni.

Örvænt­ing­ar­full­ir ætt­ingj­ar og vin­ir leita nú þeirra sem ekki hafa látið vita af sér eft­ir tón­leik­ana, að því er fram kemur í umfjöllun Sky News. 

Lögregla segir að rann­sóknin miði að því að um hryðju­verk hafi verið að ræða, og voru um strax í gærkvöldi um 400 lögreglu­menn sendir á vettvang til að tryggja öryggi á staðnum og halda áfram rannsókn á vettvangi. 

Theresa May, forsætis­ráðherra, hefur þegar fordæmt árásina og segir að hugur bresku þjóðarinnar sé hjá aðstand­endum fórnar­lamba og þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna sprengingarinnar með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár