Verslunarrekstur Haga í blóma en eldsneytissala í mótvindi

Hagar, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins, hagn­að­ist um 1,2 millj­arða króna á fyrri helm­ingi rekstr­ar­árs síns þrátt fyrir heims­far­aldur. Verslun skil­aði auknum tekjum en tekjur af elds­neyt­is­sölu dróg­ust saman um rúm­lega fimmt­ung.

Viðsnúningur hefur orðið í rekstri Hagkaupa. Hann útskýrist af miklum vexti í vörusölu, sérstaklega í sérvöru.
Við­snún­ingur hefur orðið í rekstri Hagkaupa. Hann útskýrist af miklum vexti í vöru­sölu, sér­stak­lega í sér­vöru. Mynd: Fjárfestakynning Haga

Vörusala versl­ana og vöru­húsa Haga, stærsta smá­sala lands­ins, jókst um ell­efu pró­sent á fyrri helm­ingi rekstr­ar­árs félags­ins, sem er frá­brugðið flestum öðrum þar sem það hefst í byrjun mars og lýkur í lok febr­úar, miðað við sama tíma­bil í fyrra. Stærstu ein­ing­arnar þar eru Bónus, sem rekur 31 verslun um allt land, Hagkaup, sem rekur átta versl­anir og vöru­húsin Aðföng og Bananar.

Alls seldur versl­anir og vöru­hús Haga vörur fyrir 43,4 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum rekstr­ar­árs­ins, sem er 4,2 millj­örðum krónum meira en í fyrra. Á sama tíma geis­aði kór­ónu­veiru­far­aldur á Íslandi með til­heyr­andi efna­hags­sam­drætti.

Hagar fundu þó meira fyrir far­aldr­inum í elds­neyt­is­sölu­hluta starf­sem­innar, Ólís. Þar dróst vöru­salan saman um 21 pró­sent, eða 4,4 millj­arða króna milli ára. Má rekja þann sam­drátt til fækk­unar ferða­manna hér­lendis og ann­arra áhrifa af ferða­tak­mörk­unum. Betri afkoma versl­ana­hluta Haga náði því ekki að vega að öllu leyti upp þann mót­vind sem varð í rekstri Olís. Þar skeik­aði um 200 millj­ónum króna.

Hagnaður Haga á fyrri helm­ingi rekstr­ar­árs félags­ins nam 1,2 millj­örðum króna, sem er hálfum millj­arði króna minni hagn­aður en var á sama tíma­bili í fyrra.

Starfslok forstjóra kostuðu 86,4 milljónir

Launa­kostn­aður Haga hækk­aði um fimm pró­sent milli ára sem má að hluta rekja til starfs­loka­greiðslna og lot­unar á samn­ings­bundnum starfs­loka­kostn­aði.

Þar er að hluta um að ræða kostnað vegna starfs­loka Finns Árna­sonar, sem hafði verið for­stjóri Haga frá árinu. Greint var frá því 30. apríl að hann hefði óskað eftir því að láta af störfum. Á sama tíma var sagt frá því að Guð­­mundur Mart­eins­­son, sem verið hefur fram­­kvæmda­­stjóri Bónus sem er í eigu Haga um ára­bil, einnig óskað eftir því að hætta. Guð­mundur hætti síðar við að hætta hjá Högum.

Finnur lét af störfum 30. júní síð­ast­lið­inn. Við starfi hans tók Finnur Oddsson.

Í árs­hluta­reikn­ingi Haga kemur fram að heild­ar­á­hrif vegna starfs­loka­greiðslna og lot­unar á samn­ings­bundnum starfs­loka­kostn­aði hafi numið um 150 millj­ónum króna á tíma­bil­inu. Þar af voru 86,4 millj­ónir króna vegna starfs­loka fyrr­ver­andi for­stjóra.

Annar rekstr­ar­kostn­aður Haga lækkar hins vegar á milli ára.

Ætla ekki að greiða arð

Arð­greiðslu­stefna Haga er þannig að stefnt er á að félagið greiði hlut­höfum sínum árlegan arð, sem nemi að lág­marki 5 pró­sent hagn­aðar næst­lið­ins rekstr­ar­árs. Að kaupir félagið eigin bréf og fast­eignir á hag­stæðu verði sem nýt­ast félag­inu í starf­semi sinn­i.

Þrátt fyrir þessa yfir­lýstu stefnu hefur stjórn Haga ákveðið ekki verði greiddur arður til hlut­hafa vegna reikn­ings­árs­ins 2019/20. Ástæða þess að vikið er frá arð­greiðslu­stefnu félags­ins er vegna þeirrar „óvissu sem nú ríkir um efna­hags­horfur í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins.“

End­ur­greiddu 36 millj­ónir

Stjórn Haga ákvað í 8. maí síð­ast­lið­inn að end­­ur­greiða Vinn­u­­mála­­stofnun þann kostnað sem féll til vegna starfs­­fólks dótt­­ur­­fyr­ir­tækja Haga sem nýttu sér hluta­­bóta­­leið­ina í apr­íl­mán­uði, en félagið hafði verið gagn­rýnt fyrir að kaupa eigin hluta­bréf og færa þannig fé til hlut­hafa sinna á sama tíma og félagið nýtir hluta­­bóta­úr­ræði stjórn­­­valda.

Starfs­­menn Zöru, Úti­­lífs og veit­inga­­sölu Olís höfðu verið í skertu starfs­hlut­­falli, en því starfs­­fólki var boðið að fara aftur í það starfs­hlut­­fall sem áður var, sam­­kvæmt til­­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­in­u.

„Á þessum tíma­­punkti er betur hægt að sjá þau áhrif sem far­ald­­ur­inn mun hafa á félagið í heild og eru þau minni en ótt­­ast var í upp­­hafi. Nú telst því rétt að end­­ur­greiða þá fjár­­hæð sem Vinn­u­­mála­­stofnun greiddi til starfs­­fólks Haga í apr­íl­mán­uð­i,“ sagði í til­­kynn­ingu félags­­ins, en þar kemur fram að end­­ur­greiðslan nemi um 36 millj­­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár