Húsnæðisverð hækkaði meira á Íslandi í faraldrinum en á hinum Norðurlöndunum

Ný norræn skýrsla sýnir að norrænu hagkerfin hafi tekist á við heims­faraldurinn betur en flest önnur ríki Evrópu þótt neikvæð áhrif hafi allsstaðar verið umtals­verð. Neikvæðu áhrifin voru meiri á Íslandi en á hinum Norður­löndunum.

Ríkisstjórnin kynnti nokkra efnahagslega aðgerðarpakka til að mæta afleiðingum kórónuveirufaraldursins á síðustu tveimur árum.
Rík­is­stjórnin kynnti nokkra efna­hags­lega aðgerð­ar­pakka til að mæta afleið­ingum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á síð­ustu tveimur árum. Mynd: Bára Huld Beck

Húsnæðis­verð hækkaði meira á Íslandi en á hinum Norður­löndunum í kórónu­veiru­faraldrinum, lands­framleiðsla dróst meira saman hérlendis en á þeim og atvinnu­leysi varð meira.

Þetta kemur fram í skýrslunni State of the Nordic Region sem rannsóknar­stofnun Norrænu ráðherra­nefndarinnar (Nordregio) hefur unnið og var birt í dag.

Þar kemur fram að mótvægis­aðgerðir stjórn­valda á Norður­löndunum hafi hjálpað til við að milda efnahagslegt högg faraldursins. Samantekt í skýrslunni sýnir að Ísland hafi eytt minnstu hlutfalli af lands­framleiðslu slíkar aðgerðir af Norður­löndunum en hafi sett mest, rúmlega tíu prósent af lands­framleiðslu, í bein útgjöld sem endur­heimtast ekki. Á hinum Norður­löndunum var stærra hlutfalli af skatt­greiðslum frestað, eigið fé lagt til eða lán veitt. Þau fóru með öðrum orðum blandaðri leið en Ísland, sem dældi aðallega fjármunum inn í fyrirtæki landsins í formi ýmis konar styrkja.

Verg lands­framleiðsla dróst mest saman á Íslandi af öllum Norður­löndunum á fyrsta tæpa ári faraldursins, eða um 6,5 prósent árið 2020. Til saman­burðar dróst hún saman um 2,1 til 2,9 prósent í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi og einungis um 0,8 prósent í Noregi.

Atvinnu­leysi sem mældist mest 17,8 prósent í apríl 2020, varð meira hérlendis í faraldrinum en í nágranna­löndunum. Það hefur þó jafnað sig skarpt og mældist 5,2 prósent í síðasta mánuði. Það er svipað atvinnu­leysi og var fyrir faraldurinn þegar slétt fimm prósent íbúa Íslands á vinnu­markaði mældust án atvinnu, en það var hæsta hlutfall sem hafði mælst frá vorinu 2012.

Hækkanir á húsnæðisverði mestar á Íslandi

Í skýrslunni er hækkun á húsnæðis­verði skoðuð sérstak­lega og þar kemur í ljós að það hafi almennt hækkað talsvert á öllum Norður­löndunum. Mest hækkaði það þó á Íslandi en húsnæðis­verð á höfuð­borgar­svæðinu hefur allt í allt hækkað um 31,3 prósent frá því í mars 2020 og um 22,5 prósent síðastliðið ár. Þar á eftir koma verð­hækkanir húsnæðis í Svíþjóð, Danmörku og Noregi á meðan Finnland skar sig nokkuð úr með hóflegri verð­hækkunum og stöðugri húsnæðis­markaði.

Ýmsir þættir hafa spilað inn í miklar hækkanir hérlendis. Stjórn­völd og Seðla­banki Íslands gripu til að mynda til aðgerða á borð við vaxta­lækkana, afnám sveiflu­jöfnunar­auka og lækkunar banka­skatts sem juku útlána­mátt viðskipta­banka um mörg hundruð milljarða króna. Það svigrúm var fyrst og síðast notað til að lána til húsnæðis­kaupa á markaði þar sem eftir­spurn var þegar umfram framboð. Fyrir vikið hefur sölutími íbúða dregist hratt saman og í síðasta mánuði seldist tæplega helmingur íbúða á höfuð­borgar­svæðinu yfir ásettu verði. Fyrir tveimur árum fóru um tíu prósent íbúða á svæðinu yfir ásettu verði.

Vaxandi gjá milli tekjuhópa

Heilt yfir sýnir skýrsla Nordregio að norrænu hagkerfin hafi tekist á við heims­faraldurinn betur en flest önnur ríki Evrópu þótt neikvæð áhrif hafi allstaðar verið umtals­verð.

Gustaf Norlén, einn ritstjóra State of the Nordic Region og greinandi hjá Nordregio, segir að mótvægis­aðgerðir í efnahags­málum virðast hafa skilað nokkuð góðum árangri á Íslandi, þar sem ferða­þjónusta sé stór atvinnu­grein sem varð fyrir miklum áhrifum af heims­faraldrinum.

Í skýrslunni segir að heims­faraldurinn hafi þó leitt í ljós vaxandi félags­lega gjá á milli ólíkra svæða og þjóð­félagshópa á Norður­löndum, sérstak­lega milli ólíkra tekjuhópa og milli lands­byggðar og þéttbýlis­staða. Norlén þetta eiga sérstak­lega við um hópa sem standa veikar eins og aldraða, þá sem fæddir eru erlendis og ungt fólk. Það hafi orðið fyrir neikvæðustu áhrifum heims­faraldursins, bæði hvað varðar heilsu og fjárhag. „En jafnframt sjáum við að stuðnings­aðgerðir stjórn­valda við fyrirtæki og launþega hafa stuðlað að færri gjald­þrotum og talsvert hraðari bata en eftir fjármála­kreppuna 2008.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár