Hótel á hafsbotni, þjófnaður Boney M, Mads, Lambda-afbrigðið og 500 flutningaskip

Þótt ýmis afbrigði kórónu­veirunnar og afleiðingar hennar á aðflutnings­kerfi hefðu vakið áhuga lesenda Kjarnans sökktu þeir sér líka í umfjallanir um stolin lög og fræga leikara. Hér eru mest lesnu frétta­skýringar af erlendum vettvangi á árinu.

5. boney M og stolnu lögin

Þegar söng­hópurinn Boney M sló í gegn seint á áttunda áratug síðustu aldar með lögunum „Brown Girl in the Ring“ og „Rivers of Babylon“ grunaði engan að í kjölfarið fylgdu málaferli sem stæðu í áratugi. Það varð þó raunin. Annað lagið reyndist leikur sem krakkar á Jamaíku hefðu kunnað ára­tugum sam­an. Og hitt ára­tuga gam­all söngur Rastafara­trúar­hreyfingarinnar, ætt­aður frá Afr­íku og Jamaíka.

Fjallað var um þessa 20 ára deilu í Kjarnanum í janúar. Þar kom meðal annars fram að dómarinn í málinu hafi verið dökk­hærður þegar mála­reksturinn hófst en gráhærður þegar honum lauk.

Lesið frétta­skýringuna í heild sinni hér.

4. Frægastur danskra leikara

Upp úr 10. nóv­em­ber árið 1965 átti Bente Christiansen von á sér. Hún bjó í Kaup­manna­höfn, ásamt manni sínum Henn­ing Mikkelsen og árs­gömlum syni þeirra hjóna, Lars. Barnið sem Bente bar undir belti var ekk­ert að flýta sér í heim­inn og það var ekki fyrr en 22. nóv­em­ber sem til tíð­inda dró. Þá skaust hann í heim­inn dreng­ur­inn sem síðar fékk nafnið Mads.

Hann lærði ballett og var atvinnu­dansari í áratug. Þrítugur að aldri lauk hann leikara­námi og er í dag frægastur allra danskra leikara.

Lesið frétta­skýringuna í heild sinni hér.

3. Hótelið á hafsbotni

Á hafs­botn­inum úti fyrir ströndum Dan­merkur leyn­ist margt, kaf­arar kalla það gósen­land. Fjöldi skipa liggur á hafs­botni á þessum svæð­um, sum þeirra frá síð­ustu öld en önnur hafa legið á hafs­botni öldum sam­an. Vitað er hvar mörg þess­ara skipa liggja en önn­ur, einkum frá fyrri öld­um, hefur ekki tek­ist að finna. Þegar köf­urum tekst að finna eitt­hvað sér­lega merki­legt kom­ast fréttir af slíku ævin­lega í fjöl­miðla. Og þær ber­ast enn þá af og til.

Í áratugi hafa gengið sögur um að á hafsbotni norðan við Helsingja­borg í Svíþjóð liggi stærðar steypu­hlunkur sem átti að vera hluti eins þekktasta hótels á Norður­löndum. En skyldi þetta nú vera rétt?

Lesið frétta­skýringuna í heild sinni hér.

2. Álfan þar sem Lambda-afbrigðið breiðist út

Í júlí var delta-afbrigði kórónu­veirunnar það sem var að gera mestan usla. En í sums staðar í heiminum var það líka annað afbrigði, lambda, sem vísinda­menn fylgdust grannt með.

Afbrigði þetta hafði verið nokk­urs konar kaf­bátur í far­aldr­inum og senni­lega van­greint, m.a. vegna lík­inda sinna við gamma- og beta-af­brigði kór­ónu­veirunn­ar. Lambda var talið elds­neytið sem m.a. hafði knúið aukn­ingu COVID-19 smita í Suð­ur­-Am­er­íku, Mið-Am­er­íku og á eyjum Karabíska hafs­ins síð­ustu vikur og þá sér­stak­lega í fátæk­ustu lönd­unum þar sem bólu­setn­ing­ar­hlut­fall var lágt.

Lesið frétta­skýringuna í heild sinni hér.

1. 500 flutningaskip komast ekki leiðar sinnar

Í október síðastliðnum sátu hundruð full­hlaðinna flutninga­skipa föst vítt og breytt um heiminn. Framundan var jóla­vertíðin og undanfari hennar, Black Friday.

Þótt margir kaup­menn hefðu von­ast eftir mik­illi sölu höfðu þeir jafn­framt áhyggjur af að erfitt gæti reynst að útvega vörur fyrir jól­in. Þar lék lykil­hlutverk að um það bil 500 gámaskip, löstuð með næstum 300 milljón 20 feta gámum, lónuðu úti fyrir höfnum víðsvegar í heiminum.

Borgþór Arngrímsson útskýrði af hverju þetta ástand hafði skapast í frétta­skýringu.

Lesið frétta­skýringuna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár