Lýsa stríði á hendur smálánastarfsemi

ASÍ og Neytenda­samtökin hafa ákveðið að taka höndum saman og stofna baráttu­samtök gegn smálána­starfsemi. Markmiðið er annars vegar að aðstoða þolendur smálána­starfsemi og hins vegar að girða fyrir það að slík starfsemi fái þrifist.

Alþýðu­samband Íslands og Neytenda­samtökin hafa stofnað baráttu­samtök gegn smálána­starfsemi, að því er fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá þeim. Markmiðið er annars vegar að aðstoða þolendur smálána­starfsemi og hins vegar að girða fyrir það að slík starfsemi fái þrifist.

Samkvæmt ASÍ og Neytenda­samtökunum má ætla að þúsundir einstaklinga og fjöl­skyldna hafi goldið það dýru verði að festast í neti smálána­fyrirtækja sem níðast skipulega á þeim sem höllum fæti standa. „Að stöðva þessa starfsemi er velferðarmál og barátta gegn fjárhags­legu ofbeldi!“

ASÍ og NS hafa ákveðið að stofna málsvarnar­sjóð fyrir þolendur smálána sem hafa ofgreitt ólögleg lán. Þau ætla að kort­leggja hvaða fyrirtæki það eru sem þjónusta smálána­fyrirtæki og auðvelda starfsemina. „Almenningur þarf að vera upplýstur um hvaða fyrirtæki það eru,“ segir í tilkynningunni. Þá ætla þau að þrýsta á að stjórn­völd axli ábyrgð og aðstoði þolendur með skipulögðum hætti og beiti sér markvisst gegn starfsemi smálána.

„Það er óþolandi að fyrirtæki og fjármála­stofnanir hafi séð sér hag í því að þjónusta og aðstoða smálána­fyrirtæki. Þar má nefna CreditInfo sem hefur skráð ólögleg lán á vanskila­skrá og Almenna innheimtu ehf. sem innheimtir smálán af fordæma­lausri hörku. Þá eru fleiri fyrirtæki og sem styðja við smálána­fyrirtæki til skoðunar,“ segir í tilkynningunni.

Samkvæmt könnun aðildar­félaga ASÍ meðal félags­manna sinna geta 25 prósent þeirra sem lenda í skulda­vanda rakið orsökina til smálána. „Alþýðu­samband Íslands mun leggja fjármagn og starfs­krafta í þessa baráttu enda kemur starfsemin niður á félags­mönnum í verkalýðs­hreyfingunni og þeim sem höllum fæti standa í samfélaginu.“

Hér að neðan má sjá dæmi um sögur sem borist hafa samtökunum:

Einstæð móðir af erlendum uppruna í láglauna­starfi leitaði til Neytenda­samtakanna. Bæði börn hennar eru langt leiddir fíklar. Dag einn bankaði maður með hafnar­boltakylfu uppá hjá henni og skipaði henni að taka smálán til að greiða skuld annars barns hennar. Móðirin gerði það nauðbeygð, gat ekki staðið í skilum með ólögleg lánin og freistaðist til að taka ný lán til að greiða þau gömlu. Það gerði hún endur­tekið þar til upphæðin var komin í þær þóknanlegar hæðir fyrir smálána­fyrirtækin, sem lokuðu á hana og hófu gegndar­lausa innheimtu með skefja­lausum kostnaði. Við móðurinni blasir ekkert nema gjaldþrot.

Veikur maður á þrítugs aldri tekur 20.000 króna lán sem hann greiðir ekki á gjalddaga. Mánuðum síðar eru skuld­færðar rúmar 70 þúsund krónur af reikningnum. Heiðvirð félög skuldfæra á gjalddaga, en hlaða ekki kostnaði á lán og skuldfæra svo. Málið tekur svo á þolandann að hann fæst ekki úr rúmi svo vikum skiptir.

Smálána­fyrirtækin hafa skuldfært ólöglega af reikningum fólks, samkvæmt samtökunum.

„Ég tók smálán árið 2018 að upphæð 20.000 kr. sem fór í gegnum banka­reikninginn minn. Gat ekki borgað á tilsettum tíma og fékk eitt sms um að ég væri með ógreiddann reikning. Í mars 2019 eru allt í einu dregið af reikningi mínum í öðrum banka rúmar 70,000 án frekari aðvaranna.“

„Það er búið að senda mér allskonar frá hrað­peningar.is en ég get hvergi fundið út að það megi vaða í reikninginn hjá fólki og taka út peninga þegar hentar. Og einnig hef ég lesið skilmálana ansi oft en er ekki að komast að þeirri niður­stöðu að það megi.“

Almenn innheimta hótar fólki með vanskila­skrá og afhendir ófullnægjandi gögn, segir í tilkynningunni.

„Ég er bæði búin að hringja og senda tölvupóst og byðja um að fá allar upplysingar um mín lán og upphæðir enn þeir eru ekki búnir að svara. Ég hringdi í gær í Almenna innheimtu og talaði við mann sem sagði þá taka fólk af vanskila­skrá ef ég myndi borga helmingin af upphæðini og semja um rest. ég sagði nei takk og hringdi í ykkur.“

„Ég tók nokkur smálán 2018, og lenti í vanskilum. samdi svo við Almenna innheimtu um greiðslur eftir að hafa lent á vanskila­skrá af því að eitt smálán fór yfir eindaga. Greiddi síðan um 280.000 kr. af ég veit ekki hversu hárri kröfu, og fæ ekkert yfirlit frá þeim, þrátt fyrir að hafa óskað eftir því oft. Fyrst var ég beðinn um að bíða eftir 30 daga úrvinnslu og svo beðinn um að senda skilríki.“

„Ég bara gafst upp á að reyna að leita réttar míns því í öllum tölvu­póstum og símtölum vísa alltaf allir á einhvern annan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár