Mynd: Bára Huld Beck

Sífellt fleira ungt fólk með neysluskuldir á bakinu

Vaxandi hópur ungs fólk er að hefja fjár­mála­sögu sína á van­skila­skrá hér á landi. Umboðs­maður skuld­ara segir að nauð­syn­legt sé að grípa til aðgerða vegna vax­andi vanda skyndilána.

Á und­an­förnum árum hefur orðið gíf­ur­leg aukn­ing í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára sem leitar til Umboðs­manns skuld­ara vegna alvar­legs fjár­hags­vanda en 79 pró­sent þeirra eru með svokölluð skyndilán. Þá er ekki aðeins verið að tala um hin víð­frægu smá­lán heldur býður nú fjöldi fjár­tækni­fyr­ir­tækja og banka upp á svokölluð skyndilán. Það eru lán sem tekin eru raf­rænt og eiga það sam­eig­in­legt að ein­falt er að sækja um þau á hvaða tíma sól­ar­hrings og eru þau afgreidd afar skjótt. Kostn­aður slíkrar lán­töku getur orðið mjög hár og hefur fólk steypst í skuldir hratt með töku margra slíkra lána á stuttum tíma.

Umboðs­maður skuld­ara hefur kallað eftir aðgerðum vegna vax­andi vanda fólks vegna skyndilána hér á landi. Starfs­hópur um end­ur­skoðun á starfs­um­hverf­i s­má­lána­fyr­ir­tækja hefur einnig skilað umhverf­is­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra til­lögum til úrbóta. Þá er meðal ann­ars lagt til að efla fjár­mála­læsi í grunn­skólum og tak­marka mark­aðs­setn­ingu skyndilána en henni er beint í miklum mæli að yngri kyn­slóð­inni ásamt öðrum við­kvæmum hópum. Auk þess er lagt til að setja á lagg­irnar mið­lægan skulda­grunn.

Síversnandi skuldastaða ungs fólks

Umsóknum um fjár­hags­að­stoð hefur fjölgað í heild­ina hjá Umboðs­manni skuld­ara und­an­farin ár og þá sér­stak­lega hjá ald­urs­hópnum 18 til 29 ára. Sá ald­urs­hópur hefur farið úr því að vera 5 pró­sent umsækj­enda um fjár­hags­að­stoð hjá emb­ætt­inu árið 2012 í 27 pró­sent árið 2018. Umboðs­maður skuld­ara segir það vera veru­legt áhyggju­efni að enn skuli fjölga í hópi umsækj­enda á þessum aldri. 

Í þeim ald­urs­hópi voru 79 pró­sent umsækj­enda með skyndilán. Umboðs­maður skuld­ara hefur skil­greint skyndilán sem þau lán sem tekin eru á vef­síðum eða með notkun smá­forrita í far­símum. Þau eiga það sam­eig­in­legt að ein­falt er að sækja um þau og eru þau afgreidd afar skjótt. Bæði getur verið um að ræða lán sem tekið er sam­hliða kaupum á vöru eða þjón­ustu en einnig lán þar sem ákveðin fjár­hæð er lögð inn á reikn­ing lán­taka með stuttum láns­tíma. Sam­kvæmt emb­ætt­inu eiga þeir ein­stak­lingar sem leit­uðu til þeirra það sam­eig­in­legt að hafa tekið fjölda skyndilána á ­stuttum tíma og komið sér í tölu­verðar skuld­ir. Á ár­inu 2018 var hlut­fall skyndilána 22 pró­sent af heild­ar­fjár­skuld­bind­ingu þess­a hóps.

Smálán heyra ekki sögunni til

Eftir efna­hags­hrunið árið 2008 birt­ust á sjón­ar­svið lands­manna smá­lána­fyr­ir­tæki sem buðu upp á svokölluð SMS-lán. Fyr­ir­tækin lán­uðu lágar upp­hæðir til skamms tíma. Kostn­aður vegna lán­anna gat verið gríð­ar­lega hár en fyrir 10.000 króna lán hjá smá­lána­fyr­ir­tæk­inu Kredia voru nafn­vextir á árs­grund­velli tæp 608 pró­sent. Í við­tali við Morg­un­blaðið í októ­ber 2009 sagði Leifur Har­alds­son, þáver­andi for­stjóri Kredia, að litið væri á þessa þóknun sem lán­töku­kostnað fremur en vexti.

Eftir mikla opin­bera og gagn­rýna umræðu um starf­semi og „ofur­vexti“ smá­lána­fyr­ir­tækja voru í nóv­em­ber 2013 sam­þykkt lög um neyt­enda­lán á Alþingi. Með þeim voru starf­sem­inni settar skorður og þak sett á þann kostnað sem lán­veit­andi má leggja á lánin. Í nýlegri skýrslu starfs­hóps nýsköp­unar-, iðn­aðar- og ferða­mála­ráð­herra um end­ur­skoðun á starfs­um­hverfi smá­lána­fyr­ir­tækja er greint frá því að í fyrstu hafi smá­lána­fyr­ir­tæki, sem hófu starf­semi sína fyrir gild­is­töku laga um neyt­enda­lán, mark­visst reynt að snið­ganga ákvæði lag­anna, þó með tak­mörk­uðum árangri.

Nú hafa þau hins vegar öll hætt starf­semi sinni hér á landi en vöru­merki þess­ara smá­lána­fyr­ir­tækja lifa þó enn og þjón­ustan stendur íslenskum neyt­endum enn þá til boða í gegnum erlenda lög­að­ila. Í skýrsl­unni segir að ætla verði að ástæðu umrædds fyr­ir­komu­lags megi rekja til ófrá­víkj­an­legra reglna um hámark árlegrar hlut­falls­tölu kostn­aðar í neyt­enda­lánslögum. Því hafi það að færa þjón­ust­una til útlanda verið enn ein leið­in til að kom­ast hjá fyrr­greindu kostn­að­ar­þaki.

Aðgengi að lánum mun sjálfvirkara og auðveldara

Með til­komu smá­lána átti sér stað aukin sjálf­virkni­væð­ing í lána­starf­semi hér á landi sem er þó einnig alþjóð­leg þróun. Mikil fjölgun hefur orðið á fyr­ir­tækjum sem bjóða nú upp lög­leg neyt­enda­lán, eða svo­nefnd skyndilán, þar sem hægt er að fá lán raf­rænt á bil­inu frá nokkrum tugum þús­unda til nokk­urra millj­óna króna og fá það nán­ast sam­stundis eða innan sól­ar­hrings. Meðal þeirra fyr­ir­tækja eru fjár­tækni­fyr­ir­tæki líkt og Aur, Netgíró og Fram­tíðin en Fram­tíðin býður nú einnig upp á raf­rænt fast­eigna­lán. Auk þess bjóða nú Arion banki og Íslands­banki upp á raf­ræn skamm­tíma­lán sem hægt er sækja um í gegnum síma eða tölvu og fá það greitt nán­ast sam­stundis eða innan sól­ar­hrings.

Skyndilán bera að jafn­aði háa vexti enda oft­ast tekin til skamms tíma en auk þess fylgja þeim lánum ýmis gjöld og kostn­aður, til dæmis lán­töku­gjald og greiðslu­gjald. Kostn­að­ur­inn við lánin getur því verið gríð­ar­lega hár án þess að neyt­andi átti sig á því. Því er notuð árleg hlut­fallstala kostn­aðar, ÁHK, sem er pró­sentu­tala þar sem allur árlegur kostn­aður af lán­inu er settur í eina pró­sentu­tölu. Á vef­síð­unni Aurbjörg er hægt að bera saman ÁHK skamm­tíma­lán en algengt er að árs­vextir skamm­tíma­lána geti verið kringum 10 til 13 pró­sent en við það bæt­ist til að mynda 4 pró­sent lán­töku­gjald og annar kostn­aður líkt og greiðslu­gjald. Við það getur árleg hlut­fallstala kostn­aðar farið allt upp í 40 til 50 pró­sent en í neyt­enda­lánslögum kemur fram að ÁHK megi ekki vera hærra en 50 pró­sent að við­bættum stýri­vöxtum.

Árlegur hlut­falls­legur kostn­aður breyt­ist einnig eftir tíma, fjár­hæð láns­ins sem og láns­hæf­is­mati lán­taka. Samkvæmt neyt­enda­lögum ber lán­veit­endum að óska eftir láns­hæf­is­mati lán­taka og býðst neyt­endum skamm­tíma­lána mis­mun­andi kjör eftir því í hvaða láns­hæf­is­flokki neyt­andi er. Ásta Sigrún Helga­dóttir sem gegnir emb­ætti Umboðs­manns skuld­ara segir í sam­tali við Kjarnann að neyt­endur átti sig því oft ekki á heild­ar­kostn­aði skyndilána. Neyt­endum birt­ast fyrst bestu mögu­legu kjör neyt­enda­lána eða fyrir þá lán­taka sem eru í láns­hæf­is­flokki A en Ásta Sigrún bendir á að meiri­hluti þeirra aðila sem taki skyndilán eru ekki í A flokki. Mis­mun­andi er eftir fyr­ir­tækjum hvar í ferl­inu hægt sé að nálg­ast slíkar upp­lýs­ing­ar, en oft sé það ekki fyrr en á loka­stigum lán­tök­unn­ar þegar lán­hæf­is­mat er stað­fest.

Einstaklingar sem leita sér aðstoðar hjá Umboðsmanni skuldara eiga það sameiginlegt að hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma og komið sér í töluverðar skuldir.
Ein­stak­lingar sem leita sér aðstoðar hjá Umboðs­manni skuld­ara eiga það sam­eig­in­legt að hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma og komið sér í tölu­verðar skuldir.

Má ekki gleyma að greiðsluerfiðleikar eru alvarlegt vandamál

Með fjölgun lán­veit­enda verður æ auð­veld­ara að taka lán en einnig auð­veld­ara að taka mörg lán á stuttum tíma. Í mörgum til­fellum nýrra fjár­tækni­fyr­ir­ækja er engri við­skipta­sögu að dreifa á milli ein­stak­linga og lán­veit­anda. Í bönkum er hægt að byggja láns­hæf­is­mat ein­stak­linga út frá for­sendum um skil­vísi lán­taka, við­skipta­sögu og taka til­lit til launa áður en til dæmis skyndilán eru veitt. Fyr­ir­tæki geta sótt láns­hæf­is­mat lán­tak­enda til Creditinfo en þar fást ekki upp­lýs­ingar um önnur skamm­tíma­lán nema lán­taki hafi lent á van­skila­skrá.

Ásta Sigrún segir að því sé hægt að taka mörg skyndilán hjá mis­mun­andi fyr­ir­tækjum á stuttum tíma og skuld­setn­ing neyt­enda geti því átt sér stað gríð­ar­lega hratt. Hjá þeim hópi sem leitar til Umboðs­manns skuld­ara segir hún að algengt sé að fólk hafi lent í víta­hring og tekið skyndilán til að borga önnur skyndilán og steypst því gríð­ar­lega hratt í miklar skuldir.

Ásta Sigrún bendir jafn­framt á að því megi ekki gleyma að greiðslu­erf­ið­leikar séu mjög alvar­legt vanda­mál. Hún minnir á að þeir ein­stak­lingar sem leiti til Umboðs­manns skuld­ara sé aðeins brot af þeim sem lenda í fjár­hags­vanda vegna skuld­setn­ingar og emb­ættið sé í raun eins­konar bráða­mót­taka og margir finni aðrar leiðir til að leysa úr fjár­hags­vanda. Því séu tölur emb­ætt­is­ins jafn­vel aðeins topp­ur­inn á ísjak­anum.

Svipaða þróun má sjá á nýskrán­ingum á van­skila­skrá Creditifno en þeim hefur farið fjölg­andi hjá síð­ustu mán­uðum eftir stöðuga fækkun árin á undan. Í mars 2019 voru tæp­lega nítján þús­und manns á van­skila­skrá, þar af eru yfir þús­und manns á aldr­inum 21 til 24 ára og 166 ung­menni á aldr­inum 18 til 20 ára. Að lenda á van­skila­skrá getur haft afleið­ingar til langs tíma en Creditinfo hefur heim­ildir til að nota fyrrum skrán­ingar við gerð láns­hæf­is­mats í allt að fjögur ár.

Samkvæmt grein­ingu Umboðs­manns skuld­ara er meiri­hluti umsækj­enda um fjár­hags­að­stoð ein­stak­lingar eða ein­stæðir for­eldrar. Jafn­framt er meiri­hluti þeirra sem sækja um aðstoð oft í við­kvæmri fjár­hags­legri stöðu. Meiri­hluti umsækj­anda er á leigu­mark­aði og með lágar tekjur en með­al­tekjur umsækj­anda eru nettó 335.132 krónur á mán­uði. Þá eru eru 34 pró­sent umsækj­enda í vinnu, 38 pró­sent á örorku eða líf­eyri, 22 pró­sent atvinnu­lausir og 3 pró­sent í námi.

Kanna hvort að takmarka eigi markaðssetningu

Umboðs­maður skuld­ara hefur því kallað eftir aðgerðum í ljósi þess að sífellt fleiri lenda í vanda vegna skyndilána og þá sér­stak­lega ungt fólk. Í til­kynn­ingu frá emb­ætt­inu í mars síð­ast­liðnum lagði emb­ættið til þrjár aðgerðir til að spyrna við þess­ari þróun. Í fyrsta lagi að kannað yrði hvort að setja eigi skorður á mark­aðs­setn­ing­u ­skyndilána.

Embættið segir að mark­aðs­setn­ing skyndilána sé öflug og áber­andi og í miklum mæli beint að yngri kyn­slóð­inni með áherslu á auð­velt aðgengi. Á vef­síðu Aurs, eitt þeirra fyr­ir­tækja sem býður upp á skyndilán, segir til dæmis „Þú færð Aur lán sam­stundis. Það er alltaf opið og engin þörf á að mæta og skrifa undir.“ Annað dæmi er að á heima­síðu Íslands­banka segir: „Þarftu að eiga fyrir óvæntum útgjöldum? Nú get­urðu fengið lán í korta­app­inu á örfáum mín­útum.“

Í fyrr­nefndri skýrslu starfs­hóps um smá­lána­fyr­ir­tæki var meðal ann­ars fjallað um ágenga og óum­beðna mark­aðs­setn­ingu í gegnum SMS-skila­boð í boði smá­lána­fyr­ir­tækja. Reynt hefur á lög­mæti þess háttar óum­beð­inna skila­boða frá Hrað­pen­ingum, 1909, mula.is og smalan.is, en úrskurð­ar­nefnd fjar­skipta- og póst­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu í fyrra að brotið hefði verið gegn 46. gr. fjar­skipta­laga eftir að neyt­endur höfðu óskað eftir því að sms-send­ingum yrði hætt.

Umrædd vöru­merki eru þó enn í rekstri ann­ars lög­að­ila og vef­síður eru skráðar á dönsk lén. Samkvæmt skýrslu starfs­hóps­ins við­heldur við­kom­andi aðili sömu mark­aðs­setn­ingu í gegnum SMS-skila­boð og úrskurð­ar­nefnd fjar­skipta- og póst­mála úrskurð­aði að það bryti í bága við lög.

Aftur á móti segir í skýrslu starfs­hóps­ins að ekki hafi verið könnuð sér­stak­lega mark­aðs­setn­ing á lög­legum neyt­enda­lánum. Í skýrsl­unni er þó fjallað um laga­setn­ingu um mark­aðs­setn­ingu skyndilána í Noregi og Svíþjóð. Í Svíþjóð er kveðið á um hóf­lega mark­aðs­setn­ingu og sam­kvæmt laga­setn­ingu þar í landi er kveðið á um að ef neyt­enda­lán eru með háan árlegan hlut­falls­legan kostnað, ÁHK, þá beri lán­veit­anda að veita neyt­anda sér­stakar upp­lýs­ingar um áhætt­una sem fylgir lán­tök­unni. Í norskum lögum er hins vegar lagt bann við því að setja fram upp­lýs­ingar um hversu auð­velt sé að taka lán. Til dæmis hversu hratt hægt sé að fá lán, hversu hratt megi búast við að fá svar við fyr­ir­spurn um lán, hversu ein­falt umsókn­ar­ferlið sé og svo fram­vegis.

Miðlægur skuldagrunnur og fjármálafræðsla

Umboðs­maður skuld­ara lagði einnig til að settur yrði á fót mið­lægur skulda­grunnur. Ljóst er – líkt og fjallað var um hér að ofan – að ein­stak­lingar geta auð­veld­lega tekið mörg lán á stuttum tíma hjá ólíkum þjón­ustu­að­ilum og þannig skuld­sett sig langt umfram greiðslu­getu. Því telur Umboðs­maður að með því að skrá skulda­stöðu ein­stak­linga væri hægt að koma í veg fyrir að sami ein­stak­lingur tæki mörg lán hjá ólíkum aðilum með ofan­greindum afleið­ingum. Slík skrán­ing myndi auk þess veita yfir­sýn yfir umfang útlána af þessu tagi sem ekki er fyrir hendi í dag. Ásta Sigrún segir að því væri slíkur mið­lægur gagna­grunnur hags­muna­mál fyrir ríkið, lán­veit­endur og lán­tak­endur. Hún bendir jafn­framt á að aðkoma lög­gjafans sé nauð­syn­leg en að fyr­ir­myndir um slíkan skulda­grunn megi finna erlendis, bæði ríkis- og einka­rekna.

Enn fremur bendir Umboðs­maður skuld­ara á að til þess að ungt fólk hefji ekki sitt fjár­hags­lega sjálf­stæða líf með neyslu­skuldir á bak­inu þá verði að tryggja að ein­stak­lingar hafi for­sendur til að taka upp­lýstar ákvarð­anir í fjár­málum. Því telur Umboðs­maður að mennta- og vel­ferð­ar­kerf­ið, fjár­mála­fyr­ir­tæki og fleiri aðilar þurfi að vinna saman til að tryggja sam­ræmda fjár­mála­fræðslu barna og ung­menna og að sú fræðsla þurfi að byrja snemma. Starfs­hópur ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra fjall­aði einnig um bætt fjár­mála­læsi í til­lögum sínum og lagði hóp­ur­inn til að fund­inn verði staður í námskrá fyrir fjár­mála­fræðslu í grunn­skólum.

Í skýrslu starfs­hóps­ins er auk þess lagt til að gerðar verði kröfur um aukna upp­lýs­inga­gjöf lán­veit­enda sem ekki eru ­eft­ir­lit­sskyld­ir til eft­ir­lits­að­ila. Hóp­ur­inn lagði auk þess til að lögum verði breytt þannig að ­neyt­andi verði ekki kraf­inn um greiðslu vaxta og kostn­aðar af láni ef skil­málar láns­ins brjóta í bága við lög­bundið hámark á árlegri hlut­falls­tölu kostn­að­ar, þar á meðal ef lánið er tekið hjá erlendum lög­að­ilum. Hópurinn lagði til fjölda ann­arra til­löga að úrbótum en þær má finna hér. Í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu í mars síð­ast­liðnum kom fram að unnið yrði áfram með til­lögur starfs­hóps­ins í sam­ráði við þar til bærra aðila og stofn­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið undanfarið ár