Munu ekki geta rukkað ólöglega smálánavexti fram að lagasetningu

Ef smálánatakar leita til lögmanna Neytenda­samtakanna, sem VR ætlar að borga fyrir, í stað þess að borga ólöglega vexti þá gæti það komið í veg fyrir að smálána­fyrirtækið geti stundað þá starfsemi fram yfir boðaða laga­setningu um starfsemi þeirra.

Einn megin­tilgangur þess að VR greiði þann lögfræði­kostnað sem til fellur vegna ákvörðunar smálána­taka að hætta að greiða ólöglegan vaxta­kostnað af slíkum lánum er sá að hindra að þau geti innheimt útistandandi kröfur fram yfir boðaða laga­setningu um starfsemi þeirra. Stjórn VR samþykkti í gærkvöldi með öllum greiddum atkvæðum að ger­ast fjár­­hags­­legur bak­hjarl neyt­enda í bar­átt­unni gegn smá­lán­­um.

Í því mun fel­­ast að VR, í sam­­starfi með Neyt­enda­­sam­tök­un­um, mun leggja út fyrir kostn­aði vegna lög­­fræð­i­vinnu og dóms­­mála sem þarf að höfða til að koma í veg fyrir að smá­lána­­fyr­ir­tæki og þeir sem sinna inn­­heimtu fyrir þau geti haldið áfram að inn­­heimta okur­vexti frá lán­tök­­um.

Frumvarp um breytingar á lögum um neytendalán, sem sett er fram til höfuðs smálána­starfsemi hérlendis, hefur verið í umsagnar­ferli frá 12. júlí síðastliðinn í Samráðs­gátt stjórn­valda. Því ferli lýkur á morgun, 16. ágúst og enn sem komið er hafa engar umsagnir borist. Samkvæmt skilgreindum markmiðum frum­varpsins er því ætlað að þrengja að smálána­fyrirtækjum og koma í veg fyrir veitingu ólögmætra lána sem innheimta of háan heildar­lántöku­kostnað.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðherra, hefur sagt það opinber­lega að hún ætli sér að stöðva starfsemi smálána­fyrirtækja og ofan­greint frumvarp hennar þess efnis verður lagt fram í haust.

Smálána­fyrirtækin eiga sér enga sýnilega talsmenn á Alþingi og í ljósi þess að þingmenn úr öllum átta flokkum sem sæti eiga á Alþingi lögðu saman fram frumvarp sem ætlað var að hemja smálána­starfsemi fyrir tæpu ári síðan má ætla að frumvarp Þórdísar Kolbrúnar muni njóta þver­pólitísks stuðnings. Því ætti að vera hægt að afgreiða frum­varpið sem lög nokkuð fljótt.

Hvetja fólk til að greiða ekki ólöglega vexti

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði í samtali við Kjarnann í gær að hann teldi að Almenn inn­heimta ehf., sem sér um innheimtu fyrir Kredia, Hrað­peningar, Smálán, 1909 og Múla, sé í her­ferð við að ná inn sem mestu af útistand­andi meintum skuldum á næstu vikum áður en að nýtt frum­varp sem á að koma í veg fyrir starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja, sem verður lagt fram í haust, verður sam­þykkt.

Þeir sem fá ekki sundur­liðaða reikninga sem sýni að innheimtur kostnaður sé lögmætur eru hvattir til þess að hætta að greiða af smálánum sínum og leita þess í stað til lögmanna á vegum Neytenda­samtakanna til að leita réttar síns.

Með ákvörðun stjórnar VR í gær, um að gerast fjárhags­legur bakhjarl barátt­unnar gegn smálánum með því að greiða lögfræði­kostnað þeirra sem ákveða að hætta að greiða ólöglega vexti eða smálána­reikninga sem eru ekki sundur­liðaðir, er verið að spyrna við því að smálána­fyrirtækin nái að innheimta þann vaxta­kostnað sem þau telja sig eiga útistandandi.

Neytendasamtökin stóðu ráðþrota gagnvart „svínslegum viðskiptaháttum“

Neytenda­samtökin hafa verið í forgrunni í barátt­unni gegn smálána­fyrir­tækjunum undan­farin misseri. Í tilkynningu frá þeim sem send var út 31. júlí síðastliðinn kom fram að fólk væri krafið um greiðslur á ólög­mætum vöxtum og him­in­háum van­skila­kostn­aði en hafi í mörgum til­fellum verið látið borga marg­falt meira en því ber. „Al­menn inn­heimta ehf. leikur enn þann ljóta leik að hóta fólki með skrán­ingu á van­skila­skrá Creditinfo, stilla því upp við vegg og inn­heimta him­in­háan van­skila­kostnað ofan á kröfur sem fyrir liggur að eru ólög­mæt­ar.“

Samtökin segja að fyrir­tækið Almenn inn­heimta ehf. virð­ist gera allt til að flækja mál og tefja, meðal ann­ars að áskilja sér 90 daga rétt til að afhenda sund­ur­liðun yfir kröf­urn­ar. Þá væri fyr­ir­tækið allt í einu farið að gera þá kröfu að fólk sendi mynd af per­sónu­skil­ríki þrátt fyrir að hafa nægj­an­lega upp­lýs­ingar til að inn­heimta af því him­in­háar kröf­ur. „Fengju lán­tak­endur sund­ur­liðun í hend­ur, kæmi lík­leg­ast í ljós að margar kröf­urnar eru ólög­mætar og hafi þegar verið greiddar marg­fald­lega til baka eins og mörg dæmi sanna.“

Sam­tökin sögðust standa ráð­þrota gagnvart þessu fram­ferði og ekki muna eftir jafn svíns­legum við­skipta­háttum og aðför að hópi neyt­anda sem oft sé veikur fyr­ir. Þá sé með öllu óskilj­an­legt að lög­maður skuli kom­ast upp með inn­heimtu á ólög­legum lánum og að halda mik­il­vægum gögnum frá lán­tak­end­um. Erindi Neyt­enda­sam­tak­anna til Lög­manna­fé­lags Íslands vegna starfs­hátta Gísla Kr. Björns­sonar,eiganda Almennrar innheimtu ehf., var vísað frá vegna aðild­ar­skorts.

Gísli Kr. Björns­son hefur gefið það út að fyr­ir­tækið sé hætt að veita smá­lán og inn­heimta smá­lán á hærri vöxtum en 53,75 pró­sent. Hann hefur enn fremur sagt að Almenn inn­heimta ehf. hafi útvegað allar sundur­liðanir sem þau hefðu verið beðin um. Neyt­enda­sam­tökin halda því aftur á móti fram að full­yrð­ingar Gísla stang­ist á við reynslu skjól­stæð­inga þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár