Ábendingar streyma inn til Neytendasamtakanna vegna smálána

Samkvæmt Neytenda­samtökunum er lántakendum smálána enn neitað um sundur­liðun á kröfum og heldur innheimta ólögmætra lána áfram.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna. Mynd: Skjáskot/RÚV

Nú sem fyrr streyma inn til Neytenda­samtakanna ábendingar og fyrir­spurnir frá fólki sem hefur tekið smálán sem eru í innheimtu hjá Almennri innheimtu ehf. þrátt fyrir yfir­lýsingar fyrir­tækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytenda­samtökunum.

Þá segir í tilkynningunni að fólk sé krafið um greiðslur á ólögmætum vöxtum og himinháum vanskila­kostnaði en hafi í mörgum tilfellum verið látið borga margfalt meira en því ber. „Almenn innheimta ehf. leikur enn þann ljóta leik að hóta fólki með skráningu á vanskila­skrá Creditinfo, stilla því upp við vegg og innheimta himinháan vanskila­kostnað ofan á kröfur sem fyrir liggur að eru ólögmætar,“ segir í tilkynningunni.

Gísli Kr. Björnsson, eigandi innheimtu­fyrir­tækisins Almenn innheimta, hefur gefið það út að fyrir­tækið sé hætt að veita smálán og innheimta smálán á hærri vöxtum en 53,75 prósent. Hann hefur enn fremur sagt að Almenn innheimta hafi útvegað allar sundur­liðanir sem þau hefðu verið beðin um. Neytenda­samtökin halda því aftur á móti fram að full­yrðingar Gísla stangist á við reynslu skjólstæðinga þeirra.

Standa ráðþrota gagnvart þessu framferði

„Athygli vekur að Almenn innheimta virðist gera allt til að flækja mál og tefja, meðal annars að áskilja sér 90 daga rétt til að afhenda sundur­liðun yfir kröfurnar. Þá er fyrir­tækið allt í einu farið að gera þá kröfu að fólk sendi mynd af persónu­skilríki þrátt fyrir að hafa nægjanlega upplýsingar til að innheimta af því himinháar kröfur. Fengju lántakendur sundur­liðun í hendur, kæmi líklegast í ljós að margar kröfurnar eru ólögmætar og hafi þegar verið greiddar margfaldlega til baka eins og mörg dæmi sanna,“ segir í frétt Neytenda­samtakanna um málið.

Samtökin segjast standa ráðþrota gangvart þessu framferði og ekki muna eftir jafn svíns­legum viðskipta­háttum og aðför að hópi neytanda sem oft sé veikur fyrir. Þá sé með öllu óskiljanlegt að lögmaður skuli komast upp með innheimtu á ólöglegum lánum og að halda mikil­vægum gögnum frá lántakendum. Erindi Neytenda­samtakanna til Lögmanna­félags Íslands vegna starfs­hátta Gísla Kr. Björns­sonar var vísað frá vegna aðildar­skorts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár