Fjögur stærstu ESB-ríkin hvetja til alheimsskatts á fyrirtæki

Fjármála­ráðherrar fjögurra stærstu aðildar­ríkja Evrópu­sambandsins hafa sent frá sér yfir­lýsingu þar sem mælt er með því að ríki heims komi sér saman um alþjóð­legan lágmarks­skatt á fyrirtæki.

Frá fundi G7-ríkjanna í London í dag.
Frá fundi G7-ríkj­anna í London í dag. Mynd: EPA

Fjármála­ráðherrar Þýska­lands, Frakk­lands, Ítalíu og Spánar hafa sent frá sér sameiginlega yfir­lýsingu þar sem þeir hvetja til þess að alþjóð­legur skattur verði settur á fyrirtæki svo að koma megi í veg fyrir skatta­undanskot.

Yfir­lýsingin var birt á vef Guardian fyrr í dag, en samkvæmt henni hefur þörfin fyrir slíka skatt­lagningu aukist til muna þar sem ýmis alþjóðleg tækni­fyrirtæki hafa hagnast töluvert á núverandi efnahags­þrengingum.

Ráðherrarnir sögðu einnig að skatt­lagningin væri mikilvægt skref í að þróun skatt­lagningar, þar sem starfsemi fyrir­tækja væri í auknum mæli að færast yfir á netið. Þá sögðu þeir líka að yfir­standandi kreppa hefði aukið ójöfnuð og að fyrir­tækin þyrftu að leggja sitt af mörkum til að sporna gegn honum.

Í bréfinu voru undirboð í skatta­málum einnig fordæmd, en samkvæmt ráðherrunum myndu þau einungis draga úr skatt­tekjum, jöfnuði og getu hins opinbera til að veita grunn­þjónustu.

Ráðherrarnir, fyrir utan fjármála­ráðherra Spánar, hitta kollega sína í Bretlandi, Banda­ríkjunum, Kanada og Japan á fundi G7-ríkjanna í London í dag þar sem skatt­lagningin verður til umræðu. Í áður­nefndri yfir­lýsingu stendur að alheims­skatturinn sé „innan seilingar,“ en samkvæmt umfjöllun Guardian um málið myndi samkomulag á fundinum í London verða mikilvægt skref í átt að stærra samkomu­lagi sem gæti náðst á fundi G20-ríkjanna á Ítalíu í næsta mánuði.

Kjarninn hefur áður fjallað um mögulegan alheims­skatt á fyrirtæki, en Janet Yellen, fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna sagði á fundi G20 ríkjanna fyrr í vor að Banda­ríkin myndu ekki lengur vera griðarstaður fyrir netfyrirtæki sem væru á flótta undan skatt­lagningu.

Samkvæmt heimildum Guardian hefur Rishi Sunak, fjármála­ráðherra Bretlands, einnig færst nær hugmyndinni um alheims­skatt á síðustu dögum ef hægt yrði að auka skatt­lagningu á bandarískum tækni­fyrirtækjum í Bretlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár