Yellen vill alþjóðlega fyrirtækjaskatta

Fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna hefur verið að vinna að samn­ingi um lág­marks­skatt á fyr­ir­tæki á heims­vísu í sam­vinnu við OECD. Samn­ing­ur­inn myndi ná til rúm­lega 140 landa heims­ins og gæti litið dags­ins ljós í sumar.

Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna.
Janet Yellen, fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Janet Yellen, fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, gæti náð sam­komu­lagi við Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ina (OECD) um samn­ing á milli rúm­lega 140 landa um lág­marks­skatt­heimtu á fyr­ir­tæki. Samn­ing­ur­inn gæti einnig inni­haldið breyt­ingu í skatt­lagn­ingu á net­fyr­ir­tækjum, en ef samn­inga­við­ræður Yellen við OECD eru árang­urs­ríkar gæti hann verið til­bú­inn í sumar. Þetta kemur fram í frétt á vef Washington Post sem birt var í gær.

Tvær tillögur frá OECD

Í frétt­inni segir að áætl­anir rík­is­stjórnar Banda­ríkj­anna um að hækka fyr­ir­tækja­skatta til að fjár­magna stækkun heil­brigð­is­kerf­is­ins og inn­viða­upp­bygg­ingu þar í landi hafa mætt nokk­urri gagn­rýni úr röðum repúblik­ana. Samkvæmt þeim myndi slík skatt­lagn­ing draga úr sam­keppn­is­hæfni banda­rískra fyr­ir­tækja og hvetja til þess að þau flyttu úr landi.

[links]Yellen hefur mætt þeirri gagn­rýni með því að leita leiða til að búa til gólf á fyr­ir­tækja­skatta á heims­vísu, en með því myndi sam­keppn­is­hæfni Banda­ríkj­anna ekki skerð­ast jafn­mikið þótt skatt­lagn­ing á fyr­ir­tækjum jyk­ist.

Hún hefur nú staðið í samn­inga­við­ræðum við OECD, sem leiðir sam­eig­in­legt átak yfir 140 landa í að setja á fót alþjóð­lega skatta með tveimur til­lögum.

Önnur til­lagan snýr að lág­marks­sköttum fyr­ir­tækja, en sam­kvæmt frétt­inni er stefnt að því að löndin komi sér saman um lág­mark á skatt­lagn­ingu á hagn­aði. Lág­markið yrði ekki bundið í lög, en rík­is­stjórnir þátt­töku­landa gætu inn­heimt við­bót­ar­skatt af starf­semi fyr­ir­tækja sinna í öðrum löndum þar sem lág­marks­skatt­ur­inn væri ekki inn­heimtur. Ekki er enn ákveðið hvert lág­markið yrði, en sam­kvæmt Washington Post gæti það verið í kringum 12 pró­sent af hagn­aði fyr­ir­tækja.[adspot]

Hin til­laga OECD snýr hins vegar að skatt­lagn­ingu alþjóð­legra fyr­ir­tækja sem starfa á net­inu, en sam­tökin vilja skatt­leggja starf­semi fyr­ir­tækj­anna í þeim löndum þar sem not­endur þeirra eru staddir, í stað þess að þau séu ein­ungis skatt­lögð í lönd­unum sem þau eru skráð.

Breyttur tónn en áskorun að ná í gegnum þingið

Hingað til hafa stjórn­völd í Banda­ríkj­unum ekki verið jákvæð í garð þess­arar til­lögu, þar sem mörg net­fyr­ir­tækj­anna eru skráð í Banda­ríkj­unum og skatt­lögð þar. Breyting á skatt­lagn­ingu þeirra gætu því dregið úr skatt­tekjum þar í landi.

Hins vegar má greina breyttan tón gagn­vart þessu ákvæði hjá Yellen, en á fundi G20 ríkj­anna í síð­asta mán­uði sagði fjár­mála­ráð­herr­ann að Banda­ríkin myndu ekki lengur vera grið­ar­staður fyrir net­fyr­ir­tæki sem væru á flótta undan skatt­lagn­ingu. Samkvæmt Washington Post merkja þessi ummæli að Banda­ríkin séu til­búin til að gefa eitt­hvað eftir í afstöðu sinni gagn­vart slíkri skatt­lagn­ingu.

Ef Banda­ríkin kom­ast að sam­komu­lagi við OECD um skatt­lagn­ingu á net­fyr­ir­tækjum gæti farið svo að sam­komu­lag myndi einnig mynd­ast um lág­mark fyr­ir­tækja­skatts á heims­vísu. Hins vegar bætir Washington Post við að slíkt sam­komu­lag þyrfti að fara í gegnum Banda­ríkja­þing, sem gæti reynst erfitt í ljósi sterkra ítaka tækni­fyr­ir­tækj­anna á meðal þing­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár