Leiðtogar EES og EFTA með sameiginlega stefnu gagnvart Brexit

Utan­rík­is­ráð­herrar þriggja EFTA-ríkja hafa ákveðið að hefja sam­eig­in­lega stefnu fyrir afleið­ingar útgöngu Bret­lands úr ESB.

Ina Marie Eriksen, Guðlaugur Þór og Aurelia Frick í Osló í morgun.
Ina Marie Eriksen, Guð­laugur Þór og Aurelia Frick í Osló í morgun. Mynd: Utanríkisráðuneytið

Utan­rík­is­ráð­herrar Íslands, Noregs og Liechtenstein ákváðu í dag að hefja sam­eig­in­lega kort­lagn­ingu á hags­munum sínum vegna útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Guð­laugur Þór Þórð­ars­son utan­rík­is­ráð­herra Íslands fund­aði með Ine Marie Eriksen Søreide, utan­rík­is­ráð­herra Noregs, og Aureliu Frick, utan­rík­is­ráð­herra Liechtenstein í Osló í morgun.

„Við höfum lagt á það áherslu að EFTA-ríkin þrjú sem eiga aðild að EES móti sér sjálf­stæða stefnu gagn­vart Bret­landi og ESB þar sem hags­munir ríkj­anna þriggja væru í fyr­i­r­úmi. Nið­ur­staða fund­ar­ins í dag er stór áfangi í þeirri vinnu,“ sagði Guð­laugur Þór að fund­inum loknum.

Guð­laugur hefur áður mælt með sam­starfi EES-ríkja gagn­vart útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, en hann stýrði fundi EES-ráðs­ins með Michel Barnier, aðal­samn­inga­manni Evr­ópu­sam­bands­ins fyrir nokkrum vikum. Aurelia Frick og Ine Marie Eriksen voru einnig við­stödd á þeim fundi, en Guð­laugur lagði þar einnig áherslu á hve brýnt væri að ná fram far­sælli nið­ur­stöðu út frá Brexit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár