Japanir munu hefja hvalveiðar næsta sumar

Japan mun segja sig úr Alþjóða hvalveiði­ráðinu (IWC) og hefja hval­veiðar í atvinnu­skyni í japanskri lögsögu næst­komandi sumar.

Japan mun segja sig úr Alþjóða hvalveiði­ráðinu (IWC) og hefja hval­veiðar í atvinnu­skyni í japanskri lögsögu næst­komandi sumar. Þetta kemur fram í frétt RÚV en talsmaður japönsku ríkis­stjórnarinnar stað­festir þetta í fjöl­miðlum eystra.

Formleg ákvörðun um þetta var tekin á ríkis­stjórnar­fundi í morgun. Úrsögnin tekur gildi 30. júní á næsta ári og daginn eftir er áætlað að hefja atvinnu­veiðar í japanskri lögsögu. Um leið munu Japanir hætta öllum hval­veiðum í Suður-Íshafi og annars staðar á suður­hveli Jarðar, segir í fréttinni.

Þá kemur fram að ákvörðun Japana um að segja sig úr Alþjóða hvalveiði­ráðinu komi ekki á óvart og hafi raunar legið í loftinu síðan í september, þegar ráðið synjaði umsókn þeirra um að fá að taka upp atvinnu­veiðar í eigin lögsögu á ný.

„Hval­veiðar eiga sér aldalanga sögu í Japan. Samkvæmt þarlendum hvalveiði­samtökum nær sú saga allt aftur til tólftu aldar, en skipulagðar hval­veiðar munu hafa byrjað þar snemma á sautjándu öld. Japanir gerðust aðilar að Alþjóða hvalveiði­ráðinu 1951, í þann mund sem hval­veiðar þeirra voru að ná hámarki. Talið er að um eða yfir 2.000 hvalir hafi verið verkaðir í stærstu hvalstöð landsins þegar mest var á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.

Mjög hefur dregið úr hvoru tveggja veiðum og neyslu Japana á hval á síðustu árum og áratugum og nú er svo komið að meirihluti lands­manna borðar sjaldan eða aldrei hvalkjöt og neyslan komin niður í 5.000 tonn á ári í stað 200.000 tonna á sjöunda áratugnum,“ segir í fréttinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár