Níu látnir í Berlín eftir að keyrt var inn í mannfjölda á jólamarkaði

Að minnsta kosti níu eru látnir og fjöldi manns slasaðist þegar vöru­bíl var ekið inn í mann­mergð á jóla­markaði í miðborg Berlín­ar, á Breitscheidtplatz, nú fyrir stundu. Breska ríkis­útvarpið BBC seg­ir níu hafa far­ist og að minnsta kosti 50 manns hafi slasast, sumir alvarlega.

Upplýsingar eru að berast af vettvangi, en ökumaður bílsins er sagður á flótta. 

Uppfært 22:00: Utan­ríkis­ráðuneytið hvetur Íslendinga, sem eru nú í Berlín, til að láta vita af sér. Í yfir­lýsingu frá ráðuneyti Lilju Daggar Alfreðs­dóttur, utan­ríkis­ráðherra, er þetta áréttað. „Hvetur utan­ríkis­ráðuneytið alla Íslendinga í Berlín sem ekki hafa látið aðstand­endur vita af sér að gera það hið fyrsta en fjölmargir Íslendingar eru búsettir í borginni, auk þess sem margir ferðamenn eru þar að jafnaði. Þá hvetur ráðuneytið Íslendinga í Berlín til að nýta sér samfélags­miðla til að láta vini og ættingja vita að þeir séu óhultir. Borgara­þjónustu utan­ríkis­ráðuneytisins hafa ekki borist neinar upplýsingar sem gefa til kynna að Íslendingar hafi orðið fyrir árásinni í kvöld.

Borgara­þjónustan er í beinu sambandi við neyðar­teymi þýsku stjórn­sýslunnar, sem sett er á fót við atburði sem þessa, og tekur saman upplýsingar um fórnar­lömb árásarinnar. Utan­ríkis­ráðuneytið hvetur alla Íslendinga sem eru á svæðinu að fylgjast vel með tilmælum yfirvalda á staðnum. Sem stendur er fólk beðið um að vera ekki að vera á ferli að óþörfu og halda sig á öruggum stöðum.

Ef aðstand­endur á Íslandi hafa áhyggjur af fólki sem vitað er að er á svæðinu og ná ekki sambandi við það, eru þeir hvattir til að hafa samband við borgara­þjónustu utan­ríkis­ráðuneytisins í síma 5459900,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Uppfært 02:50: Tólf eru nú sagðir látnir, samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC, og í það minnsta 48 slasaðir.

Fréttin verður uppfærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár