Margt helsta áhrifafólk landsins fagnaði með Davíð

Fjármála­ráðherra, borgar­stjóra­efni Sjálfstæðis­flokksins og æðsti stjórn­andi Kaup­félags Skagfirðinga voru á meðal gesta Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgun­blaðsins, á sjötugs­af­mæli hans. Davíð sagði í ræðu sinni að eina blaðið á Íslandi sem hægt væri að lesa, væri Morgun­blaðið.

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson Hér á fund­inum þar sem hann boð­aði til for­seta­fram­boðs árið 2016. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mikill fjöldi áhrifa­fólks í íslensku samfélagi fyrr og nú heiðraði Davíð Oddsson, ritstjóra Morgun­blaðsins og fyrr­verandi forsætis­ráðherra og seðla­bankastjóra, í sjötugsafmæli hans í húsnæði Morgun­blaðsins á Hádegismóum í gær. 

Fjallað um afmæli rit­stjór­ansSmartland á Mbl.is fjallar um afmæli rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Á mynd­unum sést Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ræða málin við Agnesi Braga­dóttur, blaða­mann Morg­un­blaðs­ins.

Meðal gesta Davíðs voru Þórólfur Gíslason, kaup­félags­stjóri Kaup­félags Skaga­fjarðar, Eyþór Arnalds, fram­bjóðandi í oddvita­sæti Sjálfstæðis­flokksins í Reykja­víkurborg, Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra, Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins, Ingvi Hrafn Jónsson, fyrr­verandi sjónvarps­stjóri ÍNN, Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins, Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðla­maður, Svanhildur Hólm Vals­dóttir, aðstoðar­kona Bjarna Benedikts­sonar, Gunnlaugur Sigmundsson, faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, formanns Miðflokksins, auk fjölda fjölmiðla­fólks sem starfar fyrir Árvakur. Þá voru viðstaddir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrr­verandi borgar­stjóri, og Ólafur F. Magnússon, einnig fyrr­verandi borgar­stjóri.

Í ræðu sinni gagnrýndi meðritstjóri Davíðs, Haraldur Johannessen, núverandi borgar­yfirvöld fyrir að hugsa ekki um hag skatt­greiðenda, eins og Davíð. 

Fjallað er um afmæli Davíðs á mbl.is og myndir birtar af gestunum. 

Fram kemur á Vísi.is að Davíð hefði í ræðu sinni sent öðrum íslenskum prent­miðlum með þeim orðum að ekkert blað væri hægt að lesa á Íslandi annað en Morgun­blaðið. „Reyndar er ekkert annað blað í landinu, satt best að segja. Ekki sem hægt er að lesa. Það er til blað sem vitað er að einhverjir fletti en ég hef ekki enn hitt neinn sem les það,“ sagði hann.

Sama dag hafði Morgun­blaðið birt langa lofgrein um Davíð og störf hans. Höfundur greinarinnar er Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sem leggur nú lokahönd á skýrslu um erlenda áhrifa­þætti íslenska efnahags­hrunið, en niður­staða hans í greininni stangaðist í megin­atriðum á við niður­stöðu Rann­sóknar­skýrslu Alþingis vegna hruns bankanna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár