Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir líklega atkvæði í dag um útþynnta tillögu Persaflóa­ríkja um að sérhverju landi verði heimilt að beita hervaldi til að opna fyrir siglingar um Hormús­sund. Olíuverð hefur snar­hækkað eftir að Íranir svo gott sem lokuðu sundinu eftir árásir Banda­ríkjanna og Ísraels á landið.

Öryggisráðið
Örygg­is­ráðið Lönd sem eiga fast sæti í örygg­is­ráð­inu – og þar með neit­un­ar­vald – hafa ekki verið á bandi Persaflóa­ríkj­anna í mál­inu. Mynd: EPA

Búist er við að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiði atkvæði í dag um útvatnaða ályktun þar sem kallað er eftir því að Hormús­sund verði opnað. Tillagan er langt frá upphaf­legu markmiði Persaflóa­ríkjanna sem standa að henni, um að fá heimild til að opna siglinga­leiðina með valdi.

Atkvæða­greiðslan er áætluð klukkan þrjú í dag, þótt niður­staðan sé ekki vís. Texti ályktunarinnar hefur verið þynntur út undan­farna daga í von um að koma í veg fyrir að henni verði hafnað. Í drögum sem AFP sá í gær er ekki lengur minnst á heimild til vald­beitingar – ekki einu sinni í varnar­skyni.

Atkvæða­greiðslan fer fram aðeins nokkrum klukku­stundum áður en frestur sem Donald Trump forseti Banda­ríkjanna gaf Íran til að að opna sundið eða eiga á hættu að bandaríski herinn eyðileggi orkuver og brýr landsins. Fresturinn rennur út á miðnætti. 

Stjórn­völd í Barein, með stuðningi Banda­ríkjanna og annarra olíu­útflutnings­ríkja við Persaflóa, …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár