Sjálfstæðismenn þeir einu sem treysta frekar Bjarna

70,7 prósent bera lítið traust til Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra á meðan 18,3 prósent segjast bera mikið traust til hans. Þetta sýnir ný traust­mæling Maskínu. Ásmundur Einar Daðason nýtur mests trausts.

Tapar trausti
Tapar trausti Bjarni hefur misst traust, sam­kvæmt mæl­ingu Maskínu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mikill meirihluti þjóðarinnar ber lítið traust til Bjarna Bendiktssonar, fjármála­ráðherra og formanns Sjálfstæðis­flokksins. Aðeins stuðnings­fólk Sjálfstæðis­flokksins bera meira traust en minna til hans. Þeim sem bera mikið traust til Bjarna hefur fækkað um 19 prósentu­stig á milli mælinga. Þetta sýnir reglu­bundin mæling Maskínu á trausti til ráðherra sem birt var í morgun. 

Níu prósent stuðnings­fólks Sjálfstæðis­flokksins bera frekar lítið eða mjög lítið traust til Bjarna, samkvæmt mælingunni, á meðan 60,9 prósent þeirra segjast bera mjög mikið eða frekar mikið traust til hans. Stuðnings­fólk allra annarra stjórn­málaflokka vantreysta honum frekar en treysta, en það eru helst þeir sem styðja Miðflokkinn og Framsókn sem treysta Bjarna. 17,7 prósent Fram­sóknarfólks ber traust til hans og 17,1 prósent Miðflokks­fólks. 

Yfir 90 prósent stuðnings­fólks Flokks fólksins, Pírata og Sósíal­ista vantreysta ráðherranum. 

Flestir treysta Ásmundi

Með traustÁsmundur Einar nýtur mest trausts allra ráð­herr­anna.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    18,3% illmenni sem hugsa bara um sitt rassgat og vona margir hverjir að þeir fái mynslu af gnægtar borðum auðvaldsmafíunar. Stór hluti þessara kjósenda eru ógerslega meðvirkir og fjöldinn haldin ólæknandi Stokkhólmsveiki.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Hún sem áður uppúr stóð
    á öllum gáfnaprófum,
    hefur svikið sína þjóð
    og sest til borðs með þjófum.

    Hún sem þótti haukleg mær
    og hafði kjarkinn mikla
    í úlfakreppu andlaus fær
    með íhaldi að sprikla.

    Nú auðvaldið hún elskar heitt
    og arðráni vill sinna
    því aldraðir fá ekki neitt
    og öryrkjar fá minna.

    Er þingmenn okkar aumir fá
    við orðaskak að fitla
    á villigötum valdsins þá
    vappar Katrín litla.

    Höf.Kristjàn Hreinsson
    3
  • Arnar Gudlaugsson skrifaði
    Jafnvel Nixon þurfti að segja af sér með meiri stuðning en Bjarni
    2
  • Gauti Bergmann Víðisson skrifaði
    Enda er þetta sértrúarsöfnuður. Og ógeðslegur söfnuður í þokkabót
    3
    • Sigurður Haraldsson skrifaði
      100% sammála því þeir verja barnaníðingana líka.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár