Heilinn er gerður til að halda okkur öruggum en ekki hamingjusömum

Sálfræð­ing­urinn Hugrún Sigurjóns­dóttir þýddi Hamingju­gildruna sem byggir á ACT meðferðar­stefnu. Hún segir heilann gerðann til að halda okkur öruggum, ekki hamingju­sömum. En með hjálp ACT er hægt að auka hamingju í hversdags­leikanum og lifa í meiri sátt við sjálfan sig.

Hugrún Sigurjónsdóttir
Hugrún Sig­ur­jóns­dóttir Er þýð­andi Ham­ingju­gildrunnar. Hugrún segir að fólk mætti sýna sér meiri umhyggju­semi. Mynd: Golli

Hugrún Sigurjóns­dóttir er klínískur sálfræðingur sem starfar á Reykja­lundi, Samkennd Heilsu­setri og Sálfræði­stofu Suðurnesja í Reykja­nesbæ. Fyrir þremur árum síðan kom bókin Hamingju­gildran út í þýðingu hennar. Höfundur Hamingju­gildrunnar er Russ Harris en hann hefur heimsótt Ísland tvisvar og haldið námskeið fyrir sálfræðinga og annað fagfólk í heilbrigðis­geiranum. Í bókinni eru kynnt verkfæri til að takast á við líðan okkar sem getur verið jafn­breytileg og íslenska veðrið. 

Hugrún Sig­ur­jóns­dóttir og Russ HarrisHugrún ásamt höf­undi Ham­ingju­gildrunnar, Russ Harris. Bókin fjallar um það hvernig hægt er að nota aðferðir ACT til þess að auka lífs­gæði.

Valpunktur

Hamingju­gildran er eina bókin sem komið hefur út í íslenskri þýðingu sem byggir á ACT meðferðar­stefnu. ACT er skamm­stöfun fyrir Acceptance and commitment therapy og hefur náð fótfestu í íslenskri tungu.

Saga ACT meðferðar­stefnunnar spannar rúm 40 ár. Grunnur hennar gengur …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár