Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir lækna fá „útrás fyrir hégóma í sviðsljósi fjölmiðla“

Óli Björn Kárason segir að til þess að magna upp ótta almennings vegna kórónu­veiru sé grafið skipulega undan trausti á heilbrigðis­kerfið. Það að vera frjáls borgari sé „aðeins óljós minning“.

Óli Björn Kárason.
Óli Björn Kárason. Mynd: Bára Huld Beck

Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, segir að gagnrýnin umræðu um aðgerðir stjórn­valda vegna kórónu­veiru­faraldursins eigi erfitt uppdráttar. Frelsið verði fyrsta fórnar­lamb óttans og um leið hverfi umburðar­lyndi gagnvart ólíkum skoðunum. „Leikir sem lærðir veigra sér við að spyrna við fótum og spyrja alvarlegra en nauðsynlegra spurninga þar sem óskað er eftir rökstuðningi fyrir hvers vegna frelsi einstaklinga er takmarkað og hvort of langt sé gengið. Þeim er mætt af full­kominni hörku og á stundum með svívirðingum. Þar ganga því miður læknar, sem fá útrás fyrir hégóma í sviðs­ljósi fjölmiðla, hart fram.“

Þetta kemur fram í grein sem hann birti í Morgun­blaðinu í dag. Þar segir Óli Björn enn fremur að til þess að magna ótta almennings sé grafið skipulega undan trausti á heilbrigðis­kerfið. Það sé þó .þrátt fyrir allt er eitt það besta í heimi, þar sem fram- úrskarandi starfs­fólk vinnur afrek á hverjum degi, sem hvorki fjöl­miðlar né samfélags­miðlar hafa áhuga á.“

Metfjöldi dag eftir dag

Metfjöldi kóronuveirusmita greindist í gær, samtals 215. Aldrei hafa fleiri greinst á einum degi frá því faraldurinn hófst hérlendis og nýgengi smita er nú hærra en nokkru sinni, eða 552. 21 liggja inni á spítala með veiruna, þar af fimm á gjörgæslu. Alls eru 1.773 einstaklingar í einangrun vegna smita og 2.636 eru í sóttkví.

Vegna þeirrar bylgju sem nú ríður yfir hefur verið gripið til hertra sótt­varnar­aðgerða sem fela í sér ýmsar takmarkanir. Í síðustu viku tilkynnti Svandís Svavars­dóttir heilbrigðis­ráðherra, sem situr í ríkis­stjórn með flokki Óla Björns, að frá og með miðnætti síðasta föstudag mættu ein­ungis 50 manns megi vera í sama rým­inu. Allt að 500 manns mega þó koma saman í hverju sótt­varn­ar­hólfi á við­burðum þar sem kraf­ist er hraðprófa.

Veit­inga­hús og barir þurfa að loka dyrum sínum kl. 22 og koma öllum gestum út fyrir kl. 23 á kvöldin og fjöldi gesta í sund­laugum og líkams­ræktar­stöðum verður tak­mark­aður við 75 pró­sent af leyfi­legum fjölda sam­kvæmt starfs­leyfi.

Margháttuð gagnrýni

Þegar gagnrýni fór að heyrast á þessar aðgerðir, meðal annars frá þeim sem verða af tekjum vegna þeirra, stigu ýmsir læknar fram og bentu á að verja þyrfti Land­spítalann frá viðbótar­álagi með aðgerðunum. Á meðal þeirra var Þórir Bergsson, sérnáms­læknir í bráða­lækningum á Land­spítalanum. Hann sagði í stöðu­uppfærslu á Facebook síðastliðinn föstudag að „Spítalinn var smekk­pakkaður fyrir þessa bylgju og við vorum komnir í 30-40 manns á BMT [bráða­móttöku] sem biðu eftir innlögn á hverjum degi [...] Spítalinn semsagt með rúma­nýtingu vel yfir 100%. Ástandið á gjör­gæslunni er almennt sveiflu­kenndara og oftast bærilegt, en það þarf lítið til að vagga þeim báti.“

Annar læknir sem stigið hefur fram í umræðunni undan­farna daga er Tómas Guðbjartsson, yfir­læknir á skurð­sviði LSH og prófessor við lækna­deild HÍ. Í grein sem hann birti á Vísi fyrir sex dögum síðan sagði hann að sumar af lykil­deildum Land­spítalans væru að sökkva í sæ. „Það eru engar ýkjur að flagg­skip ís­lenska heil­brigðis­kerfisins er komið með net í skrúfuna – og virðist reka að klett­óttri strönd,“ skrifaði Tómas. og benti á að nær dag­lega heyrðust neyðar­óp frá bráða­mót­töku spítalans. Auk þess væru báðar gjör­gæslu­deildir spítalans fullar upp í rjáfur svo vikum skiptir. Sú staða hafi leitt til þess að ekki væri hægt að fram­kvæma neinar opnar hjarta­að­gerðir í rúm­lega tvær vikur á einu hjarta­skurð­deild landsins. Heppni hafi ráðið því að enginn sjúklingur hafi „komið brátt inn og þurft á lífs­bjargandi að­gerð að halda á þessum tíma. Það er ó­venju­legt og getur breyst strax í dag.“

Læknir segir framgöngu ráðherra skrýtna

Í annarri grein eftir Tómas, sem birtist á Vísi í dag, segir að það verði teljast „skrýtið að ráðherrar skuli stíga fram undir formerkjum einstaklings­frelsis og afnema takmarkanir sem eru nauðsynlegar og settar á með mannúð og hagsmuni heildarinnar að leiðar­ljósi.“

Land­spítalinn sé enn og aftur kominn á hættustig, gjörgæslu­deildir fullar upp í rjáfur og staðan víða mjög þung.

Á ríkis­stjórnar­fundi í gær ræddu ráðherrar Sjálfstæðis­flokks, Vinstri grænna og Framsóknar­flokks um að harðari sótt­varnar­aðgerðir yrðu látnar ganga yfir þá sem kjósa að þiggja ekki bólu­setningu við kórónu­veirunni.

í Frétta­blaðinu var svo greint frá því að til standi að aka strætis­vagni um götur borgarinnar sem bjóði fólki inn til að þiggja bólu­setningu. Búið er að greina hverjir hafi ekki þegið bólu­setningu og að strætis­vagninn verðu komið fyrir í námunda við þá hópa.

Að vera frjáls borgari „aðeins óljós minning“

Óli Björn segir í grein sinni í Morgun­blaðinu í dag að flest séum við fús til að færa fórnir og sætta okkur við að búa við skert athafna­frelsi í ákveðinn tíma til að vinna bug á hættulegri veiru, ekki vegna þess að stjórn­völd þvingi okkur til þess heldur vegna borgaralegrar skyldu sem fylgir því að búa í frjálsu samfélagi. „Það versta sem frjáls einstaklingur gerir er að hlýða athugasemda­laust og án gagnrýni fyrir­mælum stjórn­valda sem með einum eða öðrum hætti takmarka borgarleg réttindi, jafnvel þótt fyrir­mælin séu til að verja almanna­heill. Án aðhalds og gagnrýni verður til ríkis­stjórn reglu­gerða og tilskipana.“

Hann segist viðurkenna nauðsyn þess að stjórn­völd geti gripið til aðgerða í sótt­vörnum til að verja almenning á hættu­tímum. „Um leið verðum við að gera ákveðnar kröfur til stjórn­valda og heilbrigðis­yfirvalda: Að þau viðmið sem stuðst er við séu skýr, öllum ljós og taki mið af breyttum aðstæðum (s.s. bólu­setningu) og betri þekkingu. Að gætt sé samkvæmni í yfir­lýsingum og upplýsingum. Að yfirvöld heilbrigðis­mála nýti svigrúm til að auka viðnáms­þrótt mikil­vægustu stofnana. Að hægt sé treysta því að aldrei sé gengið lengra en þörf er á – að meðal­hófið ráði alltaf för, að stjórn­völd virði grunn­réttindi borg­aranna og starfi innan þeirra valdmarka sem þeim eru mörkuð. Að ekki sé kynt undir ótta til að réttlæta skerðingu á borgara­legum réttindum. Að málefna­legum athuga­semdum og gagnrýni sé ekki mætt af hroka þeirra sem telja sig umboðs­menn valdsins og þekkingarinnar.“

Óli Björn segir að stjórn­völd hafi uppfyllt þessar kröfur illa á síðustu tuttugu mánuðum. „Líklegast er ekki við aðra að sakast en okkur sjálf, sem hlýðum tilskipunum gagnrýnis­laust. Og þess vegna á frelsið í vök að verjast. Að vera frjáls borgari verður aðeins óljós minning.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár