„Ef Facebook væri þjóð, hvernig væri henni þá stjórnað?“

Heimilda­myndin Facebookistan var sýnd á dögunum á Norrænu kvikmynda­hátíðinni en umfjöllunar­efni hennar er ritskoðun og gagna­geymsla á Facebook. Jakob Gottschau, leik­stjóri myndarinnar, var staddur á Íslandi í tengslum við hátíðina.

Jakob Gottschau
Jakob Gottschau Mynd: Bára Huld Beck

Heimilda­myndin Facebookistan var sýnd á Norrænu kvikmynda­hátíðinni sem haldin var í Norræna húsinu dagana 13.-20. apríl. Myndin hefur flakkað milli kvikmynda­hátíða um allan heim og gengið mjög vel. Kjarninn settist niður með leik­stjóranum Jakob Gottschau og spjallaði um kvik­myndagerðar­ferlið og ritskoðun og gagna­geymslu á Facebook.

Jakob Gottschau er danskur heimilda­mynda­gerðarmaður og hefur starfað sem slíkur í 22 ár. Hann hefur t.d. unnið með sögulegt efni um Islam, innflytjendur í Danmörku og samband Danmerkur, Grænlands og Færeyja. Hann byrjaði að skrifa sem blaða­maður þegar hann var við háskólanám í Hróars­keldu. Hann segist glaður hafa yfirgefið akademískt starf til þess að skrifa og síðar búa til myndir.

Útgangs­punktur Facebookistan er spurningin: „Ef Facebook væri þjóð, hvernig væri henni stjórnað?“ Jakob segir að spurningin sé mikilvæg vegna þess að í dag er Facebook einmitt stærsta „landið“ í heiminum og að hans mati hefur fyrir­tækið ákveðnum skyldum að gegna gagnvart notendum sínum.

Var fyrst hrifinn af hugmyndinni um Facebook

Hann byrjaði á verk­efninu fyrir meira en þremur árum. „Ég hafði gert lítil verkefni um samfélags­miðla í Kína, Egypta­landi og Kambódíu. Ég hef mikinn áhuga á því hvernig samfélags­miðlar láta fólk í kúguðum löndum eiga í annars konar samskiptum en þekktust fyrir tíma miðlanna,“ segir Jakob. Hann var því töluvert hrifinn af samfélags­miðlum á þessum tíma og hann segist á vissan hátt enn vera það.

En á sama tíma og hann hafði lokið því verkefni þá lenti vinur hans og samstarfs­félagi, sem er danskur rithöfundur, í því að vera ritskoðaður á Facebook. Hann notaði miðilinn til að eiga í samskiptum við aðdáendur sína og lesendur. Hann hafði skrifað bók um hippa á 7. áratugnum og safnað saman mikið af myndum frá þessu tímabili. Hann setti myndirnar inn á Facebook en sumar þeirra voru nektar­myndir. Myndunum sem hann hafði póstað var nokkru síðar eytt og fékk hann þau stöðluðu skilaboð að innihald póstsins hafi brotið gegn notenda­reglum Facebook.

Handahófskennd ritskoðun

Jakob segir að þetta hafi verið vendi­punkturinn til að kanna hver ritstýrir efninu sem birtist á Facebook. „Það er fólk þarna úti að ritskoða á hverjum degi. Í dag er Facebook nefnilega stærsti almennings­staður í heimi,“ segir hann. „En hvernig fer fólk að því að ritskoða allt þetta efni og hver gerir það?“ Hann telur að ritskoðunin beinist ekki einungis að þessu afslappaða skandinavíska viðhorfi til t.d. nektar, heldur sé efni pólitískra hreyfinga einnig tekið fyrir. „Í Tyrklandi, Egypta­landi og Sýrlandi er verið að ritskoða ýmsa hópa,“ segir hann. Hann bendir á að ákveðinn tvískinn­ingur birtist í velsæmis­reglum á Facebook. Til dæmis sé nekt á sólar­baðströnd ekki leyfileg en öðru gegni um ofbeldi gegn konum í Sýrlandi.

Kossar samkyn­hneigðra séu jafnvel ekki leyfi­legir á meðan það er í lagi fyrir gagn­kynhneigða að sýna atlot sín. „Þegar leitast var eftir viðbrögðum frá Facebook þá sögðust þeir ekki hafa fordóma gegn samkyn­hneigðum,“ segir Jakob. En þrátt fyrir þessar yfir­lýsingar þá gerist þetta ítrekað. Því telur hann að þessi ritskoðun á Facebook sé algjör­lega handahófs­kennd.

Stofnun sem stjórnar stærsta almenningsrými í heimi

Til þess að komast að því hvernig Facebook ritskoðar þá ætlaði Jakob að finna einhvern sem starfaði við ritskoðun. „Við þurftum að tala við manneskju sem hefur eitthvað með þetta að gera. Og við fundum eina. Hún vildi njóta nafn­leyndar en það sem ég get sagt er að hún er fá Suðaustur-Asíu. Hún fékk 1 dollara á tímann og gerði samning við Facebook að segja ekki frá störfum sínum.“ En þrátt fyrir það þá var hún tilbúin að ræða við Jakob undir nafnleynd. Hún sagði einnig frá því að ef hún gæti farið yfir 4000 myndir á klukku­stund (0.9 sek á mynd) þá fengi hún allt að 4 dollara á tímann. Hann segir að ritskoðunin verði væntanlega ekki nákvæm þegar slíkt magn eigi í hlut. Að mati Jakobs er um að ræða stofnun sem stjórnar stærsta almennings­rými í heimi með miklu gagna­magni. Í því felist gríðarleg samfélagsleg ábyrgð.

En hvað verður um þær upplýsingar sem birtast á Facebook?

Hinn vinkillinn sem tekinn er fyrir í heimilda­myndinni er réttur til friðhelgi einkalífs. Jakob segir að sá sjónar­hóll hafi komið til nokkru seinna í verk­efninu. Hann ákvað að rannsaka hvernig Facebook færi með þær upplýsingar sem koma inn í gagna­banka þeirra. „Facebook er með stefnu um friðhelgi einkalífs en óljóst er hvernig þeir sem fyrirtæki fara með þær upplýsingar sem notendur setja á Facebook,“ segir hann. Hann tekur sem dæmi að þegar einhverju er eytt á Facebook þá sé því í raun og veru ekki eytt. Hann segir að öll gögn séu geymd og að notandinn hafi ekki yfirráð yfir því hvað verður um þau gögn.

„Ég held að það sé óhætt að fullyrða að það sé ekki hægt að treysta Facebook fyrir gögnum sem sett eru inn á vefinn,“ segir Jakob. Hann telur þetta vera mikið vandamál þrátt fyrir að fólk hafi jafnvel ekkert að fela. Þetta sé ákveðið prinsipp í lýðræðis­samfélögum sem ekki megi hrófla við. Það megi jafnvel líta á þetta sem gróft mann­réttinda­brot. „Við sem manneskjur eigum rétt á því að eiga okkar einkalíf út af fyrir okkur. Ríkis­stjórnir og fyrirtæki verða að vera gagnsæ en ekki einstaklingar,“ telur hann.

Jakob vitnar í Edward Snowden sem segir: „Ef þér er ekki sama um friðhelgi einkalífs af því að þú hefur ekkert að fela þá er líka hægt að segja að þér sé sama um málfrelsi af því þú hefur ekkert að segja.“ Jakob lítur því þannig á að þrátt fyrir að maður hafi ekkert að fela þá sé mikilvægt að virða þessa friðhelgi.

Hann segir að Facebook sé lang­stærsta fyrir­tækið sem safni gögnum af ýmsu tagi um notendur sína og okkur öll. Að það sé mikilvægt fyrir okkur sem neytendur að vita hvað verður um gögnin okkar.

Facebook lokað og ógagnsætt

Jakob segir að þrátt fyrir að fyrir­tækið segist vera opið og í sambandi við notendur sína þá sé raunin önnur. Það á einungis í samskiptum við notendur sína þegar það ræður sjálft aðstæðunum og sé við völd. Hann telur fyrir­tækið ekki opið heldur þvert á móti mjög lokað og ógagnsætt. Það eigi ekki í samskiptum við notendur sína og sé í raun sama um þá. Það sé gamaldags að því leyti.

Jakob segist aldrei hafa fengið svör frá fyrir­tækinu. Hann hafði samband við fulltrúa Facebook á Norður­löndunum, hann sendi tölvupóst á höfuð­stöðvarnar í Paulo Alto og hann fór til höfuð­stöðvanna í Nýju-Delhi á Indlandi og í Kaliforníu og bankað upp á. Hann segist hafa beðið um svör og að fá að tala við einhvern en ekki fengið nein svör eða viðbrögð af neinu tagi. Einu manneskjurnar sem hann náði að tala við voru öryggis­verðir sem gátu ekki gefið svör eða bent á aðra tengiliði. Hann segir að Facebook hafi hunsað hann algjör­lega.

Fólk verður að geta notað dulnefni

„Einu tilfellin þar sem Facebook svarar eða gefur athuga­semdir eru þegar fréttir birtast á CNN eða BBC. Þá heyrist í þeim,“ segir Jakob. „Fyrir utan það þá ekkert.“ Hann nefnir dæmi þar sem drag­drottning, Sister Roma, fór með mál sitt í fjölmiðla. Facebook hafði eytt notenda­reikning hennar vegna þess að hún notaði ekki sitt raun­verulega nafn. Hún sætti sig ekki við það og upp hófst mikil fjölmiðla­umfjöllun sem varð til þess að Facebook leyfði Sister Roma að halda reikningi sínum. Hún hafi þó verið mjög gagnrýnin á að ekki hafi allir fengið sömu möguleika og hún til að gera slíkt hið sama.

Jakob segir að margir séu í þeirri stöðu að eiga erfitt með að koma fram undir sínu raun­verulega nafni. Að baki geti legið margar ástæður, fólk geti verið að flýja ofbeldi eða pólitískar ofsóknir og því þurft að nota dulnefni.

Lönd í Evrópu byrjuð að stöðva gagnaflutningana

„Við elskum öll samfélags­miðla og Facebook en mörg lönd í Evrópu eru farin að draga í efa stjórnunar­hætti Facebook,“ segir Jakob. Nokkrir dómstólar í Evrópu hafa dæmt fyrir­tækinu í óhag þegar kemur að gagna­flutningum milli Evrópu og Banda­ríkjanna. Þeir líta svo á að ekki megi flytja svo mikið af gögnum milli heims­álfanna.

Jakob segir að hann sé ánægður með þessa þróun því gagna­magnið sé orðið svo gríðarlegt hjá Facebook. „Þeir vita svo mikið um okkur og við vitum svo lítið um þá,“ segir hann. „Við þurfum að vita meira.“

Enn með Facebook-reikning en hættur að „læka“

Jakob er enn með Facebook-reikninginn sinn vegna þess að það er hentugt fyrir hann sem kvikmynda­gerðarmann. Hann segir þó að hann sé hættur að deila efni eins og hann gerði áður. Hann sé hættur að „læka“ og tjá sig Facebook. Hann hafi ekki lengur áhuga á því að fyrir­tækið hafi slíkar upplýsingar um sig. Hann vill þó ekki meina að hann sé væni­sjúkur, hann vilji bara fá að ráða því sjálfur hvaða upplýsingar séu geymdar og hverjar ekki.

Hann vonast til að samfélags­miðlar fram­tíðarinnar verði meðvitaðari um ábyrgð sína og stöðu. Að ritskoðun verði ekki eins og hún er í dag og ef fólk langi til að eyða efni að sínu frumkvæði þá ætti það að geta það. „Við elskum nefnilega samfélags­miðla og þeir eru komnir til að vera,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár